Stjarnan - 01.12.1956, Side 2

Stjarnan - 01.12.1956, Side 2
90 STJARNAN hans sé ávalt í samfélagi við Guð. Hann finnur sig líka knúðan til að tala við ást- vini sína og aðra um það eina nauðsynlega svo þeir einnig verði viðbúnir þegar Jesús kemur. Hinn vantrúaði aftur á móti er hugsunarlaus um andleg efni og er því óviðbúinn. Á undan flutningsdeginum verður líka að hreinsa húsið. Alt er rannsakað og því er kastað burtu, sem er einskisvert. Ef vér rannsökum líf vort finnum vér ef til vill eitthvað, sem mundi hindra flutning- inn, til dæmis vondan vana eða leyndar syndir. Sumt hjá oss má vera að ekki sé ilt, en þó alls ekki gagnlegt eða nauðsyn- legt, þegar að því kemur að flytja. Hjá flestum vor á meðal eru það smásynd- irnar sem hindra. En synd, jafnvel hin minsta verður að sópast í burt áður en vér getum flutt til hinna himnesku bústaða. Hið sorglegasta við bústaðaskipti er að skilja við góða gamla vini. Jesús hefir gefið oss tækifæri til að gjöra þeim aðvart um komu sína, svo þeir einnig geti verið viðbúnir og fylgst með oss. Við erum fljótir að segja vinum vorum frá nýja heimilinu, sem vér væntum að flytja inn í hér í heimi, en ég óttast fyrir að vér séum ekki eins áhugasamir með að segja þeim frá hinu indæla heimili á hinni nýju jörð og hvetja þá til að tryggja sér pláss þar, með trú og hlýðni við fagnaðarerindi Krists. Að flytja þung húsgögn og hlaða kassa ofan á kassa er erfitt verk. En vér þurfum ekki að hafa fyrir neinu þess háttar þegar Jesús kemur. Þá skiljum vér eftir allar vorar jarðnesku eigur, þær verða allar einskis virði. Hið eina sem þá er nokkurs virði er göfugt hugarfar og hjarta hreinsað af allri synd fyrir blóð hins flekklausa, lýtalausa lambsins Krists. Mánuðinn sem við vorum að leita að hæfilegu heimili fyrir fjölskylduna slitum við út tveimur landabréfum, sem sýndu götur og byggingar borgarinnar. Vér höf- um líka landabréf af hinni himnesku borg, það er í Biblíunni og sýnir hvernig vér getum komist þangað. Það er vegur kross- ins. Jesús er þangað undan oss genginn og hefir skilið oss eftir óræk vegamerki. Hann sagði: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið.“ Jóh. 14:6. Jesús hefir dásamlega framtíð fyrir þá sem elska hann: „Hjörtu yðar skelfist ekki né hræðist. Trúið á Guð og trúið á mig. í húsi Föður míns eru mörg híbýli, væri ekki svo hefði ég sagt yður það. Ég fer burt að tilbúa yður stað og þegar ég er burt farinn og hefi tilbúið yður stað, þá mun ég koma aftur og taka yður til mín svo að þér séuð þar sem ég er.“ Jóh. 14:l.-3. Þegar vér flytjum til annarar borgar verðum vér að kynnast nýjum nágrönnum og taka tillit til þeirra. En á voru nýja himneska heimkynni verðum vér öll bræður og systur, börn sama himneska Föður. Líf vort verður fullkomnara og ánægjulegra, og skilningur vor skýrari. Vér munum njóta hamingju lífsins í fylsta mæli, sitja við fætur hins mikla kennara og læra af honum það sem hér var ofvaxið skilningi vorum. Alheimurinn verður lærdómsbók- vor. Ég vil vera tilbúin þegar Jesús kemur. Óskar þú þess ekki líka? —PHYLLIS SOMERVILLE ------------☆----------- Annað sporið til frelsunar „Sú hrygð sem er eftir Guði aflar sálu- hjálplegrar betrunar sem enginn iðrast eftir, en veraldleg hrygð veldur dauða.“ 2. Kor. 7:10. Eftir að syndarinn hefir sannfærst um synd sína fyrir áhrif Guðs anda, þá er næsta sporið að iðrast hennar og snúa frá henni. Til er tvenns konar iðrun, önnur er hrygð yfir að hafa gjört rangt, hin er að- eins hrygð yfir að þurfa að mæta afleið- ingunum. Hvað gerði faðir tunglsjúka drengsins þegar hann sá þörf sína fyrir að fá hjálp hjá Kristi? „Faðir sveinsins grét hástöfum og sagði: Ég trúi, en hjálpa þú trúarleysi mínu.“ Mark. 9:23. Hvernig lýsir Jóel spámaður sannri iðrun? „Þess vegna, svo segir Drottinn, snúið yður nú til mín af öllu hjarta, með föstum, gráti og kveini.“ Jóel 2:12. Hvað sagði Davíð þegar hann skildi synd sína? „Ég vil játa minn misgjörning og gráta mína synd.“ Sálm. 38:18.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.