Stjarnan - 01.07.1953, Síða 4

Stjarnan - 01.07.1953, Síða 4
52 STJARNAN Hann gaf oss fyrirmynd í fullkominni hlýðni við föðurinn. Hjarta sem fylt er af elsku til Guðs getur eins og hann sagt: „Að gjöra þinn vilja minn Guð er mér yndi, og lögmál þitt er hið innra í mér.“ Hinn síð- asti söfnuður Guðs verður hlýðinn öllum skyldum sínum bæði til Guðs og manna. Þegar Jesús kemur aftur þá má segja þetta um þá sem vænta hans: „Hér eru þeir sem varðveita boðorð Guðs og trúna á Jesúm.“ Ef allir íbúar heimsins vildu taka Jesúm sér til fyrirmyndar, þá yrðu engar mis- munandi trúarkenningar, og engin hræsni í líferni manna, þá þyrftu menn engar friðarnefndir og engar vopnaverksmiðjur. Þá yrði engin þörf fyrir lögreglumenn, því enginn mundi stela, myrða, hata eða fremja nokkra aðra glæpi. Þá mundi kærleiki, gleði og friður ríkja alstaðar meðal manna. —W. B. OCHS ----------☆---------- „Glatt hjarta veitir góða heilsubót" Ástand hjartans og hugarfarsins er mjög áríðandi. Hjartveiki er helzta dauða- meinið í Bandaríkjunum nú sem stendur. Hinn vitri hefir mikið að segja um ásig- komulag hjartans og gefur beztu ráðlegg- ingu til lækningar hjartveiki. Þessi sjúkdómur hefir farið mjög í vöxt síðustu áratugi, þetta orsakast án efa mikið af áhyggjum manna yfir ástandinu milli þjóða og einstaklinga nú á tímum. „Þessi vandræða veröld“, er algeng setning í út- breiddustu dagblöðum stórborganna. Það má óhætt fullyrða, að íbúar heimsins hafa aldrei liðið eins mikið, vegna stríðs og ófriðartíðinda, vegna óráðvendni hærri stétta mannfélagsins, og vegna sundrunga heimilanna, eins og nú. Hjartað er miðstöð tilfinninganna. Alt sem vér gjörum og verður oss að vana á rót sína ,að rekja til tilfinninga vorra. Af þessu leiðir að tilfinningar vorar, elska, hatur, gleði eða sorg hefir beinlínis áhrif á hið líkamlega ásigkomulag hjartans. Til- finningalíf vort og líkami vor er ein heild. Það sem hefir áhrif á annaðhvort þeirra hefir áhrif á hvorutveggja. Heilbrigðisráð Salómons hafa aldrei verið meir áríðandi en nú. Nú kunna menn að spyrja: „Hvað er glatt hjarta? Hvernig geta menn öðlast það?“ „Glatt hjarta veitir góða heilsubót“, segir Salómon. Glatt hjarta sýnir sig í hug- rekki og öruggleik. Þetta er í samræmi við skipun Krists: „Verið hughraustir“, ekki aðeins við viss tækifæri, heldur altaf í sorg og mótlæti engu síður en þegar alt gengur að óskum. „f heiminum munuð þér hafa þrenging.“ Þrenging meinar ákafleg vandræði og erfiðleika. Glatt eða ham- ingjusamt hjarta er það sem væntir betri tíma og gleðst stöðugt í voninni um þá. Traust á Guði og meðbræðrum vorum er grundvöllurinn sem hugrekki og rólyndi byggist á. Sorg er allra manna hlutskifti. Jesús grét við gröf Lazarusar. En hann var viss um að sjá vin sinn aftur, því hann sagði lærisveinum sínum: „Ég fer nú til að vekja hann.“ Glatt hjarta er það sem hefir örugga, stöðuga trú og von undir öllum kringumstæðum. Ritningin gefur mörg dæmi upp á glatt hjarta mitt í þyngstu erfiðleikum. Páll og Sílas eru dæmi upp á það. Þeir höfðu verið barðir, bundnir og fætur þeirra settir í stokk, en þeir sungu lofsöngva. Glatt hjarta missir aldrei von- ina, og vonin er ein af þeim eiginleikum sem eru varanlegir. Hvernig getum vér öðlast þessa gleði og hugrekki? Ég skal nú fyrst taka því fram, að það heimtar ákveðið áform að eignast glatt hjarta fult af hugrekki. Áður en Jesús bauð lærisveinum sínum að vera hughraustir mitt í þrengingum, þá hafði hann sagt þeim að vera stöðugir í honum. „Ég er vínviðurinn, þér eruð greinarnar, sá sem er stöðugur í mér og ég í honum, hann ber mikinn ávöxt.“ Ef Jesús býr í hjartanu þá finnast þar allar dygðir og þar á meðal kærleiki, gleði og friður. Þetta eru ávextir andans ásamt öðrum dygðum, sem upp eru taldar og fylla glatt hjarta. Salómon segir, þegar hann talar um mann, sem leitar eftir hamingju: „Eins og hann hugsar svo er hann.“ Þetta er aðal- atriðið. Að hugsa rétt er góð byrjun, en það er ekki nóg. Vér þurfum að láta í ljósi ■hugsanir vorar. Það er hægt að gjöra bæði í orði og verki. Vingjarnlegt orð eða hjálp- semi getur breytt lífsstefnu annars manns og jafnvel vorri eigin. „Eins og þér viljið að aðrir breyti við yður, svo skuluð þér og

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.