Stjarnan - 01.04.1946, Qupperneq 4

Stjarnan - 01.04.1946, Qupperneq 4
28 STJARNAN farið fram hjá, án þess eg drekki hann, þá verði þinn vilji.” Frelsarinn fellur nú dauðvona til jarðar. Enginn lærisveinn er viðstaddur, sem hann getur hallað sínu. þreytta höfði upp að, hann er aleinn; enginn í heiminum veitir honum aðstoð. En guð tekur þátt í þjáningu sonar síns. Englarnir virða fyrir sér ásjónu freisar- ans. Það er þögn á himnum. Engin harpa hljómar. Hefðu mennirnir getað séð hinn mikla englaskara, sem dapur og undrandi horfði á föðurinn, þá er hann burttók geisla dýrðar sinnar.og kærleika, frá sín- um elskaða syni, þá hefðu þeir betur skilið, hversu andstyggileg syndin er í augum hans. Voldugur engill kemur nú til Krists og lyftir hinu þjáða höfði hins guðdómlega, sorgmædda frelsara upp að brjósti sér og bendir til himins. Hann segir honum, að hann hafi unnið sigur yfir Satan, og þess vegna muni margar miljónir manna standa sem sigurvegarar í hinu dýrðlega ríki hans. Yfir hinu blóðuga andliti frelsarans hvílir nú himneskur friður. Hann hafði þolað það, sem enginn maður nokkurn tíma getur þolað, því hann hefir smakkað dauðann fyrir alla menn. Enn gekk Jesús til lærisveinanna, og enn fann hann þá sofandi. Ef þeir hefðu vakað og beðið með frelsara sínum, þá hefðu þeir öðlast hjálp í þeirri reynslu, sem lá fyrir þeim. En af því að þeir gjörðu það ekki, höfðu þeir ekkert þrek, þegar á þurfti að halda. Jesú leit hryggur á þá og sagði: “Sofið seinna ag hvílist! Sjá, stundin nálgast, og mannsins sonur er framseldur í hendur syndara.” Meðan hann mælti þetta, heyrði hann til flokksins, sem kom að leita hans. Og hann sagði: “Standið upp, förum; sjá, sá er í nánd, er mig svíkur. (Matt. 26: 45-46). Samkvæmt skrásetnigu á Colgate há- skóla í New York eru nemendur sem nú innritast þar að meðaltali um 17 og hálfs árs að aldri, en fyrir 20 árum síðan voru byrjendur þar flestir 21 árs að aldri. Aron Haseboean Aron' var fæddur á eyjunni Sumatra. Á æskuárum vandist hann við alskonar heiðna siði. En Guð sá að hér var drengur sem mundi verða útvalið vitni til að vitna um hann svo hann sá honum fyrir tæki- færi til að þekkja hinn frelsandi boðskap fagnaðar erindisins. Hann gekk á Renish trúboðsskóla. Hann var skýr og áhuga- samur svo námið gekk ágætlega. Að loknu námi lét þetta trúboðsfélag hann kenna skóla og aðstoða prest þann er starfaði í nágrenninu. Eftir nokkurn tíma varð hann hættu- lega veikur og var fluttur á sjúkrahús. Eftir langa legu fór honum smám saman að batna, þó hægt færi. Einn dag rétti hann hendina upp á hyllu sem var við höfðalag hans, til að reyna að lyfta sér upp, því hann var ennþá of máttfarinn til þess að sitja uppi eða fara á fætur. Hann fann eitthvað á hyllunni sem reyndist að vera bók á Malaya máli. Titill bókarinnar vakti strax athygli hans: “Frelsun Heims- ins.” Hann hugsaði fyrst það hlyti að vera s'tjórnmálarit, sem einhver hefði gef- ið út til að berjast fyrir pólitízku sjálf- stæði. Hann fór strax að lesa bókina. Efni hennar var um frelsun frá synd, og hafði það djúp áhrif á hann. Enginn vissi hvernig bókin hafði komist þangað og Aroni var gefin hún. Hann faldi bókina í kofforti sínu, því það hefði sett hann í vandræði ef einhver hefði vitað að hann las hana. Nokkrum mánuðum seinna fór Aron inn á matsölu- hús; þar mætti hann bókasölumanni sem bauð honum Tákn Tímanna á Malaya máli. Honum leizt vel á bókasölumanninn, hann hafði svo hreinar og hvítar tennur, alveg gagnstætt því sem fjöldinn hafði, sem tugði tóbak og betelhnetu. Aron segir svo sjálfur frá: “Eftir að eg hafði lesið blaðið, ásetti eg mér að hætta að brúka tóbak. Það var erfitt fyrir mig. En eg mætti öðrum þyngri erfiðleikum. Þegar eg sagði konu minni að Sjöunda dags Aðventistar væru hin sanna kirkja, og eg ætlaði að sameinast þeim, þá varð hún reið og hótaði að yfirgefa mig. Hún reyndi alt mögulegt til.að fá mig til að

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.