Stjarnan - 01.08.1946, Qupperneq 5
STJARNAN
61
Lækning við sárum átríðsins
Meðalið sem gjörir enda á stríði finst
í starfi og boðskap Jesú Krists. Hann
kom í heiminn til að “Lækna hin særðu
hjörtu, að kunngjöra hinum herteknu
frelsi og hinum fjötruðu lausn.” Til að
hugga syrgendur og “gefa 'þeim höfuð-
djásn fyrir ösku, fagnaðar viðsmjör fyrir
hrygð.” Hinn mikli læknir heimsótti
borgir og þorp, og er hann gekk um
strendur Galíleu vatnsins flutti hann hin-
um nauðstöddu fagnaðar boðskap og lækn-
aði þá sjúku. Alstaðar sem hann hafði
ferðast um landið hljómaði gleði og lof-
gjörðarsöngur þeirra sem hann hafði
hjálpað.
Nú eru miljónir manna frá eyðilögðum
heimilum sem hrópa: “Sorg vor er óbæri-
leg, sár vor ólæknandi.” En minnist þess,
niðurbeygðu vinir mínir, að himin og jörð
eru ekkert fjarlægari hvort öðru heldur
en þegar Jesús var hér á meðal vor. Jarðar
börn hafa engin sár sem vor himneski
faðir ekki geti læknað.
Margur hermaður á orustuvellinum
hefir sent upp bæn um hjálp og öðlast þá
rósemi, traust og frið, sem yfirgengur
mannlegan skilning. Hjarta hans varð
rólegt og taugarnar styrkar.
Áður en Jesús var líflátinn sagði hann
þessi huggunarorð til lærisveina sinna :
“Hjörtu yðar skelfist ekki né hræðist.”
Sami kærleiksríki vinur og frelsari segir
til þín í dag. “Kom þú með alla þína gleði
og sorg, hræðslu og hjartasár fram fyrir
Guð, þú getur ekki þreytt hann. Hann
þekkir alt og honum er mjög umhugað
um þig og velferð þína. í allri sorg, undir
öllum krigumstæðum, þegar útlitið er
dimt og framtíðin óviss og þú finnur þig
einmana og hjálparlausan, þá mun rósemi,
gleði og friður hans anda verða sent þér
sem svar uppá trúaða bæn þína.
Kringustæðurnar geta skilið þig frá
Öllum jarðneskum vinum, en ekkert, engin
fjarlægð getur skilið þig frá vorum kær-
leiksríka frelsara. Hvar sem þú ert þá full-
vissar hann þig um návist sína, huggun
hjálp og aðstoð.
Vinur minn, engin annar friður getur
jafnast við þann frið sem manni veitist fyrir
innilegt lifandi samfélag við Jesúm Krist.
Slí'kt samfélag er trygging fyrir og for-
smekkur hinnar himnesku gleði og þess
fullkomna friðar , sem Guðs börn munu
síðar njóta með Guði í hans himneska
heimkynni.
Einhvern þessara komandi daga mun
vor himneski faðir lækna öll sár barna
sinna og viðvíkjandi hinum nýja heimi er
oss gefin þessi gle^ilega fullvissa: að “Guð
mun íþerra hvert tár af þeirra augum.
Dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki
‘harmur kvein né mæða mun framar til vera
því hið fyrra er farið.” Op. 21:4.
—R. F. Cottrell.
Til er það, sem ekki breytiát
Heimurinn er að breytast. Þjóðir rísa
upp, komast til valda og falla svo niður í
duftið. Hið nýja ryður hinu gamla í burtu.
Hugmyndir og venjur gjörbreytast.
En þrátt fyrir þetta þá er það til sem
ekki breytist. Lög þau sem stjórna reik-
ningsfræði, eðlisfræði, ljósi, rafurmagni,
hita, kulda, afli, lit og hljóði, og ýmiskonar
lífi, frá hinu stærsta til hins minsta í þess-
um efnum fylgir alt stöðugum reglubundn-
um, óumbreytanlegum lögum.
Hinn nafnkunni Jóhannes Kepler hróp-
aði: “Ó Guð, eg er að hugsa þínar hugsanir
eftir þér.” Já, bak við sólkerfin, bak við hin-
ar fögru litbreytingar sólarlagsins, og feg-
urð rósanna, bak við lögmál eðlisfræðinn-
ar, bak við hveiti 'ekrurnar og alt hið marg-
breytta líf á hnettinum, stendur höfundur
lífsins, skapari alheimsins.
Hann sem gaf veðrinu sína þyngd (Job
28:25) og setti hafinu skorður (Job 38:10.
II.) hann sem framleiddi fegurð og reglu
alstaðar hann gaf líka börnum sínum lífs-
reglur til að breyta eftir.
Þegar ísraelsbörn til forna settu her-
búðir sínar við fjallið Sínaí þá krýndi dýrð
Guðs fjallstoppinn eins og logandi eldur,
og raust hans heyrðist er hann gaf 10 stutt
boðorð eða skipanir, sem ef þeim er fylgt
tryggja manninum hamingjusamt og far-
sælt líf. Þau standa í 2 Mós. 20:3-17.
i