Stjarnan - 01.10.1951, Page 8

Stjarnan - 01.10.1951, Page 8
80 STJARNAN STJARNAN AuUiorized aa second class mall, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ontario. Ritstjðrn og afgreiBslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man., Can. Eitt er nauðsynlegt / Maður nokkur kom til Jesú og sagði: „Meistari, seg þú bróður mínum að skifta með mér arfi okkar“. Jesús gaf honum, og lokkur þessa aðvörun: „Gætið þess að var- ast alla ágirnd, því þótt einhver hafi alls- nægtir, þá er líf hans ekki trygt með eigum hans“. Lúk. 12:13.—15. Annað skifti kom Marta til Jesú og sagði: „Herra, hirðir þú ekki um að systir mín lætur mig eina ganga um beina. Seg þú henni að hjálpa mér“. Jesús svaraði: „Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu, en eitt er nauðsynlegt. María hefir valið góða hlutann“. Lúk. 10:40.-42. Hvað er hið eina nauðsynlega? Hvað er góða hlutskiftið? Jesús sagði: „Leitið fyrst Guðs ríkis og hans réttlætis“. Matt. 6:33. Það veitti tímanlega blessun að vera Guði trúr í tíundum og fórnum. Mal. 3:10. Það er líka trygging fyrir tímanlegri bless- un að leita fyrst Guðs ríkis og hans rétt- lætis. Að tilheyra „litlu hjörðinni“, gefur ör- ugga tryggingu fyrir því, að Guð mun á- byrgjast allar nauðsynjar lífsins handa þeim. Drottinn segir til vor: „Vertu ekki hrædd litla hjörð, því að föður yðar hefir þóknast að gefa yður ríkið“. Þeir sem fyrir Guðs ríkis sakir hafa lagt í sölurnar það sem þeim var kærast í þessum, heimi, munu fá það „margfalt aftur á þessum tíma og í hinum komandi heimi eilíft líf“. Lúk. 12:32 og 18:30. Að leita Guðs, láta sér nægja það sem menn hafa og þannig þroska kristilegt innræti það „hefir fyrirheit bæði fyrir þetta líf og hið tilkomanda“. Hvort sem þú hefir mikið eða lítið, þá er gott að vera ánægður með það sem maður hefir. Ef vér eigum of annríkt til að sinna andlegum efnum þá þurfum vér að breyta til í því efni. Það er tími til kom- inn að menn hætti að meta mest jarð- nesk gæði og eignir í þessum heimi, en leiti heldur sannra auðæfa, þekkingar á Guði og hlýðni við vilja hans. Guðs orð ætti að vera oss kærara held- ur en dagleg fæða og hans lögmál dýr- mætara heldur en þúsundir gulls og silfurs. Alt sem hindrar guðsþjónustu vora og samfélag vort við hann er skaði. Guðs orð og þekkingin á skapara vorum veitir oss alt sem þarf „til sannarlegs lífs og , guðrækni“. Það er ekkert loforð gefið um líf og nægtir fyrir þá sem safna sér fjársjóðum á jörðu, en eru ekki ríkir hjá Guði. Þeir sem afsaka sig svo þeir geti litið betur eftir eigin hagsmunum, í stað þess að þiggja boðið til að sitja brúðkaup lambsins, munu verða afsakaðir og útilokaðir. Ef Guð hefir aðeins lítið pláss 1 hugs- un þinni og lífi þínu, þá athugaðu alvar- lega að þú líður skaða við það, þú getur ekki treyst fallvöltum auði. „Gætið yðar að hjörtu yðar ofþyngist ekki við svall og drykkjuskap, og áhyggju fyrir lífinu“. Lúk.' 21:34. „Því að hverju gagni kæmi það mann- inum, þó hann eignaðist allan heiminn, en liði tjón á sálu sinni?“ Mark. 8:36. Harvey C. Hansen ----------☆---------- Allir talsímar sem finnast í Thailand eru í höfuðborginni Bangkok. ☆ ☆ ☆ Mentamálaráðgjafi Egypta, sem sjálfur er blindur, hefir mikinn áhuga fyrir því að allir Egyptar læri að lesa og fái yfh- höfuð betri mentun heldur en kostur hefit verið á að undanförnu. Hann er að berj- ast fyrir því að skólamentun fáist ókeypis- ☆ ☆ ☆ Farallon eyjarnar, sem eru aðeins 26 mílur frá San Francisco hafa aðeins 30 íbúa. Frá 1812 til 1833 bjuggu rússneskif selveiðamenn á eyjum þessum. ☆ ☆ ☆ „Leitið fyrsi Guð ríkis og hans rétt- lætis“. Þá mun Guð ábyrgjast yður allaE nauðsynjar lífsins hér, og innan skamms gefa yður sitt Dýrðlega ríki þar sem alt er réttlæti, friður og fögnuður í heilögum anda.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.