Stjarnan - 01.12.1951, Qupperneq 1
STJARNAN
DESEMBER 1951 LUNDAR, MANITOBA
Er trú þín veruleiki?
Er Jesús Kristur einkavinur þinn?
Fagnar þú tækifærinu að mæta honum
að morgninum, gleðst þú yfir félagsskap
hans allan daginn og treystir honum ör-
uggur þegar nóttin kemur? Getur þú sest
niður og talað við hann um viðfangsefni
þín, sagt honum frá vonbrigðum þínum
og því sem gleður þig og gengur þér að
óskum? Kannast þú við að hann er þinn.
frelsari, og að helzta áhugamál hans er
að hjálpa þér til að lifa sigursælu lífi hér,
°g svo flytja inn í heimilið sem hann er
að undirbúa fyrir þig?
Er ekki alt þetta fyrir þig? Er það ekki
það sem þú þráir, væntir eftir og biður
um, en hefir ennþá ekki hlotnast? Finnur
þú stundum til hrygðar þegar aðrir segja
frá hvernig þeir finna til Guðs nálægðar
°g sjá, hvernig hann stjórnar öllu þeim
til blessunar, meðan þú sættir þig við áð
fylgja settum trúarbragðareglum, en finn-
ur þó til þess að þig skortir hinn andlega
lífskraft?
Veruleiki er alveg nauðsynlegur í and-
legri reynslu. En sumir skilja ekki að
veruleiki geti átt sér stað í andlegum
efnum. Er ekki hið andlega ósýnilegt og
óáþreifanlegt? Vissulega er það, og það
er erfitt fyrir skilning vorn að grípa þann
veruleika, að ósýnilegar og andlegar verur
eru félagar vorir og bænir til ósýnilegs
Guðs fá áheyrn og eru uppfyltar, og að
Guðs ósýnilegi heilagi andi getur tekið
sér bústað í hjörtum manna og ummynd-
að líf þeirra.
En sannfæring um þennan veruleika
er alveg nauðsynleg til að geta öðlast og
viðhaldið kristilegri reynslu. Slík sann-
færing er ekki ímyndun, því hið andlega
or fullkomlega eins verulegt eins og hið
osýnilega loft sem þú andar að þér og hið
undraverða rafmagn sem lýsir hús þitt,
og hið ósýnilega afl sprengjuéfnisins sem
molar sundur klettana. Hvað veruleg eru
trúarbrögð þín fyrir þig?
Fáir safnaða meðlimir efast um veru-
leika frelsunaráformsins. Jesús kom til
að frelsa heiminn. Hann er skaparinn og
endurlausnarinn. Návist hans, holdtekja,
heilagt líferni, fórnardauði hans, upprisa
hans, meðalgangara embætti hans og
endurkoma hans, alt þetta er viðurkent af
kristnum mönnum. En þegar til þess kem-
ur að kannast við og segja: „Ég veit að
Jesús er frelsari minn, hann dó fyrir mig
og hann hefði dáið fyrir mig þó ég hefði
verið sá eini 1 heiminum sem þurfti sálu-
hjálpar“, þá hika margir. Hvers vegna?
Blátt áfram vegna þess að þeir hafa aldrei
náð fullkomnum skilningi á veruleika
frelsunarinnar í Kristi.
Jafnvel þótt fagnaðarerindið sé sett
fram í orðum sem ná yfir alt mannkynið
til dæmis: „Svo elskaði Guð heiminn“,
(Jóh. 3:16.) „Mannsins sonur kom til að
leita þpss, sem glatað var og frelsa það“,
(Lúk. 19:10.) og „Hann dó fyrir alla“,
(2Kor. 5:15.), þá skulum vér minnast þess
að Jesús dó ekki fyrir alla sem heild, held-
ur fyrir hvern einstakan meðlim mann-
kynsins. Vér getum hugsað um biljónir
íbúa jarðarinnar sem þjóðir, Ameríku-
menn, Brazilíumenn, Kínverja, Englend-
inga o. s. frv. En athygli Guðs er beint að
einstaklingnum, aS þér. Honum er eins ant
um velferð þína eins og þó þú værir hinn
eini maður eða kona í heiminum.
Jesús reyndi að gjöra þetta skýrt fyrir
oss er hann sagði: „Eru ekki fimm spörvar
seldir fyrir tvo smápeninga og þó er ekki
einn af þeim gleymdur fyrir Guði, meira
að segja, jafnvel hárin á höfði yðar hafa.
öll verið talin, verið óhræddir, þér eruð
meira verðir en margir spörvar“. Lúk.