Stjarnan - 01.09.1956, Qupperneq 3

Stjarnan - 01.09.1956, Qupperneq 3
STJARNAN 67 við sjálfan sig. Loks vann hann sigur og gaf Guði hjarta sitt. „Verði þinn vilji.“ Eftir tvo klukkutíma heyrði Moody að maðurinn kom inn um bakdyrnar, gekk upp stigann og hiklaust inn í herbergið til hægri handar. í hvaða herbergi ætlar þú að hvílast í nótt? Hefir þú gefið Guði hjarta þitt svo þar ríki friður og gleði, eða ert þú ennþá flæktur í fjötrum syndarinnar, vonlaus og órólegur? Jesús kallar á þig að koma og fylgja sér. Framtíð þín er undir því komin hvaða ákvörðun þú tekur nú. Jesús segir: „Ef þér elskið mig þá haldið þér mín boðorð.“ Minstu þess, að einhvern tíma, ef til vill fyr en þú býst við, verður síðasta nótt þín í þessum heimi. Hvenær munt þú vakna? í upprisu réttlátra, eða upprisu hinna glötuðu? Ásettu þér nú að vera meðal hinna frelsuðu. —F. W. DETAMORE --------------------- Hver syndgaði fyrst? „Hver sem syndina gjörir er af djöflin- um, því að djöfullinn syndgar frá upphafi; til þess birtist Guðs sonur, að hann niður- bryti djöfulsins verk.“ 1. Jóh. 3:8. Áður en þessi heimur var skapaður var voldugur engill á himni, yfirskyggjandi Kerub, Lúsifer, sem hafði háa stöðu meðal englanna. Hann fór að finna svo mikið til sín, varð öfundsjúkur og stofnaði upp- reisn á himni. Hvaða stríð var Jóhannes postuli látinn sjá í sýn? „Eftir þetta hófst stríð á himni. Mikael og hans englar stríddu á drekann, en drekinn og hans englar stríddu ámóti.“ Op. 12:7. Hver var Mikael? Nafnið Mikael þýðir: „Líkur Guði.“ í Júdas 9. versi er Mikael kallaður höfuðengillinn, og í 1. Þess. 4:16. lesum vér að höfuðengillinn kallar til lífs- ins hina réttlátu sem hvílast í gröfunum. Jóhannes postuli bendir á að það er Krist- ur, sem kallar þá framliðnu til lífsins. „Eins og faðirinn hefir lífið í sjálfum sér, svo gaf hann og syninum að hafa lífið í sjálfum sér og hann hefir gefið honum vald til að halda dóm, því hann er manns- ins son. Undrist ekki yfir þessu því sá tími mun koma að allir þeir sem í gröf- unum eru munu heyra hans raust og þeir * munu ganga út.“ Samkvæmt þessum orð- um Ritningarinnar er Mikael Kristur. Hver var þessi dreki sem nefndur var? „Og var þeim mikla dreka, þeim gamla höggormi, sem kallast djöfull og satan, honum sem afvegaleiðir alla menn, kastað niður á jörðina. Hvaða tignarstöðu hafði satan á himni áður en hann gjörði uppreisn?“ „Svo segir Drottinn alvaldur, þú varst einhver hinn gjörvilegasti maður, mesti vitsmunamaður og fullkominn að fegurð. Þú bjóst í Eden aldingarði Guðs, varst þakinn alls konar dýrum steinum, sardíus tópas, beryllus, krísólítus, sardónyx, jaspis, safír, karbúnkúlus, smaragdus og gulli. Þann dag er þú komst var þér fagnað með bumbuslætti og pípublæstri. Þú varst yfir- skyggjandi kerúb, sem útbreiðir vængi sína og hafði sett þig á Guðs heilaga fiall .... þér lék alt 1 lyndi .... þar til guðleysið varð opinbert um þig.“ Ez. 28:12.-15. Hvað orsakaði fall satans? „Þitt hjarta varð upphrokað af þinni fegurð. Þú vanbrúkaðir vitsmuni þína sökum þinnar vegsemdar prýði.“ Ez. 28:17. Drambsemi og ágirnd leiddi satan til falls. Hvað ágirntist satan? Hann vildi fá þá hærri stöðu, sem Kristur hafði. „Hvernig ertu af himni ofan fallin, þú, hin fagra morgunstjarna? Hvernig ertu tií jarðar niður hruninn, þú, sem varla virtir þjóðirnar viðlits? Þú sagðir í þínu hjarta: Ég vil upp stíga til himins, upp yfir stjörnur Guðs vil ég setja hásæti mitt. Ég vil setjast að á samkundufjallinu lengst uppi í norðri. Ég vil stíga upp á hæðir skýjanna og líkur verða hinum allra hæsta.“ Jes. 14:12.—14. Hvað gjörði Guð við satan af því að hann vildi ekki að uppreisn héldi áfram á himni? „Honum (satan) var kastað út, og engl- um hans var kastað út með honum.“ Op. 12:9. Hve mikill hluti englanna tók þátt í uppreisn Lúsifers? „Hann dró með sporðinum þriðjung

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.