Stjarnan - 01.02.1943, Blaðsíða 5

Stjarnan - 01.02.1943, Blaðsíða 5
13 STJARNAN Abraham væri svo ungur þá skrifaði hann Pi'esti þeirra í Kentucky og bað hann koma og jarða móður sína. Gegnum margskonar reynslu og erfið- leika komst Abraham áfram og var hinn 16. forseti Bandaríkjanna. Hann stóð fast með sambandi ríkjanna og viðhaldi g^undvallarlaganna, og á dimmasta tíma- kili ríkjanna strengdi hann þess heit að veita þrælunum frelsi, það komst í fram- kvæmd 1. janúar 1863. Nokkru fyrir dauða sinn hafði hann sagt: “Það sem eg er og nokkurn tíma vona að verða á eg móður minni að þakka.” Mættu þessar endurminningar hvetja kristnar mæður til þess óþreytandi að hjálpa börnum sínum að þroska göfugt innræti. Gefist aldrei upp, en haldið áfram að biðja fyrir börnum yðar og kenna þeim réttlæti Guðs bæði með orði og eftirdæmi. S. H. Carnahan. Hugsunarlaus vani Sálmaskáldið Dr. Jsaak Watts, dáinn 1148, mótmælti alvarlega að trúarbrögð væru fyrirskipuð af ríkinu. 1 eftirfarandi línum mótmælir hann því einnig að menn blindandi fylgi trúarbragðasiðum, sem ekki eru bygðir á Heilagri ritningu. •^f tilviljun einni var troðin þessi braut, Þar tízkunni og hefðinni lýtur blinduð hjörð, seni ánauðarhlekki að eigin vilja hlaut. °g enginn svo hugrakkur finst á vorri jörð að dirfist til baka frá villu að snúa við. En vér skulum samtaka sýna þrek í þraut °g þolgóðir knýja fram hinn æðri sið. “Hve hugsunarlaust menn stundum fylgja vananum sýnir sig í samtali, sem emn af safnaðarmönnum vorum í Lund- unaborg átti við umsjónarmennina í Westminster Abbey. Það var siður að hafa guðsþjónustu i þessari kirkju á hverjum einasta degi, þá voru 10 boðorðin lesin upp, og eftir hvert boðorð tók söfnuðurinn undir og bað: “Drottinn miskuna þig yfir oss og gef oss löngun til að halda þetta boðorð.” Einn af meðlimum safnaðar vors vann hjá orgelfélagi því, sem leit eftir orgel- inu í þessari kirkju. Einn dag þegar þessi ^naður, Edward Mylrea að nafni, hafði fokið við einhverja aðgjörð á orgelinu falaði hann við þá af eftirlitsmönnunum, sem viðstaddir voru. “Það er eitt, sem núg langar til að þér skýrið fyrir mér,” sagði hann. “Guðsþjónusta er haldin hér hvern einasta dag vikunnar. Hér er guðs- Þlónusta á hverjum laugardegi, sem er sjöundi dagur vikunnar. Þér lesið upp boðorðið sem segir: “Sjöundi dagurinn er hvíldardagur Drottins Guðs þíns þá skaltu ekkert verk vinna.” Söfnuðurinn tekur undir og segir: “Drottinn, miskuna þig yfir oss og gef oss löngun til að halda þetta boðorð.” Svo gangið þið allir út og gangið að yðar daglegu vinnu. Hvernig stendur á þessu?” Einn af eftirlitsmönnunum, klappaði saman lófunum og sagði: “Já, við gjörum það. Mér hefir aldrei komið þetta til hugar fyrri.” Hann gaf enga skýringu. Það sem byrjað var af hendingu eða hugsunarlaust, því halda menn áfram svo öldurn skiftir, og þúsundir manna fylgja fjöldanum í blindni, þeir gleyma boðorðinu og stað- næmast aldrei til að hugsa, þó var fyrsta orð boðorðsins endurtekið: "Minsiu, Minsiu að halda hvíldardaginn heilag- ann." Fyrst allir að lokum verða að mæta fyr- ir dómstóli Drottins, þar sem boðorð Guðs verða mælisnúran í dóminum, þá er það sannarlega náð og miskun Guðs að hann sendir hinn síðasta náðarboðskap til allra manna: “Óttist Guð og gefið honum dýrð, því komin er stund dóms hans.” Op. 14:7. Það þarf að hrópa til fólksins svo það vakni til umhugsunar, en haldi ekki áfram í hugsunarleysi að fótumtroða Guðs boð- orð. W. A. Spicer. + + -♦- Nálægt 75 þúsund Grikkir búa í Chi- cago. Þeir lifa í voninni um að Banda- ríkin gangi sigrandi af hólmi í stríðinu. f borginni og héraðinu umhverfis eru 300 grísk félög, sem starfa og styðja að því að sigur verði unninn.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.