Stjarnan - 01.09.1956, Qupperneq 8
72
STJARNAN
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Office Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price
$1.00 a year. Publishers: The Can. Union
Conference of S. D. A., Oshawa Ontario.
Ritstjðrn og afgreiðslu annast:
MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Can.
„Fallegi borðdúkurinn minn er alveg
eyðilagður.“
Ég tók dúkinn, hljóp með hann út í
eldhús og lét vatnið renna yfir blettinn,
en það gagnaði ekkert. Ég fór inn aftur
og leit á blekflöskuna, á henni stóð:
„Litfast.“ En ég vildi nú samt ekki gefast
upp við svo búið, svo ég bar sápu á blett-
inn og nuggaði og nuggaði, svo náði ég 1
flösku með einhverju efni 1, sem ætlað
var til þess að ná lit úr taui og burstaði
blettinn vandlega upp úr því.
Þetta vann. Blekbletturinn hvarf og dúk-
urinn varð snjóhvítur sem áður. Nú skol-
riði ég allan dúkinn í vatni og hengdi hann
út í sólskinið til að þorna. Nú leit ég aftur
á hvar bletturinn hafði verið, hann var
skamt frá einu horninu. En hvert hornið
var það? Þau voru nú öll fannhvít. Dúk-
urinn var alveg eins fallegur og hann
var áður.
Um leið og ég gekk inn í húsið aftur
datt mér í hug Biblíuvers. „Að syndir yðar
verði afmáðar.“
Það var nærri ótrúlegt hvernig svarti
bletturinn hafði hreinsast burt. En svona
fer Guð með syndir vorar, þegar hann
fyrirgefur þær. Hann afmáir þær og
minnist þeirra aldrei framar.
Ég hélt áfram skylduverkum dagsins
með innilegri þakklætisbæn í hjarta mínu.
„Þvo mig hreinan af minni misgjörð,
hreinsa mig af minni synd .... þvo mig
með ísópi af' synd, svo ég verði hreinn,
þvo þú mig svo ég verði hvítari en snjór.“
Sálm. 51:2.—7.
—MADGE H. MORILL
------------☆-----------
Árlega deyja 25—35 þúsund manns af
höggormsbiti í Asíu, 3,000 í Suður-
Ameríku, 300—500 í Norður-Ameríku að
Mexico meðtaldri, aðeins örfáir í Evrópu,
en fjöldi í Afríku. Menn vita engar ’tölur
á því þar.
„Ef nokkur þjónar mér, sá fylgi mér, og
hvar sem ég er þar mun og þjónn minn
vera, og þann sem mér þjónar, mun faðir-
inn heiðra.“ Jóh. 12: 26.
„Sá sem sigrar, hann skal skrýðast
hvítum búningi og hans nafn skal ég ekki
afmá af lífsbókinni; ég skal kannast við
hans nafn fyrir mínum föður og fyrir
hans englum.“ Op. 3:5.
„Sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og
varðveita það.“
-----------☆-------------
Fyrsta auglýsingabók (catalogue) til að
panta vörur eftir var gefin út í Banda-
ríkjunum árið 1872. Þá voru aðeins 163
vörutegundir á listanum, nú auglýsir
sama félag 100,000 tegundir af varningi
til sölu.
☆ ☆ ☆
Fyrsti neðansjávarbátur, U.S.S. Hallánd,
sem sjóherinn notaði, var smíðaður árið
1899 og kostaði 236,600 dollara. Sjóherinn
keypti hann fyrir 150,000. Neðansjávar-
bátar, sem nú eru bygðir kosta um 10
miljónir dollara.
☆ ☆ ☆
Fjórtán hundruðustu fleiri konur heldur
en menn hafa mist allar tennur sínar, er
þær ná 70 ára aldri.
☆ ☆ ☆
Brezkir hermenn í hitabeltinu geta
fengið smjör í ílátum, sem geyma það
ferskt í tvö ár.
☆ ☆ ☆
Trjáþlöntudagur (Arbor day) var fyrst
haldinn í Nebraska 10. apríl 1872. Þá voru
yfir ein miljón tré gróðursett í Banda-
ríkjunum.
☆ ☆ ☆
Nútíðar neðarsjávarbátur tekur styttra
en eina mínútu til að fara alveg í kaf.
Hann getur farið með meiri hraða undir
vatninu heldur en ofan sjávar.
☆ ☆ ☆
Fimti hver bíll, sem nú er í Bandaríkjun-
um hefir þegar verið keyrður 80 þúsund
mílur.
☆ ☆ ☆
Eitt af útbreiddustu smáritum Banda-
ríkjastjórnarinnar er: Meðferð ungbarna.
Það hefir verið endurbætt átta sinnum og
þýtt á 8 tungumál. Útbreiðsla þess er yfir
30 miljón eintök.