Stjarnan - 01.03.1949, Page 6

Stjarnan - 01.03.1949, Page 6
22 STJ AKNAN sem var bygð svo vel og varanlega. Ó- hversu lítilfjörleg eru hin mestu mann- virki í samanburði við náttúruöflin. Jafn- vel traustustu byggingar eyðileggjast þeg- ar jörðin hristist og hreifist. í Fukui var sjölyft bygging úr stáli og steinsteypu, það var Daiwa verslunarhúsið, varanlega bygt. Það hristist hallaðist, sprakk, brotnaði og féll smámsaman. Seinna heims stríðið, með allri þess eyðileggingu á borgum, stórhýsum og minnismerkjum, sýnir oss hvað öll verk manna eru lítilsvirði. Þessi síðasti jarð- skjálfti minnir oss á að “Fegurð þessa heims hverfur.” “Hið sýnilega er tíman- legt en hið ósýnilega eilíft.” 2 Kor. 4:18. Guð bendir á þetta fyrir munn spá- mannsins er hann segir: “Hinn vitri hrósi sér ekki af sinni visku, og hinn sterki hrósi sér ekki af styrkleika sínum, og hinn auðugi hrósi sér ekki af auð sínum, held- ur hrósi hver sér af því, sá er vill hrósa sér, að hann sé hygginn og þekki mig, að það er ég, Drottinn, sem auðsýni miskunsemi, rétt og réttlæti á jörðinni, því að á slíku hef ég velþóknan segir Drottinn.” Jer. 9:23-24. Spyrjið sálmaskáldið. “Drottinn, hver mun setjast í þína tjaldbúð? Hver mun búa á þínu heilaga fjalli? Sá, sem fram gengur flekklaus, gjörir rétt og talar sannleikann af hjarta.” Sálm. 15:1-2. Það sem Guð metur mest er hreint hjarta og heilagt líferni. Enginn jarð skjálfti,, eldur eða önnur slys geta eyði- lagt það. Það er meira virði en allar jarðn- eskar eignir, það stendur gegn um allar skelfingar. Hinn guðdómlegi spádómur segir fyrir að sá mesti jarðskjálfti sé ennþá í fram- tíðinni. Jóhannes postuli sá hann í sýn: “Himininn hvarf eins og samanvafið bók- fell, og hvert fjall og ey færðist úr stöðvum sínum. Konungar jarðarinnar, höfðingjar og hershöfðingjar, auðmenn og ríkismenn, þegn og þræll fólu sig í hellum og hömrum fjalla. Og sögðu til fjallanna og hamranna: Hrynjið yfir oss og felið oss fyrir ásjónu þess sem á hásætinu situr og fyrir reiði lambsins, því nú er kominn sá mikli dagur hans reiði. Hver fær nú staðist?” Op. 6:14-17. Öll mannvirki verða einkisvirði á þeim degi. En þeir sem hafa undirbúið hjarta sitt munu geta staðist. Þeir eiga það sem varanlegt er. Mitt í umturnun náttúrunnar munu þeir líta upp og segja: “Sjá þessi er vor Guð vér vonuðum á hann að hann mundi frelsa oss. Þessi er Drottinn. Vér vonuðum á hann. Fögnum og gleðjumst yfir hjálpræði hans.” Jes. 25:9. Með öruggri fullvissu vænta þeir frels- 'unar, því þeir hafa bygt og þroskað guð- dómlegt innræti. Þeir hafa bygt varanlega. F.A.S. -----------+----------- Dr. Davíð Paulson Þegar Dr. Davíð Paulson var lítill dreng- ur týndi hann vasahnífnum sínum. Fyrir hann var það næstum eins alvarlegt eins og ef einhver tapaði bílnum sínum nú á dögum. Hann leitaði og leitaði og fann ekki hnífinn. Loks sagði hann við sjálfan sig: Guð veit hvar hnífurinn minn er ég ætla að biðja hann að hjálpa mér að finna hann. Hann féll nú á kné og bað, fór svo aftur að leita og fann hnífinn. Ekkert er svo lítil- fjörlegt að Guð veiti því ekki eftirtekt. Enginn smáfugl fellur til jarðar án vilja hans. “Jafnvel öll yðar höfuðhár eru talin,” segiir Jesús. Honum er velþóknanlegt að vér leggjum fram fyrir hann það smæðsta engu síður en hið stæðsta. Ó hve dásamlegt að ei'ga slíkan föður. C.O.G. -------------*------------- Bandaríkja fólk notar um 380 egg að meðaltali fyrir hvern mann yfir árið. ♦ ♦ ♦ San Francisco, Californía hefir fleiri talsíma í samanburði við fólksfjölda held- ur en nokkur önnur borg heimsins. Þar er einn talsími fyrir hverja tvo íbúa. Wash- ington, D.C. hefir lítið eitt færri að tiltölu við fólksfjölda. ♦ ♦ ♦ Árið 1800 voru 6.1 manns fyrir hverja ferhyrningsmílu í Bandaríkjunum. Árið 1900 voru það 25.6. En nú eru 48.2 íbúar fyrir hverja ferhyrningsmílu að meðaltali. ♦ ♦ ♦ Slys út um landið kostuðu bændur í Ameríku 19.500 mannslíf árið 1947.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.