Stjarnan - 01.02.1954, Page 3
STJARNAN
11
Framtíðarvon Guðs barna
„Jesús fór burt að tilbúa okkur stað“.
Jóh. 14:2.—3. Þegar hann kemur í skýjun-
um mun hann taka öll Guðs börn heim
til sín. „Því sjálfur Drottinn, með höfuð-
engilsraust, og með básúnu Guðs mun
stíga niður af himni, og þeir sem dánir eru
í trú á Krist munu fyrst upp rísa, síðan
munum vér sem lifum, sem eftir erum,
verða ásamt þeim hrifnir burt í skýjum,
til fundar við Drottinn í loftinu, og síðan
munum vér vera með Drotni alla tíma“.
1 Þess. 4:16.—17.
Þessi heimur og öll mannvirki í honum
verða eyðilögð.
„En dagur Drottins mun koma sem
þjófur, og þá munu himnarnir með miklum
gný líða undir lok, frumefnin sundur-
leysast í brennandi hita, og jörðin og þau
verk sem á henni eru, upp brenna“.
2 Pét. 3:10.
Guð mun skapa nýján himin og nýja
jörð upp úr þessari jörð, þegar hún hefir
verið hreinsuð með eldi.
„Því sjá, ég skapa nýjan himin og nýja
jörð, og hins fyrra skal ekki minst verða
og það skal engum í hug koma“. Jes. 65:17.
Hinir endurleystu munu erfa jörðina
og búa þar eilíflega.
„Sælir eru hógværir, því að þeir munu
landið erfa“. Matt. 5:5.
Hin nýja Jerúsalem verður höfuðborg
nýju jarðarinnar.
„Og ég sá nýjan himin og nýja jörð,
því að hinn fyrri himin og hin fyrri jörð
var horfin, og hafið er ekki framar til. Og
ég sá borgina helgu, nýju Jerúsalem, stíga
niður af himni frá Guði, búna sem brúði
er skartar fyrir manni sínum“. Op. 21:
1 — 2.
Hinir endurleystu munu hafa verulegan
heim að búa og starfa í.
„Því sjá, ég skapa nýjan himin og nýja
jörð, og hins fyrra skal ekki minst verða
. . . . Þeir munu reisa hús og búa í þeim,
og þeir munu planta víngarða og eta
ávöxtu þeirra". Jes. 65:17.—21.
Enginn söknuður eða dauði dregur úr
hamingju hinna endurleystu.
„Hann mun þerra hvert tár af augum
þeirra, dauðinn mun ekki framar til vera,
hvorki harmur né vein né kvöl er framar
til“. Op. 21:4.
Engin endurminning sorgar eða þján-
inga liðinna tíma mun skyggja á sælu Guðs
barna á hinu nýja heimili þeirra.
„Hins fyrra skal ekki minst verða og
það skal engum í hug koma“. Jes. 65:17.
Það eru viss skilyrði, sem allir verða að
mæta til að fá inngang í borgina helgu.
„Sælir eru þeir sem breyta eftir hans
boðorðum, svo þeir nái að komast að lífs-
trénu, og megi innganga um borgarhliðin
inn í borgina". Op. 22:14.
„Hættið og viðurkennið að
ég er Guð"
—Sálm. 6:10
Þetta er skipun. Hversu oft þegar vér
vorum börn ámintu foreldrar vorir oss um
að vera kyrlát. Vera má vér töluðum of
mikið eða gjörðum annan hávaða. Full-
orðna fólkið vildi fá að tala, eða hvíla sig,
svo oss var boðið að vera kyrlát.
En í þessum texta er Guð ekki að tala
við börn heldur við menn og konur. Hann
býður þeim að vera hljóð. Tilgangur hans
með þetta er að menn megi öðlast þekk-
ingu, læra að þekkja hann, og það er eilíft
líf að þekkja hann og þann sem hann sendi,
Jesúm Krist.
Það er nær því ómögulegt í þessum
hringlandi, hávaðasama heimi að finna
pláss þar sem alt er kyrt og hljótt. Alt er
á ferð og flugi. En mitt í hávaða og glaumi
lífsins býður Drottinn oss að hætta eða
vera hljóðir. Þér finnst ef til vill erfitt að
fmna stund til að leggja til hliðar annríki
lífsins og hugsa um Guð, en það er sá
típai sem bezt er varið. Ef þú getur fundið
rólegt pláss, sest niður, hvílt þig, hugsað
og beðið til Guðs í hálfan klukkutíma, þá
munt þú við það öðlast bæði líkamlega og
andlega hressingu.