Stjarnan - 01.07.1953, Blaðsíða 7
STJARNAN
55
inn á hina erfiðu braut. En vér getum
verið viss um að elskandi vinur er þar
með oss. Hans náð nægir oss. Sorgarganga
vor leiðir oss til dýrðlegs sigurs ef vér
viljum læra að biðja eins og Jesús bað:
„Ekki minn heldur verði þinn vilji.“
Þegar vér fetum lífsferil vorn í þeim
anda, þá verður öll vor reynsla oss til
blessunar. I gegn um sérhverja erfiða sorg
eða reynslu sem oss mætir hefir Guð ein-
hverja gjöf handa oss ef vér aðeins viljum
þiggja hana. En vér lokum hjörtum vorum
fyrir þeirri gjöf, ef vér möglum og kvört-
um og viljum ekki taka lífinu eins og oss
ber að gjöra með undirgefni undir Guðs
vilja.
Eftir því sem vér vinnum fleiri sigra og
öðlumst meiri reynslu þá munum vér sjá
að Guðs vegur er bezti vegurinn, og eini
rétti vegurinn. Þá munum vér vilja taka
undir með gamla negra bróðurnum og
biðja af hjarta: „Faðir, verði þinn vilji í
lífi mínu sem á himni.“
—MRS. E. E. ANDROSS
Ský í loftinu
Ameríkumaður einn reyndi að fá vega-
bréf til Tyrklands. Tyrkneski sendiherrann
lagði fram nokkrar spurningar viðvíkjandi
hinni fyrirhuguðu ferð hans, og sagði
hvers vegna hann kæmi með þessar spurn-
ingar: „Þú veist það eru ský á hreyfingu
í loftinu.“
Skýin myrkva loftið venjulega á undan
illviðri. í táknmyndamáli eru skýin fyrir-
boði voðalegra atburða, stríðs og óeirða.
Zefanía spámaður segir: „Hinn mikli dagur
Drottins er nálægur, hann er nálægur og
hraðar sér mjög. Heyr, dagur Drottins.
Beisklega kveinar þá kappinn. Sá dagur er
dagur reiði, dagur neyðar og þrengingar,
dagur eyðingar og umturnunar, dagur
nayrkurs og níðdimmu, dagur skýþyknis og
skýsorta, dagur lúðra og herblásturs gegn
víggirtum borgum og háum múrtindum.“
Zef. 1:14.-16. Tyrkland er ekki hið eina
land, sem hefir myrku skýin á hreyfingu
yfir höfði sér.
Starfsmenn Guðs ríkis verða að hraða
sér með að flytja fagnaðarboðskapinn út
um allan heim, áður en óviðrið skellur á.
Sendiboði Guðs veit að hin myrka nótt er
í nánd, svo hann verður að láta til sín
heyra og aðvara fjöldann tafarlaust.
Þegar Jesús fór frá lærisveinum sínum
á Olíufjallinu, þá nam ský hann frá augum
þeirra. Þeim fanst þetta sorgardagur, en
svo komu tveir menn til þeirra í hvítum
klæðum, hughreystu þá og sögðu: „Þessi
Jesús, sem var uppnuminn frá yður til
himins, mun koma á sama hátt og þér sáuð
hann fara til himins.“ Post.. 1:11.. Meðal
þessara lærisveina var Jóhannes postuli.
Hversu hrifinn hlýtur hann að hafa verið,
þegar hann nálægt 60 árum seinna sá x sýn
sinn elskaða Drottinn og herra koma aftur.
Hrifinn í anda segir hann: „Sjá, hann kem-
ur í skýjunum og hvert auga mun sjá hann,
og jafnvel þeir sem stungu hann, og allar
kynkvíslir jarðarinnar munu kveina yfir
honum.“ Op. 1:7. Eftir að Guðs börn hafa
verið með Jesú þúsund ár í húsi föðursins,
þá mun hann ásamt þeim koma aftur til
jarðarinnar, svo verður jörðin hreinsuð
af synd og syndurum, og ummynduð og
endursköpuð til sinnar upprunalegu feg-
urðar. Þá uppfyllist spádómurinn í 2 Sam.
23:4. „Hann er eins og dagsbirtan, þegar
sólin rennur upp á heiðríkju morgni,
þegar grasið sprettur í glaða sólskini eftir
regn.“
Þannig er heiðskír morgun notaður sem
táknmynd upp á réttlætis og friðarríki
Krists. Þá, en ekki fyr, rætist það að
„Jörðin mun verða full af þekkingu á
dýrð Drottins, eins og djúp sjávarsins er
vötnum hulið.“ Habakuk 2:14.
Þegar vér því sjáum þykna í lofti af
ófriðarskýjum, þá minnumst spádómanna,
hressum upp hugann og hlýðum áminn-
ingunni um að leita Drottins „meðan hann
er að finna, og ákalla -hann „meðan hann
er nálægur.“
„Lítið upp og upphefðjið yðar höfuð
því lausn yðar er í nánd.“
—R. H. HARTWELL