Stjarnan - 01.03.1949, Page 4

Stjarnan - 01.03.1949, Page 4
20 STJARNAN búinn ef við kynnum að lenda fyr en áætl- að var. Það var nístandi köld nótt, en ég fann ekki til kuldans. Það brann eldur í sál minni sem hélt mér heitum. Ég var að koma heim. Ég vildi fyrir hvern mun sjá landið mitt strax er það kæmi í augsýn.” Þesskonar hrifning ætti að gagntaka oss öll einmitt nú. Hin lánga vegferð vor er þegar á enda. Vort himneska heimkynni er örskamt í burtu. “Nóttin er bráðum liðin, dagurinn er í nánd.” Óskandher að eldur eftirvæntingarinnar vermi hjörtu vor þangað til dagur rís. Sökum þess hve áliðið er ættum vér ávalt að gæta þess að vera ávalt reiðubún- ir að breyta samkvæmt Guðs vilja. Þegar síðasta nóttin á undan syndaflóðinu nálg- aðist sagði Guð við Nóa: “Gakk þú og alt þitt fólk í örkina.” Eftir öll hin löngu og mörgu ár erfiðis og eftirvæntingar, var nú aðeins ein vika eftir þangað til hinn skelfi- legi viðburður kæmi sem eyðilagði þann heim sem þá var. Það varð að hafa hraðan á ef Nói og fjölkylda hans átti að bjargast. Þau urðu að fara inn í örkina og það taf- arlaust. Þau fylgdu leiðbeiningu Guðs og frelsuðust, en alt annað tortýndist. Guð kallar óss nú með hinni sömu al- vöru til þess að fullkomna undirbúning vorn áður en stormur hinnar guðlegu hegningar skellur yfir aftur: “Komið þér mitt fólk,” segir hann, “gakk þú þjóð rrtín inn í herbergi þitt og lyk aftur dyrunum á eftir þér, fel þig skamma stund uns reið- in er liðin hjá, því sjá Drottinn gengur út frá aðsetur stað sínum til þess að hegna íbúum jarðarinnar fyrir misgjörðir þeirra.” Jes. 26:20.21. Takið eftir því, að í bæði skiftin segir Guð komið. Hann sagði ekki við Nóa: “Farið inn í örkina,” heldur “Komið,” það var ætlun hans að vera með Nóa og fjöl- skyldu hans á komandi þrautastundum, hann ætlaði að vera með þeim þangað til stormurinn væri um garð genginn. Eins er það nú, hann segir við oss komið. Hann býður oss að vera framvegis með sér hversu dimt og ægilegt sem það kann að verða. Hversu óútmálanleg föður umhyggja fyrir oss lýsir sér í þessu. Hér sjáum vér enn merki þeirrar elsku sem yfirgengur allan skilning, sem fyrirhugaði glötuðum uppreisnar heimi frelsi og fyrirgefningu, og sendi sinn eingetinn son, sem var sæmd og gleði himinsins, til að deyja á krossin- um fyrir vorar syndir, svo vér fengjum þær fyrirgefnar “til þess að hver sem á hann trúir ekki glatist heldur hafi eilíft líf.” Jóh. 3:16. Það er þessi sama elska til vor sem seg- ir: “Komið nú og eigumst lög við, segir Drottinn, þó að syndir yðar séu sem skar- lat, skulu þær verða hvítar sem mjöll.” Jes. 1.18. og “Komið til mín allir þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, ég mun veita yður hvíld.” Matt. 11:28. Einnig, “Andinn og brúðurin segja: Kom þú, og hver sem vill hann taki ókeypis lífsvatnið.” Op. 22:17. Það er altaf, komið, alveg eins og Guð segði persónulega til hvers eins útaf fyrir sig: “Já, með ævarandi elsku hefi ég elsk- að þig, fyrir því hef ég látið náð mína haldast við þig.” Jer. 31:3. Þannig biður hann oss með kærleiks- ríkri alvöru að koma og fela oss og hann æskir þess að vér svörum með einlægni og áhuga, ekki af ótta, heldur með barnslegu trausti, ekki af því að vér séum hræddir við afleiðingarnar fyrir sjálfa oss ef vér ekki tqkum boði hans, heldur vegna þess að vér getum ekki hafnað hans ómótstæði- lega, laðandi kærleika. Hann vill vér minnumst meðaumkvun- ar hans við oss, umburðarlyndis hans kær- leika og þolinmæði, og • hans dásamlegu ráðstafana um framtíð vora í hinum kom- anda heimi, svo vér komum í skyndi þeg- ar andi hans kallar eins og unnustinn þegar hann heyrir rödd unnustu sinnar. “Felið yður,” segir hann við oss. En hvar? Ekki í einhverjum hellis skúta, eða gryfju niðri í jörðinni, eða einhverstaðar uppi á reginfjöllum, heldur við hlið hans sjálfs, öruggir og óhultir undir verndar- væng hans. í mörgum dýrðlegum loforðum, sem rituð eru einmitt1 fyrir núverandi tíma, veitir hann oss fullvissu um almáttuga vernd hvað sem fyrir kann að koma. Fyrir munn sálmaskáldsins segir hann við oss: “Sæll er sá, er situr í skjóli hins hæsta, sá er gistir í skugga hins almáttuga. Sá, er segir við Drottinn: “Hæli mitt og há- borg, Guð minn er ég trúi á, því að hann

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.