Fréttablaðið - 13.02.2019, Page 6

Fréttablaðið - 13.02.2019, Page 6
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður- nesjum hefur til rannsóknar kyn- ferðisbrot þar sem grunur leikur á að konu hafi verið byrluð ólyfjan á skemmtistað í Reykjanesbæ þannig að hún hafi ekki getað spornað við því að brotið væri gegn henni. Samkvæmt tilkynningu frá lög- reglu í gær hefur lögreglu borist af því spurnir að fleiri konur hafi lent í sömu aðstæðum á skemmtistöðum í umdæminu að undanförnu án þess að kærur hafi borist vegna þeirra tilvika. Lögreglan vill af þessu tilefni vekja athygli á þessu og hvetja fólk til að sýna fyllstu aðgát en telja má víst að verulega truflað fólk blandi efnum út í drykki fólks á skemmti- stöðum með þessum afleiðingum. Jafnframt beinir lögreglan því til starfsfólks á skemmti- stöðum að fylgjast vel með gestum, kalla eftir aðstoð lögreglu og aðstoða gesti eftir atvikum ef einhver grunur leikur á lyfja- byrlun. – smj Varað við lyfjabyrlurum G R A N D I – L I N D I R – S K E I FA N – E L K O . I S SAMSUNG 55’’ UHD SNJALLSJÓNVARP UE55NU7105XXC 134.995 EÐA 12.033 KR. Á MÁNUÐI M.V. 12 MÁN. VAXTAL. - ALLS 144.400 KR. - ÁHK 13,30% 69.995 EÐA 6.427 KR. Á MÁNUÐI M.V. 12 MÁN. VAXTAL. - ALLS 77.125 KR. - ÁHK 19,80% Kaupa & prófa elko.is/brostrygging hdr10+ SAMSUNG THE FRAME 43” - 65” SNJALLSJÓNVÖRP UE43LS03NXXC UE49LS03NXXC UE55LS03NXXC UE65LS03NXXC Á MÁNUÐI Í 12 MÁNUÐI 15.915 179.995 EÐA 15.915 KR. Á MÁNUÐI M.V. 12 MÁN. VAXTAL. - ALLS 190.975 KR. - ÁHK 11,53% 43” 239.995 EÐA 21.090 KR. Á MÁNUÐI M.V. 12 MÁN. VAXTAL. - ALLS 253.0755 KR. - ÁHK 10,32% 55” afhverju ekki bæði! sjónvarp eða listaverk? TCL 55” UHD SNJALLSJÓNVARP 55DP600 4k DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- ness dæmdi í síðasta mánuði ungan mann í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn skólasystur sinni í útskriftarferða- lagi vorið 2015. Var maðurinn sak- felldur fyrir að hafa, þegar hann var nýorðinn 16 ára, káfað innanklæða á brjóstum, rassi og kynfærum skólasystur sinnar, stungið fingri inn í leggöng hennar gegn vilja hennar þar sem hún lá sofandi til hliðar við hann á dýnu á gólfi skál- ans þar sem gist var. Samkvæmt dómnum þarf piltur- inn að greiða stúlkunni 1,5 millj- ónir í miskabætur og ríf lega 1,6 milljónir í sakarkostnað. – smj Braut gegn skólasystur Forstjóri Íslandspósts fékk 20 milljónir í laun árið 2017 en lögmanni fyrir- tækisins var á sama tíma greidd 31 milljón króna. VIÐSKIPTI Á síðastliðnum sex árum hefur Íslandspóstur ohf. (ÍSP) greitt lögmannsstofunni Juris rúmlega 121 milljón króna vegna starfa Andra Árnasonar, eins eigenda stofunnar, fyrir fyrirtækið. Þetta kemur fram í svari ÍSP við fyrir- spurn Fréttablaðsins. Hæstar urðu greiðslurnar til Juris vegna starfa Andra árið 2017. Þá námu þær tæplega 31 milljón króna. Til samanburðar námu laun Ingi- mundar Sigurpálssonar, forstjóra ÍSP, það ár um 20 milljónum króna samkvæmt ársreikningi. Störf Andra fyrir félagið hafa að stórum hluta falist í að gæta hags- muna ÍSP við meðferð mála sem tengd eru fyrirtækinu fyrir Sam- keppniseftirlitinu. Á tímabili hafði Samkeppniseftirlitið til rannsóknar níu meint brot ÍSP á samkeppnis- lögum. Meðferð þeirra lauk með sátt fyrirtækisins við eftirlitið í febrúar 2017. Þar játaði ÍSP engin brot og var ekki gerð sekt en þurfti aftur á móti að grípa til ýmissa aðgerða til að bæta samkeppnis- hætti sína og samkeppnisaðstæður á póstmarkaði. Fyrirtækið ÍSP var fært undir gildissvið upplýsingalaga í ársbyrj- un 2013 og hefur Pósturinn tekið þann pólinn í hæðina að af henda ekki gögn sem urðu til fyrir það tímamark. Af svari fyrirtækisins nú má sjá að greiðslur til Juris hafi farið hækkandi eftir því sem nær dró endalokum rannsóknar SKE. Greiðslurnar námu tæpum tíu millj- ónum árið 2013, fjórtán milljónum 2014, 24 milljónum bæði árið 2015 og 2016 og loks rúmum átján millj- ónum í fyrra. Vinna Andra fyrir Póstinn hefur ekki aðeins takmarkast við með- ferð mála hjá SKE heldur hefur hann einnig komið að málum sem eru til meðferðar hjá Póst- og fjarskipta- stofnun, úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála og að endingu málum ÍSP fyrir almennum dómstólum. Þá vann Andri einnig umsögn Póstsins við frumvarp til nýrra póstþjón- ustulaga sem er til meðferðar fyrir þingi og andmæli ÍSP í málum fyrir úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Fyrir jól fór ÍSP fram á það við ríkið að fá heimild til að taka allt að 1,5 milljarða neyðarlán til að mæta bráðum lausaf járvanda. Nú þegar hefur fyrirtækið fengið 500 milljónir króna að láni. Lánið hyggst ÍSP endurgreiða með aftur- virku 2,6 milljarða króna fram- lagi úr jöfnunarsjóði alþjónustu þó allt bendi til að ekki séu upp- fyllt lagaskilyrði til úthlutunar úr sjóðnum. Þá skuldar fyrirtækið nú þegar Landsbanka Íslands, sem er að nær öllu leyti í eigu ríkisins, ríf- lega milljarð króna. Samhliða versnandi fjárhags- stöðu hafa laun stjórnarmanna og forstjóra Íslandspósts tekið nokkr- um hækkunum en frá árinu 2014 og til ársins 2017 hafa laun forstjórans hækkað alls um rúm fimmtíu pró- sent. Laun stjórnarmanna hafa hækkað um 65 prósent frá árinu 2014 til ársins 2018. joli@frettabladid.is Pósturinn varði 121 milljón í lögmannsþjónustu á sex árum Árið 2017 fékk lögmaður Íslandspósts, Andri Árnason hjá Juris, meira greitt en forstjóri fyrirtækisins, 31 milljón króna. Samtímis hafa laun stjórnarmanna og forstjóra hækkað um ríflega fimmtíu prósent. Störf lögmannsins fyrir Íslandspóst hafa að miklu leyti falist í meðferð fjölda mála fyrir samkeppniseftirlitinu. Frá útibúi Íslandspósts í Pósthússtræti sem fyrirtækið lokaði eftir síðustu jólavertíð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Andri Árnason, lögmaður hjá Juris. Konu var byrluð ólyfjan á öldurhúsi. 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 3 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 4 F -2 0 B 8 2 2 4 F -1 F 7 C 2 2 4 F -1 E 4 0 2 2 4 F -1 D 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.