Stjarnan - 01.07.1954, Blaðsíða 6
54
STJARNAN
risu Krists, þrátt fyrir alla erfiðleika og
ofsóknir, sem þeir mættu. Þá munum vér
mæta píslarvottunum, sem liðu ofsóknir
og pyntingar fyrir sannleikans málefni og
innsigluðu trú sína með blóði sínu. Þar
munu foreldrarnir mæta börnum sínum,
og börnin umfaðma foreldra sína. Konan
mun mæta manni sínum, sem dauðinn
hreif frá henni, og eiginmaðurinn mun
aftur sjá sína elskuðu, sem hann syrgði
svo mjög. Já, allir sem hér hafa elskað
frelsarann og þráð tilkomu hans, munu
aftur mætast þar og njóta eilífs friðar og
fagnaðar. Hvílíkur fagnaðardagur það
verður. Látum oss því „gleyma því, sem
bak við oss er, en seilast eftir því, sem
fyrir framan er, og skunda til takmarksins,
til þess himneska hnossins, sem Guð fram-
býður oss fyrir Jesúm Krist“.
—N. P. NEILSEN
-----------*-----------
Undirbúningur undir komu
Krists
„Hver sem hefir þessa von til hans
hreinsar sjálfan sig eins og hann er
hreinn“. 1. Jóh. 3:3.
„Óttastu Guð og haltu hans boðorð, því
það á hver maður að gjöra, því Guð mun
leiða sérhvert verk fyrir dóm, sem hald-
inn verður yfir öllu því, sem hulið er,
hvort sem það er gott eða ilt“. Préd.
12:13.-14.
„Hver sem brýtur eitt af þessum
minstu boðorðum, og kennir mönnum
það, hann mun verða kallaður minstur í
himnaríki“. Matt. 5:19.
„Þótt einhver héldi alt lögmálið, en
hrasaði í einu atriði, þá er hann orðinn
sekur við öll boðorð þess“. Jak 2:10.
„Liðið er á nóttina, en dagurinn er í
nánd, leggjum því af verk myrkursins og
klæðumst hertýjum ljóssins. Framgöng-
um sómasamlega eins og á degi, ekki í
ofáti né ofdrykkju, ekki í ólifnaði né
saurlífi, ekki í þrætu né öfund, heldur
íklæðist Drotni Jesú Kristi, og alið ekki
önn fyrir holdinu svo að það verði til að
æsa girndir“. Róm. 13:12.—14.
-----------------------
Japan hefir um 1500 jarðskjálfta á ári
hverju, segir Washington „Star“, eða svo
sem svarar 4 kippi hverja 24 klukkutíma.
„Leitið fyrst Guðs ríkis"
Mannfjöldinn, sem hlýddi á ræðu
Krists, beið með óþreyju eftir að fá eitt-
hvað að heyra viðvíkjandi ríki Gyðinga.
Sú spurning, sem var efst í huga margra,
meðan Jesús var að sýna þeim hina him-
nesku fjársjóði, var á þessa leið: munum
vér tryggja oss betri framtíð hér í heimin-
um, ef vér göngum honum á hönd? Jesús
sýnir þeim, að þegar tímanlegir hlutir séu
mesta umhugsunarefni þeirra, þá líkist
þér heiðingjaþjóðunum, sem bjuggu í ná-
grenni við þá, og lifðu eins og enginn Guð
væri til, er ber kærleiksríka umhyggju
fyrir því, sem hann hefir skapað.
„Eftir öllu þessu sækjast heiðingjarn-
ir“. „Yðar himneski faðir veit, að þér
þarfnist alls þessa. En leitið fyrst Guðs
ríkis og hans réttlætis, og þá mun og alt
þetta veitast yður að auki“. Lúk. 12:30.
Ég er kominn til að opna fyrir yður ríki
kærleikans, réttlætislns og friðarins. Opn-
ið hjörtu yðar og meðtakið þetta ríki, og
látið það vera yðar háleitasta áhugamál
að veita því þjónustu. Enda þótt það sé
andlegt ríki, skuluð þér ekki bera kvíð-
boga fyrir því, að ekki verði séð fyrir því,
sem þér þurfið með til þessa lífs. Ef þér
gangið í þjónustu Drottins, þá mun hann,
sem hefir alt vald á himni og jörðu, veita
yður það, sem þér þarfnist.
Jesús leysir oss ekki undan því að
gjora skyldu vora í því að afla oss dag-
legs brauðs; en hann segir, að vér eigum
að láta hann vera hið fyrsta, hið síðasta og
hið bezta í öllu. Vér megum ekki fást við
nein fyrirtæki, nein störf eða sækja neinar
þær skemmtanir, er hindra það, að rétt-
læti hans komi í ljós í lunderni voru og
líferni. Hvað helzt, sem við gjörum, verð-
um vér að gjöra af hjarta eins og það væri
fyrir Drottin.
Meðan Jesús dvaldi hér á jörðunni,
sýndi hann fram á hina háleitu þýðingu
lífsins í öllum atriðum þess, með því að
halda dýrð Guðs fram fyrir mönnunum og
með því að taka vilja Föðursins fram yfir
alt. Ef vér fylgjum dæmi hans, þá ábyrg-
ist hann oss, að alt, sem er nauðsynlegt
fyrir þetta líf, muni veitast oss „að auki“.
Fátækt eða auðæfi, sjúkdómar eða heil-
brigði, einfeldni eða vizka — fyrir öllu
þessu er séð í fyrirheitinu um náð hans.