Stjarnan - 01.04.1946, Síða 8
32
STJARNAN
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Office Départ-
ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00
a year. Publishers: The Can. Union Conference
of S. D. A., Oshawa, Ontario.
Ritstjórn og afgreiðslu annast:
MISS S. JOHNSON, Lundar_ Man., Can.
á hann, til þess að geta mótmælt kenning-
unni og haldið uppi heiðri kirkju sinnar.
Fyrsta kvöldið talaði ræðumaður um kær-
leika Guðs, og Guðs andi snerti hjarta
Tejanos er hann hlustaði á þetta efni.
Löngun hans til að mótmæla var horfin.
Hann fór út án þess að tala orð við nokk-
urn mann. Næsta kvöld kom hann aftur
og hafði þá fjölskyldu sína með sér. Þau
héldu áfram að korna og sannfærðust um
að prédikarinn flut'ti hreint Guðs orð. Þau
fundu ekkert sem þau gætu mótmælt.
Þegar þau höfðu heyrt allan boðskapinn,
réðu þau af að biðja um skírn og sam-
einast söfnuði Aðventista. Þetta leiddi
ofsóknir katólsku kirkjunnar yfir Tejano,
og margir vina hans snérust einnig á móti
honum. En hann stóð stöðugur með Guði.
Nú mætti honum enn þyngri reynzla.
Sjón hans bilaði svo hann varð nærri
blindur. Fyrri vinir hans álitu þetta hegn-
ingu fyrir að hann hefði yfirgefið katólsku
kirkjuna. En Tejano reyndist trúr gegn
um alla erfiðleika. Hann hafði svo mikla
Iöngun til að vinna fyrir Guðsríki að
hann lærði Biblíuvers utanbókar og bað
um leyfi til að halda samkomur á heim-
ilunum. Fyrst var honum ráðlagt að gjöra
það ekki vegna sjónleysis hans. En svo
kaus hann sér umtalsefni og lærði utan-
bókar bæði spurningar og Biblíuvers þau
er svöruðu spurningunum. Að lokum
leyfðu bræðurnir honum að fara út til að
kenna, og hann leiddi marga til þekkingar
á sannleikanum. Einu sinni var hann
grýttur meðan hann var að prédika. Hann
hefir mætt miklum ofsóknum. Nágrann-
arnir reyndu einu sinni að drepa gripi
hans, en það tókst ekki. Hann stóð stöð-
ugur gegn um allar ofsóknir og margir
lifa fagnandi í trúnni á frelsarann fyrir
starf og trúmensku simons Tejano.
“Kom til Jesú, sjúka sál’
“Komið til mín.” segir Jesús, “Lærið af
mér.” Þegar vér komum til Jesú og fylgj"
um honum, þá notum vér náðargjafir hans
öðrum til blessunar og þá léttir það vora
eigin byrði. Sá sem heldur Guðs boðorð
gengur með Jesú, eins og sagt er um Enok
að “hann gekk með Guði,” sá maður hefir
hjartað fult af kærleika Krists, og hefir
fundið hvíld fyrir sálu sína.
“Svo segir Drottinn: Gangið á veginn og
litist um, spyrjið að hinni gömlu götu,
hvar sé sá góði vegur, og gangið hann. Þá
munuð þér finna hvíld yðar sálum.” Jer.
6: 16. Drottinn segir enn fremur: “Ef þú
vildir gæta minna boðorða, þá mundi heill
þín verða sem vatnstraumur, og hamingja
þín sem bylgjur sjávarins.” Jes. 48: 18.
Þeir sem taka Guð í orðinu fela honum
sálu sína, og láta orð hans stjórna lífi sínu,
þeir njóta friðar og öruggleika. Jesús er
með þeim og návist hans fyllir þá djúpri
og innilegri gleði. “Þú veitir fullkominn
frið þeim sem eru stöðugir með þér, því
þeir treysta þér.”
Vér getum haft ótal erfiðleika í lífinu,
en ef vér gefum oss skilyrðislaust í hendur
skapara voks og Drottins, þá mun hann
snúa öllum erfiðleikum vorum sjálfum sér
til dýrðar og oss til blessunar. —E. G. W.
“Guð er vort athvarf og styrkur, hjálp
í þrengingum margreynd; því hræðumst
vér ekkert þó jörðin fari úr lagir og fjöllin
flytjist mitt í hafið, þó að sjórinn ólgi og
æsist, svo að fjöllin hristist af hans ofsa.”
■f -f -f
Hong Kong, Kína, er full af rottum
eftir stríðið. Alvarlegar og víðtækar til-
raunir hafa verið gjörðar til að útrýma
þeim, en það hefir ekki gengið eins vel og
vænta mátti, því þegar innfæddir menn
þar heyrðu að borgun fengist fyrir hverja
dauða rottu, þá fóru þeir að rækta rottur
til að bæta tekjur sínar.
-f -f -f
Meðan á stríðinu stóð framleiddu
Bandaríkin þrefalt fleiri flugvélar heldur
en England.