Stjarnan - 01.02.1943, Qupperneq 6

Stjarnan - 01.02.1943, Qupperneq 6
14 STJARNAN Sagan hans afa “Afi, segðu mér sögu áður en eg fer að hátta,” bað Dóris eitt kvöld, og bætti svo við: “Segðu mér sögu um þig þegar þú varst lítill drengur.” “Hef eg nokkurn tíma sagt þér hvernig eg fann það út að það borgar sig best að vera ráðvandur?” spurði afi. “Nei, segðu mér það.” “Það var fyrir löngu síðan þegar eg- var um 7 ára gamall. Eg var á heimléið frá skólanum og mætti vagni, sem staðnæmd- ist á götunni. Eg þekti þá, sem í honum voru og einn þeirra sagði við mig: ‘Tvar, viltu gjöra mér greiða? Viltu fara til skósmiðsins inn í þorpinu og sækja til hans stígvélin mín, sem hann átti að gjöra við? Hér eru 25 cent handa þér fyr- ir hjálpina.” Hann fékk mér skínandi silfurpening og eg fór strax eftir stígvélunum, en þegar þangað kom var verkstæði hans lokað, svo eg gat ekki náð í stígvélin. Á leiðinni heim hafði eg hendina í vasa mínum og hélt á peningnum, einhver innri rödd sagði við mig: þú átt ekki þessa peninga, jafnvel þó þú gætir ekki náð í stígvélin til að færa eigandanum þau. Þú verður að skila honum peningunum. “Gjörðir þú það?” spurði Dóris. “Já, eg fór beina leið heim til hans og sagði honum að skósmíðaverkstæðið hefði verið lokað, svo eg hefði ekki getað náð í stígvélin, svo eg kæmi aftur með pen- ingana, því eg hefði ekki getað unnio fyrir þeim. Maðurinn brosti klappaði mér á kollinn og sagði: Þú ert ráðvandur drengur, ívar, þú mátt eiga peningana." Eg hljóp alla leið heim til að segja mömmu frá þessu, eg var svo glaður. Nokrum dögum seinna kom eg inn í þorpið og mætti skósmiðnum á götunni. “Góðan daginn ívar,” sagði hann, “eg mætti manni nýlega, sem sagði mér að þú værir ráðvandur drengur, þú vildir ekki halda í peninga, sem þú hefðir ekki unnið fyrir. Mér geðjast vel að slíkum drengjum. Eg ætla að gefa þér þetta.” Um leið rétti hann mér 25 cent. Eg var svo forviða að eg gat ekkert sagt nema “þökk fyrir.” “Þetta var góð saga afi,” sagði Dóris brosandi. “Hún er nú lengri en þetta”, sagði afi. “Nokkrum dögum seinna fékk eg bréf í póstinum, það var frá manni sem var góður vinur föður míns. “Eg hef heyrt þú sért ráðvandur drengur,” skrifaði hann. “Eg sendi þér hér með litla gjöf.” Innan í bréfinu var nýr dollar seðill. Eg lærði þá lexíu þann dag, sem eg hef aldrei gleymt. “Það borgaði sig að vera ráðvandur”, sagði Dóris. “Það borgar sig ætíð,” svaraði afi. “Það borgar sig þó þú fáir ekki peninga fyrir það, þú verður svo glaður og hamingju- samur af því að vita að þú gjörir rétt.” E. C. Palm. Billy og fiðlan hans Billy Boyd, flýtti sér gegnum þorpið með fiðluna sína undir hendinni. Hann var á leið til prófessor Hayden til að fá lexíu að leika á fiðlu. Hann fór þangað einu sinni í viku. Eins og hann var vanur staðnæmdist hann fyrir framan búðar- gluggann hjá Kelly, þar voru svo mörg strengjahljóðfæri til sýnis. Fallegast af þeim öllum var stór fiðla, sem var rétt út við hornið á glugganum. Hann gat með aðdáun horft á hana svo mínútum skifti. En hann vissi hún mundi vera svo dýr að það væri óhugsandi fyrir hann að geta keypt hana. Litla gamla fiðlan hans var líka brúkanleg ennþá, hann gat vel æft á hana. Hann brosti eins og hann væri að kveðja vin sinn og hélt áfram leið sína, en brátt varð hann reglulega skelkaður. Hann sá barn í hættu. Hann hljóp, sem fætur toguðu yfir að þjóðveginum, þar á miðri brautinni var lítill drengur. Hraðfærir bílar þustu framhjá honum þar sem hann sat grátandi af hræðslu. Lítill hundur gelti ákaft skamt frá. Billy flýtti sér, lagði fiðluna í grasið við veginn og beið rólegur tækifæris að ná í barnið, svo skaust hann út á brautina, náði í dreng- inn og bar hann yfir að götujaðrinum. Til mestu skapraunar fyrir Billy hafði litli hundurinn leikið sér með fiðluna hans og dregið hana út á þjóðveginn, og

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.