Stjarnan - 01.08.1946, Qupperneq 4

Stjarnan - 01.08.1946, Qupperneq 4
J STJARNAN 60 hegningin kæmi niður á honum fyrir sví- virðuverk hans; en hann fann ekki til neinnar verulegrar sorgar yfir því, að hafa svikið hinn saklausa Guðs son Jesús sakfeldi hann þó ekki, en leit með hrygð og meðaumkvun á hann og mælti: “Þess vegna er eg kominn að þessari stundu.” Það heyrðust undrunaróp frá mann- fjöldanum, yfir miskunnsemi Jesú við svikara sinn. Júdas sá nú að bænir hans voru árangurslausar, og hann stökk út úr salnum með þetta hróp á vörum sér: “Of seint! Of seint!” Hann fann að hann gat ekki lifað það, að vera vitni að því að Jesús yrði kross- festur, og í örvæntingu gekk hann burt og hengdi sig. Seinna, þenna sama dag, þegar Gyð- ingar voru að fara með Jesúm frá Pílatusi til Golgata, staðnæmdist þessi óguðlegi manngrúi og hróp hans og háðsyrði hættu skyndilega, því þegar hann fór fram hjá eyðistað nokkrum sást lík Júdasar liggja þar hjá visnu tré. Þetta var viðbjóðsleg sjón. Snaran, sem hann hengdi sig í, hafði slitnað af þunganum, og þegar líkið datt hafði það tæst í sundur, og nú voru hundarnir að eta það. ' Hinar jarðnesku leifar Júdasar, voru strax greftraðar; en nú heyrðust ekki jafn- mörg háðsyrði og fyr, og margt fölt andlit lýsti órósemi og innbyrðis ótta. Það var líkast því að þeir, sem voru orsök í að blóði Jesú var úthelt, væru strax farnir að taka út endurgjaldið. Biblía hefir fundist í Adelaide, Austra- lia, með ártalinu 1664, og nafn John Bunyans stendur á henni með hans eigin handar skrift. Sagt er að Bunyan hafi átt þessa Biblíu þegar hann var í fang- elsinu í Bedford og skrifaði “För Píla- grímsins.” 4-4-4- íbúar Bretlands, 45 miljónir, menn, konur og börn, brúkuðu hér um bil 220 aniljón pund af te á ári hverju. Það er meir en helmingur af því sem framleitt er af því í heiminum. . . . Undralækning Fyrir nokkru gerðist það undur á Elli- heimilinu í Reykjavík, að gamalil maður, Gísli Gíslason, sem nm margra ára skeið hefur staulazt áfram hálf farlama, með staurfót og berfklasár á mjöðminni, ivarð skyndilega alheill. Hann var að hlýða á útvarpsmessu. Presturinn, séra Árni Sig- urðsson, talaði um iama onanninn, sem Jesús læknaði. Mér er sagt að læknar gefi enga skýr- ingu á iþessu fyrirbæri, en gamlli maður- inn er ekki :í neinum vafa eða vandræðum með skýringu. Það var Kristur, sem krafta- verkið gerði á honum. Eg átti tal við Gísla Giíslason, ihlýddi á frásögn hans og virti hann nákvæmlega fyrir mér. Hann hoppaði upp á 'gólfinu, hristi sig allan og skók, sýndi mér hve liðugur han var í liðamótum þess fótar, ;Sem áður hafði varið stífur og ó- sveigjanlegur. Hann fór í krók við mig með öðrum fingrinum, sem hafði verið kreppt- ur inn d lófann í mörg ár. Bæði prikin, sem hann hafði notað undanfarið til þess að styðja sig við, hanga uppi á þili 1 herberg- inu. Rúmgaflarnir í herberginu báru þess ljósan vott, hvernig gamli maðurinn var vanur að vega sig upp með því að grípa í báða rúmgaflana, öll málning var slitin af, þar sem hann var vanur að grípa til. Hann ljómaði allur, er hann sagði frá og sýndi sig, og vegsaimaði Guð, sem hafði gert fyrir hann mikla hluti. Mö-rg ár ihafði gamli maðurinn ekki getað lesið neitt nema með gleraugum. Nú hefur hann fengið aftur það góða sjón, að glerauigun eru gersamlega óþörf. Þann- ig faefur hann allur orðið nýr maður. Sjálfsagt gerast alls konar undur á með- al manna, þótt þeim sé oft lítill gaounur gefinn og menn sikilji Iþau ýmist illa eða alls ekki. Dr. Alexis Carrel segir: “1 læknisstarfi mínu hef eg horft á menn, meðan faænin faefur lyft þeim upp úr sjúk- dómi og þunglyndi, þegar allar aðrar iækn- ingatilraunir reyndusit árangurslausar. Menn kalla þetta kraftaverk. Þótt minna beri á því, á þetta sér stað á hverri klukku- stundu í hjörtum þeirra, sem uppgötvað hafa, áð fyrir bænina streymir til þeirra styrlkjandi kraft-ur í hfsbaráttu þeirra.” Úr bindindisblaðinu Eining. *

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.