Stjarnan - 01.06.1936, Page 8
48
STJARNAN
það að vera vanræktur. “L,áttu það eiga sig.”
Þetta er orðtak letingjanna, sem áreiðanlega
íeiðir til afturfai'a.
“Vanræksla,” er svefnsýki kæruleysisins.
Hvílíkan fjölda góðra áforma og framkvæmda
hefir ekki vanrækslan drepið í fæðingunni.
Já, það er satt: “Öllum hlutum fer aftur ef
þeir eru vanræktir.”
Vanræktu þess vegna ekki skyldu þína eða
nokkuð gott, sem þú getur gjört.
A. Warren.
Spádómar Biblíunnar taka það skýrt fram
að á síðustu dögum verði erfiðir tímar fyrir
íbúa heimsins; harðindin verða að líkindum
mest í f járhagslegu tilliti.
Guð hefir séð svo fyrir að gegn um krepp-
una sem yfir stendur, meðan verið er að ljúka
við starf hans í hei'minum, þá skuli enginn
skortur vera á fé til að hrinda því áfram. Til
þess börn hans hafi nóg fé til útbreiðslu fagn-
aðarerindisins, þá hefir hann lofað ríkulegri
blessun sinni í tímanlegum efnum þeim, sem
trúlega gefa af fé sínu til útbreiðslu hans ríkis.
Eg óttast fyrir að margir séu í miklu meiri
fjárkreppu heldur en vor himneski faðir ætlast
til. Eg er hræddur um að sumir eigi erfiðara
fjárhagslega, og njóti ekki eins fullkomlega
gleðinnar í Guði, eins og þeir gætu gjört, ef
þeir væru trúir í því að gefa Guði hvað Guðs er.
Einn af þjónum Drottins hefir sagt: “Eg
sá að surnir afsökuðu sig frá að gefa til efl-
ingar Guðs ríkis af því þeir væru í skuld . . .
Vegna eigingirni þeirra og ágirndar getur Guð
ekki lagt blessun sina yfir störf þeirra og fram-
kvæmdir.” R. H.
Smávegis
Fyrsta desember 1935 unnu 800,079 manns
í þjónustu Bandaríkja-stjórnarinnar, og fengu
náttúrlega kaup sitt fyrir hjá henni. 110,795
af þeiiin voru í höfuðistaðnum.
Það er sagt að þeim fjölgi sem flýja frá
ítalíu til Austurríkis, til þess að komast hjá
því að verða sendir í herinn til Ethiópíu. En
nákvæmar fréttir um þá er ekki unt að fá.
Ung stúlka, sem er afbragð allra annara í
reikningsliist er nú í París á Frakklandi. Há-
skóla prófessor einn spurði hana hve marga
daga, klukkustundir, mínútur og sekúndur sá
STJARNAN kemur út einu sinni á mán-
uði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram.
Útgefendur: The Canadian Union Con-
ference of S.D.A., 209 Birks Bldg. Wpeg.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
MISS S. JOHNSON, Lundar, Man., Can.
maður hefði lifað, seim væri rétt 46 ára að
aldri. Eftir augnabliksþögn svaraði hún ispurn-
ingu hans. Franskir prófessorar könnuðust
við að tölur hennar væru réttar.
Ein deild Þj óðasambandsins, sem kallast
Nansen skrifstofan hefir á lista sínum yfir
eina miljón manna, sem verða að fá hjálp.
Rúm 120,000 af þessu fólki hafa mist stöðu
sina þessi síðastliðnu ár. Bæði vegna aldurs
og annara orsaka getur það ekki hjálpað sér
sjálft. Alt þetta fólk er eins statt i því tilliti
að það á ekkert land. Þó ótrúlegt og óskiljan.
legt sé, þá hefir það enga lagaheimild til að
vera nokkursstaðar. Það er sent yfir landa-
mærin og hrakið þannig land úr landi, og stund-
um látið sitja lengi í fangelsi, þótt það hafi
ekkert til saka unnið nema það að vera til. Nú
er prentað Nansen frímerki, sem á að selja til
að hjálpa þessu fólki.
Áætlað er að Bandaríkjakonur eyði um 200
miljón dollurum árlega í fegurðarbúðum, svo
þær geti sýnst yngri og fegri. Um 30,000 slík.
ar búðir finnast í landinu.
25430 Gyðingar fluttu frá Warshaw í Pól-
landi til Palestínu árið sem leið.
Ákafir hvirfiibyljir hafa nýlega gengið yfir
suðurríkin, sérstaklega Missisippi, Alabama og
Georgíu. Þeir hafa orsakað mikið eignatjón,
meitt þúsundir manna, og drepið 376 manns,
eftir því sem síðustu fréttir greina frá.
Nú kvað vera komin ný uppfynding, sem
stöðvar bíl ef keynsluimaðurinn fellur í svefn.
Þegar hann linar tökin á hjólinu þá blæs horn
og bíllinn stöðvast.
Eg er svo innilega þakklát hinum göfugu,
samvizkusömu viðskiftamönnum mínuirn, sem
standa í skilum við Stjörnuna, þeir létta mér
svo mikið erfiði og áhyggjur. Guð mun blessa
þá og uppfylla þarfir þeirra.
N. Johnson.