Fréttablaðið - 13.02.2019, Síða 4

Fréttablaðið - 13.02.2019, Síða 4
 Það hefur verið vitað allan tímann að stjórnvöld eru ákveðinn lykill að þessu máli. Drífa Snædal, forseti ASÍ www.apotekarinn.is - lægra verð Nýtt Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum. Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. ERT ÞÚ MEÐ HÁLSBÓLGU? Bólgueyðandi og verkjastillandi munnúði við særindum í hálsi Strefen-sprey-Apotekarinn-5x10.indd 1 03/10/2018 14:55 DÓMSMÁL Átján ára piltur var í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur í tveggja og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku í febrúar 2017. Pilturinn var þá 16 ára og hafði verið í fjögurra mánaða sambandi með stúlkunni. Pilturinn var einnig dæmdur fyrir ólögmæta nauðung fyrir að hafa læst herbergi stúlkunnar. Hann handlék hníf, tók stúlkuna hálstaki, sló höfði hennar utan í vegg og nauðgaði henni. Stúlkan bar að hann hefði glott á meðan. Fram kemur í dómnum að frá- sögn ákærða um það að hann hafi fengið samþykki stúlkunnar hafi breyst þrisvar. – ab Skilorð fyrir að nauðga kærustu KJARAMÁL „Það hefur verið vitað allan tímann að stjórnvöld eru ákveðinn lykill að þessu máli. Við erum ekki að fara að semja um launahækkanir ef þær brenna svo bara upp annars staðar, hvort sem það er í skattkerfinu eða á hús- næðismarkaðnum. Hver sú niður- staða verður á eftir að koma í ljós,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ, um stöðuna í kjaraviðræðum. Hún segir ýmislegt undir í sam- tali aðila vinnumarkaðarins við stjórnvöld. „Það er verið að reyna að púsla saman myndinni á mörgum vígstöðvum en ég er ekki búin að sjá neinar tillögur frá stjórnvöldum í skattamálunum.“ Halldór Benjamín Þorbergs- son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), telur skilaboð stjórnvalda skýr. „Mér finnst stjórn- völd hafa gefið mjög skýrt til kynna að forsenda fyrir aðkomu þeirra sé sú að kjarasamningar séu á loka- metrunum og að þeir séu skynsam- legir.“ Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir það ljóst að krafa sé gerð um að menn hafi í byrjun næstu viku einhverja vitneskju um hvað stjórnvöld ætli að gera. Fundað verður í deilu SA og fjög- urra stéttarfélaga hjá ríkissátta- semjara í dag . „Það var talað um að Samtök atvinnulífsins myndu koma með eitthvað varðandi launaliðinn þannig að við verðum bara að sjá hvernig þeir bregðast við þar. Ég held það liggi alveg fyrir að lang- lundargeð stéttarfélaganna sé nú að verða að þrotum komið og hef trú á því að ögurstund muni renna upp í næstu viku,“ segir Vilhjálmur. Halldór Benjamín var ekki tilbú- inn til að greina frá því hvað SA ætli að koma með að borðinu. „Við sjáum hverju fram vindur á fund- inum. Það er samt mikilvægt að það verði leitt til lykta hvernig við sjáum þessar kjaraviðræður þróast áfram.“ Efling kynnti í gær niðurstöður könnunar sem gerð var meðal félagsmanna sinna. Tæp 80 pró- sent þeirra telja kröfugerð félags- ins sanngjarna og sama hlutfall er hlynnt því að fara í verkfall til að knýja á um þær kröfur. Þá sögðust 63 prósent félagsmanna hafa miklar eða mjög miklar fjárhagsáhyggjur. Vilhjálmur segir þessar niður- stöður segja meira en mörg orð um stöðuna. „Það er í mínum huga alveg ljóst að verkalýðshreyfingin er til- búin að láta kné fylgja kviði í því að skapa þessu fólki áhyggjulausara umhverfi en það þarf að búa við í dag. Það þurfa allir, atvinnurek- endur, stjórnvöld og verkalýðs- hreyfingin, að vera með í þessari vegferð. Ef menn gera það ekki er alveg ljóst í hvað stefnir. Þetta er engin hótun, þetta er staðreynd.“ sighvatur@frettabladid.is Telur ögurstundu renna upp í kjaraviðræðum í næstu viku Forseti ASÍ segir að reynt sé að púsla myndinni í kjaraviðræðum saman á mörgum vígstöðvum en engar tillögur í skattamálum liggi fyrir frá stjórnvöldum. Fundað verður hjá ríkissáttasemjara í dag og vonast stéttarfélögin til að SA sýni á einhver spil varðandi launaliðinn. Langlundargeð þeirra sé á þrotum. Halldór Benjamín Þorbergsson og Vilhjálmur Birgisson heilsast á fundi hjá ríkissáttasemjara. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR STJÓRNS ÝSLA Bjarni Benediktsson, f jármála- og efnahagsráðherra, hefur sent stjórnum fyrirtækja í eigu ríkisins bréf þar sem þess er farið á leit að þær geri grein fyrir því hvernig brugðist var við tilmælum ráðuneytisins um að gæta varkárni við launaákvarðanir. Fyrrgreind tilmæli voru send í janúar 2017 og síðan ítrekuð í júní 2017. Samtímis var bréfið sent Bankasýslu ríkisins. Áður voru ákvarðanir um kjör forstjóra ríkis- fyrirtækja teknar af kjararáði en með breytingum á lögum um ráðið færðist það vald til stjórna fyrir- tækjanna, eða Bankasýslu ríkisins í tilfelli ríkisbankanna, þann 1. júlí 2017. Sú tilfærsla hafði meðal annars í för með sér að laun forstjóra ISAVIA hækkuðu um 36 prósent, forstjóra Íslandspósts um 25 prósent og for- stjóra Landsbankans og Landsvirkj- unar um tæp 60 prósent. Þá var sagt nýverið frá því í Fréttablaðinu að laun bankastjóra Landsbankans hefðu hækkað um sautján prósent 1. apríl í fyrra og hafa þau hækkað um 82 prósent frá því að starfið færðist undan kjararáði. Í hópi stjórnarmanna sem fá bréf fjármálaráðherra nú er Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, en hún á sæti í stjórn Íslandspósts. – jóe Óskar þess að stjórnarmenn geri grein fyrir hækkunum forstjóra Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Fjármálaráðherra gaf 2017 fyrirmæli um launa- mál fyrirtækja í ríkiseigu. D Ó M S M Á L Heilbr igðisstof nun Suður lands, HSU, ber að upplýsa lækni um nöfn tveggja einstaklinga sem tilkynntu stofnuninni um að hann hefði verið í annarlegu ástandi í útkalli í lok maí 2015. Læknirinn var á bakvakt þegar hann var kall- aður út, á vettvangi var lögregla og sjúkraflutningamenn. HSU bárust tvær tilkynningar frá fólki sem var á vettvangi. Læknirinn var sendur í leyfi í nokkra daga. Hann vildi vita hverjir hefðu til- kynnt en fékk synjun frá HSU. Vísaði hann sy njuninni til úrskurðarnefndar upplýsingamála sem úrskurðaði í lok janúar að læknirinn fengi að vita hverjir til- kynntu um meint ástand hans. – ab Fær að vita hverjir klöguðu Sjúkrabíll. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 3 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 4 F -0 C F 8 2 2 4 F -0 B B C 2 2 4 F -0 A 8 0 2 2 4 F -0 9 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.