Stjarnan - 01.02.1943, Blaðsíða 8
16
STJARNAN
Dæmisaga
Setjum svo að skip ætlaði að sigla
langt í burtu til lands nokkurs þar sem
allir væru ætíð hamingjusamir, hefðu
nóg af öllu, yrðu aldrei veikir og dæu
aldrei. Stjórnendur landsins buðust til að
ílytja fólk þangað ef það vildi gangast
inn á þrjú skilyrði.
Fyrsí, láta þá vita að viðkomandi óskaði
að flytja þangað.
Annað, að þeir vildu hlýða reglum þeim
sem settar væru fyrir innflytjendur. All-
ir kannast við að þær reglur séu réttar
og sanngjarnar.
Þriðja, að þeir, sem ekki hafa lifað
samkvæmt þessum reglum, breyti venjum
sínum og' fari að fylgja reglunum. Haldið
þér ekki að fólk mundi fljótt og fúslega
fullnægja þessum skilyrðum og búa sig
undir að flytja? Það er ekkert efamál.
Vinur minn, Jesús hefir undirbúið
slíkt land fyrir oss. Hann kemur bráðum.
til að flytja þá, sem tilbúnir eru til hins
himneska heimkynnis, þar sem allir íbú-
arnir verða hamingjusamir, hafa altaf nóg,
verða aldrei veikir, mæta engri sorg né
erfiðleikum og deyja aldrei. Hann tekur
þangað hvern, sem vill mæta þremur
skilyrðum.
Fyrsl, að þeir láti hann vita að þeir
óski að komast þangað.
Annað, að þeir lagi líf sitt eftir hans
reglum og boðum, sem öll eru heilög,
réttlát og góð.
Þriðja, að þar sem þeir hafa ekki fyigt
hans reglum, að þeir fari strax að hlýða
þeim og halda hans boðorð.
Ert þú ekki fús að mæta þessum þrem-
ur skilyrðum? Vilt þú ekki líta til Jesú
og segja: “Herra Jesús, mig langar til að
eig;a heima í hinum dýrðlega bústað, sem
þú hefir tilbúið. Eg þrái það af öllu
hjarta. Eg vil fylgja þínum boðum og
reglum. í þeim atriðum, sem eg hef ekki
hlýtt þínum boðum hingað til, bið eg þig
um náð og kraft til að laga líf mitt efti v
þeim upp frá þessu.”
J. L. Shuler.
Það er áætlað að Japan hafi náð undir
sig 1.000.000 ferhyrningsmílum af landi
með sigurvinningum sínum.
STJARNAN kemur út einu sinni á
mánuði. Verð: $1.00 á ári. Borgist
fyrirfram. Publishers: The Canadian
Union Conference of S. D. A.,
Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. Johnson, Lundar, Man. Can.
Smávegis
Mynni Amazon fljótsins er 160 mílur á
breidd.
-f -f +
Brazil er að auka silkiframleiðslu sína
til að geta komist hjá að flytja inn þá
vöru. Silkiframleiðslan þar nú sem stend-
ur er aðeins einn þriðji af því, sem þjóðin
hefir notað af silki að undanförnu.
-f -f -f
Fyrir þremur árum síðan, unnu 30.000
manna að flugvélasmíði og framleiddu
3.000 flugbáta á ári. Nú vinna 400.000
manns að þessari iðn og framleiða um
48.000 flugvélar á ári.
4- -f -f
Roosevelt forseti Bandaríkjanna og
Churchill forsætisráðherra Breta eru báð-
ir afkomendur John Cooks gegnum dæt-
ur hans tvær. Þessi forfaðir þeirra kom
til Ameríku á skipinu “Mayflower” árið
1620.
Ný flutningaflugvél er nú smíðuð í
tvennu lagi, svo hægt er að festa vængina
og vélina á annan flutningabát meðan
verið er að afferma hinn fyrri.
-f -f -f
Nú er farið að halda því fram að menn
geti læknað sjálfa sig af sjóveiki, með
því að lærá að draga andann í samræmi
við hreyfingar skipsins upp og niður.
-f -f -f
Finnlendingar héldu hátíð árið sem leið
í minningu um prentun Biblíunnar.
Michael Agricola þýddi Nýja Testamentið
á finsku árið 1542 en það var ekki gefið
út fyr en 1548.
-f -f -f
Nú er ráðgjört að rækta hamp á 300.000
ekrum af landi í Bandaríkjunum og
byggja 71 myllu til að vinna úr honum.
Áður var þessi nauðsynjavara flutt inn
í landið frá Austur-Asíu.