Stjarnan - 01.10.1946, Qupperneq 7

Stjarnan - 01.10.1946, Qupperneq 7
STJARNAN 79 Áður en hann tók andvörpin, sagði sjúklingurinn: “Ekkert meira, þetta er alt sem eg get sagt.” Leyndardómurinn fór í gröfina með honum. Þú sem les þessar línur kemst við af kærleika föðursins. Hvílík fórn, hvað hann lagði á sig til að frelsa son sinn. Já, 'í sannleika var það mikil fórn. Frelsarinn sagði: “Meiri elsku hefir eng- inn en þá að hann láti líf sitt fyrir vini sína.” Þessi frásaga minnir oss að nýju á hina stærstu fórn, þá sem Jesús bar fram er hann gaf sjálfan sig oss, til frelsunar. Af kærleika til vor tók hann upp á sig þá synd og skömm, sem á oss hvíldi, og þoldi dauðahegningu þá sem vér höfðum til unnið. Vér vorum sekir og dæmdir til dauða, en hann sem ekki þekti synd, dó á krossinum svo vér mættum lifa. Hann yfirgaf dýrðar heimkynni Föðursins á himnum, og kom niður til þessarar dimmu jarðar, sem bölvun syndarinnar hvíldi yfir. “Hann var fyrirlitinn af mönnum, undirorpinn harmkvælum, auðkendur af sárum, líkur manni þeim er menn byrgja fyrir andlit sín.” Alt þetta til þess að vér mættum lifa. . Vor blessaði Drottinn og herra dó fyrir mig og jþig á krossinum. Hjarta hans br.ast. Hann dó af hjartasorg. Ó að vér gætum metið hið óumræðilega lausnargjald, sem borgað var svo að vér mættum lifa. Voice of Prophecy News Svo fullkomlega hefir Berlin verið eyði- lögð, að álitið er að það muni þurfa 10 járnbrautarlestir, hverja með 50 vögnum, til að vinna 365 daga á ári í 16 ár til að hreinsa miðhluta borgarinnar svo hægt væri að byggja hana upp aftur. iHobi Indíánar í Arizona eru fyrirmynd- ar menn, segir Warid Shepard, eftirlits- maður þeirra. Þeir hafa lifað friðsömu lífi í Iþúsund ár, án þess að hafa stjórn, og hafa alið upp börn sín þannig, að þau hafa meiri áhuga fyrir velferð þjóðar sinnar heldur en velgengni sjálfra þeirra. Þeir standa hærra hvað vitmuni snertir heldur en alment gjörist. En sumir segja þeir geti ekki gjört að gamni sínu, því þeir sjá aldrei neitt hlægilegt í erfiðleikum eða óhöppum annara. Hann gat ekki beðið til morguns Huamani selur bækur fyrir Lake Titi- caca trúboðið. Hann er Indíáni. Einn dag er hann var að skila bókum i litlu þorpi, fann hann að kaupmaður sem pantað hafði bækur hj á honum var ekki heima, og frétti hann yrði burtu í fleiri daga. Árangurslaust reyndi hann að fá ein- hvern af mönnum hans að taka bækurnar fyrir hann, svo hann fór til heimilis hans og stakk upp á að kona hans tæki bækurn- ar og borgaði fyrir þær það sem eftir stóð. Konan svaraði: “Maðurinn minn talaði ekkert um að eg tæki á móti eða borgaði fyrir neinar bækur, svo eg get það ekki.” Bókasölumaðurinn sagði henni að hann færi burt úr þorpinu með Bus snemma næsta morgun og manni hennar mundi þykja mikið slæmt ef hann fengi ekki bæk- urnar, og lagði að henni með að taka þær, en hún lét sig ekki, svo Huamani fór á gistihúsið til að sofa þar um nóttina. Nú kom nokkuð óvænt fyrir. Kaup- maðurinn kom heim sömu nóttina og spurði konu sína strax hvort nokkur hefði komið með ibækur. Meðan hann var að ferðast mundi hann alt í einu eftir bókunum og að þær áttu að koma einmitt þennan dag, svo hann sneri heim umsvifalaust, til þess að vera viss um að hann misti ekki af bók- unum. Konan sagði honum að maður hefði komið með bækur, en að hún hefði ekkert vitað um þær, svo hún vildi ekki taka þær. Hún sagði honum líka að bóksalinn færi •burt úr þorpinu snemma morguns og stakk upp á að hann færi að mæta honum á Bus stöðinni. Maðurinn svaraði: “Eg get ekki látið mér koma dúr á auga fyr en eg finn mann- inn og fæ bækurnar.” Þetta var eftir mið- nætti, en hann fór út í þorpið og heimsótti hvert gistihúsið eftir annað. Loks kom hann að því seinasta, barði á dyr og kall- aði hástöfum um leið. Húsbóndinn var harðsofandi og vaknaði ekki, en bókasölu- maðurinn heyrði hávaðann og fór til dyra. Hann gat ekki opnað hurðina en kallaði upp hver væri úti og hvað hann vildi. Kaupmaður sagði frá hver hann var og að hann væri að leita uppi mann sem hann

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.