Stjarnan - 01.03.1949, Side 5
STJARNAN
21
frelsar þig úr snöru fuglarans, frá drepsótt
glöttunarinnar, Hann skýlir þér með fjöðr-
um sínum, undir vængjum hans mátt þú
hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og
verja. Eigi þarft þú á óttast ógnir nættur-
innar, eða örina sem flýgur'um daga, drep-
sóttina, sem reikar um í dimmunni, eða
sýkina sem geysar um hádegið. Þótt þús-
und fallir þér við hlið, og tíu þúsund þér
til hægri handar, þá nær það ekki til þín.
Þú horfir aðeins á með augunum, sér
hversu óguðlegum er endurgoldið. Því að
þitt hæli er Drottinn. Þú hefir gjört hinn
hæsta að þínu athvarfir, engin ógæfa hend-
ir þig, og engin plága nálgast tjald þitt, því
að þín vegna býður hann út englum sínum
til þess að gæta þín á öllum vegum þín-
um.” Sálm. 91:1-11.
Engin örk bíður vor til þess að varð-
veita oss frá hinum komandi stormi. Eng-
in örk lík Nóa örk gæti staðist þann storm.
Vér verðurm að finna vort athvarf hjá
Guði, velja hinn, hæsta oss til varnar. Lát-
um hann nú þegar vera vort hæli.
Þrumur dóms hans geysa með meiri há-
reisti dag frá degi, og vitnisburðirnir auk-
ast og margfaldast um það alt í kring um
oss að dómsdagur sé nálægur og á fleygi-
ferð keppist áfram eins og hermaður. Vér
megum því ekki tefja tímann, heldur gefa
Drotni hjörtu vor fyrir tíma og eilifð, og
gjöra það áður en tækifærið tapast fyrir
fult og alt.
Ef vér höfum látið eitthvað ógjört sem
oss bar að gjöra, ef vér höfum haldið við
einhverja synd, eða framið ranglæti sem
vér ættum að leið rétta, sé um einhverja
fórnfærslu að ræða, sem vér höfum van-
rækt, eða vingjarnlegt orð sem vér hefðum
átt að mæla, en ekki gjört, þá látum oss
ekki draga að uppfylla skyldur þær sem
vér vitum af, því nú er ekki langur tími
eftir.
“Ógæfa, já ógæfa kemur. Endirinn
kemur.” Ez. 7:6 Moffatt.
Tíminn er svo stuttur.
A. S. MAXWELL
------------4-------------
Vér kvörtum oft yfir að geta ekki fehg-
ið það sem vér óskum eftir, í stað þess
ættum vér að vera þakklátir fyrir að vér
oft fáum ekki það, sem vér verðskuldym.
Canning Trade
Varanlegar byggingar
“Líttu á þessi borg var að mestu leiti
eyðilögð með sprengjum árið 1945, en nú
eru 60 hundruðustu af henni bygt upp
aftur. Það eru engir kofar heldur. Við
reisum varanlegar byggingar.”
Þetta sagði Colonel James Hyland, yfir-
maður herstjórnarinnar í Fukui, Japan,
við fréttaritara Carl Mydans, er hann tal-
aði við hann um eftirmiðdaginn 28. júní
1948 er hann var að lýsa því hve fljótt það
gengi að endurreisa borgina, með 85 þús-
und íbúum, sem hafði verið að mestu eyði-
lögð gegn um stríðið.
Þremur klukkustundum seinna kom
jarðskjálfti. Borgin var eyðilögð. 1600
manns dóu í jarðskjálftanum og auk þess
voru 10 þúsund særðir.
“Það var engin aðvörun gefin,” sagði
símskeytið sem Mydans sendi heim. Hann
var í stjórnarbyggingunni þegar jarð-
skjálftinn kom. “Gólfið hófst upp undir
fótum vorum og stykki af steinsteypu úr
þaki og veggjum féll umhverfis okkur. Við
reyndum að komast að dyrum og glugg-
um en duttum hver um annan og féllum
á gólfið. Við dyrnar reyndi ég að halda
mér við steinstólpa, en hann hristist svo
að ég gat ekki haldið mér við hann. Stein-
steyptur keyrsluvegurinn fyrir framan
bygginguna sprakk upp méðan ég var að
komast yfir hann, og stykki af steinsteypu
féll niður úr húsinu ofan á veginn. Við
reyndum allir að liggja niður á flötinni
þegar við komumst þangað, en jörðin hrist-
ist svo ákaflega eins og popkorn á pönnu.
Gult ryk breiddist yfir borgina, svo kom
hvass vindur, fyrst úr einni átt, svo úr
annari. Það komu fyrir augnablik sem
alt var þögult, en svo heyrðist í fólki köll
og hróp sem hljómuðu um alla borgina.”
Eins og á sér stað í öllum stærri jarð-
skjálftum þá byrjaði eldurinn brátt eyði-
leggingarstarf sitt. Mydans, sem hljálpaði
yfirmönnum hersins við björgunarstarfið,
lýsti útliti borgarinnar um miðnættisleitið:
“Svo langt sem við gátum séð var alt jafnað
við jörðu og glóandi rautt meðan eldurinn
hafði eitthvað sem gat brunnið. Undir rúst-
unum mátti sjá jarðsprungur sem voru
hálft annað fet á breidd.”
í dögun var borgin eyðilögð — borgin