Stjarnan - 01.10.1936, Blaðsíða 1
STJARNAN
OKTÓBEE, 1936 LUNDAE, MAN
Sjá brúðguminn kemur
Vér gleÖjumst í fullvissunni um það aÖ GuÖ
er “miskunnsamur, líknsamur, þolinmóður,
gæzkuríkur, og harla trúfastur, sem auðsýnir
gæzku þúsundum og fyrirgefur misgjörðir, af-
brot og syndir.” En vér megum aldrei gleyma
því, að hann er réttlátur ekki síður en miskunn.
samur. “En hann lætur syndirnar þó eigi með
öllu óhegndar.” Mós. 34:6,7. Reiði hans gegn
syndinni verður fullnægt þegar iðrunarlausir
syndarar verða að lokum eyðilagðir. í náð
sinni er hann þolinmóður við syndarann, en í
réttlæti gagnvart alheiminum og til að auglýsa
sitt eigið réftlæti, verður hann að afmá synd.
Sá alvárlegi endurgjaldstími nálgast óðum.
Það er erfitt fyrir oss að skilja það, að
Guð muni algjörlega eyðileggja syndarann og
afmá synd af jörðunni, en engurn sannleika er
haldið skýrara fram í Biblíunni heldur en þess-
um. “Af því að dómi yfir verkum ilskunnar
er ekki fullnægt þegar í stað, þá svellur mönn-
um móður til þess að gjöra það sem ilt er.”
Préd. 8:11. “En ;með harðúð þinni og iðrunar-
lausu hjarta safnar þú sjálfum þér reiði á reiði-
degi og opinberunar Guðs réttláta dóms.” Róm.
2 :5. Ó, hve dýrmætt er að vita, að nú er tæki-
færi fyrir alla, sem vilja, til að frelsast frá
syndinni og reiðinni, fyrir trúna á hann, sem dó
fyrir oss.
Sá dagur kemur samt sem áður, að þeir, sem
viljandi hafna, eða með kæruleysi vanrækja að
meðtaka náð Drottins, munu í angist sinni
hrópa: “Uppskeran er liðin, aldinskurðurinn
á enda, en vér höfum eigi hlotið 'hjálp.” Jer.
8:20. Þeir, sem með fyrirlitningu hafa stöðugt
hafnað Guðs framboðnu náð munu á þeim degi
i vonlausri örvæntingu kalla til fjallanna og
hamranna: “Hrynjið yfir oss og felið oss fyrir
ásjónu hans, sem í hásætinu situr og fyrir reiði
lambsins. Því að kominn er dagurinn, hinn
mikli dagur reiði þeirra, og hver mun geta stað-
ist.” Opinb. 6:16, 17.
7'ákn til aðvörunar.
Plinn mikli dagur kemur ekki án þess mönn-
um verði gjört aðvart. Nálægð hans verður
auglýst með órækum kennimerkjum, sem allir
geta skilið. Jesús sagði: “Og tákn munu
verða á sólu, tungli og stjörnum, og á jörðunni
angist meðal þjóðanna í ráðaleysi við dunur
hafs og brimgný. Og Imenn munu gefa upp
öndina af ótta og kvíða fyrir því er koma mun
yfir heimsbygðina, því að kraftar himnanna
munu bifast.” “Þannig skuluð þér vita, að
þegar þér sjáið alt þetta, þá er hann í nánd, fyr-
ir dyrum.” Lúk. 21:25,26; Matt. 34:33.
Alkunnur rithöfundur hefir lýst ástandi
heimsins þannig: “Alstaðar í heiminUm, er
hætta og óvissa, skelfing ótti og kvíði grípur
hjörtu manna. Hver þjóðin tortryggir aðra.
Sjálfselska og eigingirni, sem gengur undir
yfirskini föðurlandsástar, grefur grundvöllinn
undan félagslífi og viðskiftum manna. Er orð-
ið of seint að snúa við? . . . Það sjást þegar
merki þess að mannkynið er farið að skilja 1
hvílíkri hættu það er statt.”
Annar rithöfundur notar þessi alvarlegu
orð: “Það lítur út eins og vér séum að nálgast
endir heimsins . . . og göngum á móti hinni síð_
ustu eyðileggingu.”
Herbúnaður.
Eitt af því helzta sem bendir á að hinn mikli
og ógurlegi dagur Drottins, sem spámennirnir
tala um, sé í nánd er samkepni allra þjóða í her-
búnaði. Það er sagt að 1913 hafi allur her
heimsins, að meðtöldum varaherdeildum, verið
29,095,288 og að kostnaður, sem laut að hern-
aði hafi þá verið 1,300,285,334 dollarar, en
1934 var tala hermanna stigin upp í 38,473,994
og fé lagt fram til herkostnaðar 3,195,150,370
dollarar.
I síðastliðin 20 ár hefir hermönnum fjölg-
að í heiminum um nær því 10 miljónir manna,