Fréttablaðið - 13.02.2019, Side 14
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5000
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
Fjárfestingasjóður í stýringu evrópska vogunarsjóðsins Teleios Capital bætti í liðinni
viku við sig ríf lega tveimur millj-
ónum hluta í Marel, að virði um
940 milljónir króna, og fer nú með
samanlagt 7,3 milljónir hluta í félag-
inu, samkvæmt nýjum lista yfir
stærstu hluthafa þess. Jafngildir það
um 1,07 prósenta eignarhlut.
Með kaupunum í síðustu viku
varð sjóðurinn, sem ber heitið
Teleios Global Opportunities,
sautjándi stærsti hluthafi Marels.
Markaðsvirði eignarhlutar sjóðs-
ins nemur tæplega 3,3 milljörðum
króna miðað við núverandi gengi
hlutabréfa í félaginu.
Eins og fram hefur komið í Mark-
aðinum keypti fjárfestingasjóður-
inn í lok síðasta mánaðar hann
samanlagt fjórar milljónir hluta á
genginu 402 krónur á hlut. Síðan
þá hefur gengi bréfanna hækkað
um hátt í 11 prósent en þar af hafa
bréfin hækkað um ríflega 10,5 pró-
sent í verði eftir að félagið birti
sterkt uppgjör fyrir fjórða fjórðung
2018 fyrir réttri viku.
Þess má geta að markaðsvirði
Marels fór í fyrsta skipti yf ir
300 milljarða króna á mánudag.
Teleios Capital, sem var stofn-
aður árið 2013, var með eignir
upp á samtals um einn milljarð
Bandaríkjadala, jafnvirði um 120
milljarða íslenskra króna, í stýr-
ingu síðastliðið haust en sjóður-
inn fjárfestir einkum í skráðum
evrópskum félögum í Norður- og
Norðvestur-Evrópu. – kij
Bætir við sig í Marel fyrir um milljarð
Árni Oddur
Þórðarson,
forstjóri
Marels. milljarðar króna er
mark að s virði eignarhlutar
Teleios Global Opportun
ities í Marel.
3,3
TIL SÖLU VERSLUNAR-
OG
ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI
NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA 564 2488 OG
skarpur@simnet.is
Verslun ásamt skerpingarverkstæði, sem þjónustað
hefur byggingariðnaðinn í 35 ár er til sölu.
Reksturinn er tvískiptur, Innflutningur, sala á sagarblöðum,
fræsitönnum og öðrum verkfærum fyrir tré- og málmiðnaðinn
annars vegar og hins vegar skerping á sagarblöðum og ýmsum
bitverkfærum fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Fyrirtækið hefur ávallt verið leiðandi á sínu sviði og hefur
yfir að ráða fullkomnum tölvustýrðum skerpingarvélum
fyrir flestar gerðir sagarblaða og verkfæra.
Velta fyrirtækisins var um 40 miljónir á síðasta ári og
felast talsverðir stækkunarmöguleikar í auknum innflutningi.
Allur núverandi rekstur er til sölu ásamt vélum, vörubirgðum
og viðskiptasamböndum. Í dag starfa tveir starfsmenn
hjá fyrirtækinu.
Greinendur Capacent meta gengi
hlutabréfa í Högum á 60,6 krónur
á hlut í nýju verðmati eða allt að
38 prósent hærra en markaðsgengi
bréfanna eins og það var eftir lokun
markaða í gær. Telja þeir kaup smá-
sölurisans á Olís, sem gengu í gegn
í lok nóvember í fyrra, auka virði
félagsins um 10 prósent.
Í verðmati ráðgjafarfyrirtækis-
ins, sem Markaðurinn hefur undir
höndum, er bent á að lægri framlegð
og minni sala á þriðja ársfjórðungi
rekstrarárs félagsins – frá ágúst
til nóvember í fyrra – skýri lakari
af komu Haga á tímabilinu. Ljóst
sé að félagið hafi ekki komið allri
gengisveikingu krónunnar
strax út í verðlag. Þá bendi
f lest til þess að lægri fram-
legð sé til marks um aukna
samkeppni á smásölu-
markaði.
Greinendur Capa-
cent nef na að
við kaup Haga
á Ol ís mu n i
velta félagsins
aukast um ríf-
lega 40 pró-
sent og verða,
s a m k v æ mt
áætlun Capa-
cent, um 108,6 milljarðar króna
fyrsta heila starfsárið. Sameiningin
bjóði upp á töluverða möguleika til
hagræðingar og þá geti tækifæri
falist í breiðu vöruúrvali og þróun
netverslunar.
Verðmat sérfræðinga Capacent á
sameinuðu félagi hljóðar upp á 73,5
milljarða króna, eða sem samsvarar
60,6 krónum á hlut, en til saman-
burðar er verðmat á óbreyttum
rekstri Haga um 55,2 krónur á hlut.
Nemur munurinn um tíu prósent-
um. Greinendurnir taka þó fram
að mikil óvissa ríki enn um rekstur
sameinaðs félags. – kij
Sameiningin auki virði
Haga um tíu prósent
38%
hærra meta greinend
ur Capacent gengi
Haga en það var
við lokun mark
aða í gær. Kaupþing, stærsti hlut-haf i Arion banka með um þriðjungs-hlut, undirbýr nú sölu á stórum hlut sínum í bankanum,
að öllum líkindum að lágmarki
samtals tíu prósenta hlut. Gert er
ráð fyrir að salan fari fram á næstu
vikum, mögulega strax síðar í þess-
um mánuði, samkvæmt heimildum
Markaðarins. Miðað við núverandi
gengi bréfa Arion banka á hluta-
bréfamarkaði er tíu prósenta hlutur
í bankanum metinn á um 14,5 millj-
arða króna.
Áform Kaupþings gera ráð fyrir
að söluferlið fari fram með til-
boðsfyrirkomulagi (e. accelerated
bookbuild offering) þar sem hlutir
í bankanum verða seldir í gegn um
fjárfestingarbanka og verðbréfa-
fyrirtæki til fjárfesta á verði sem er
nálægt því sem bréfin eru að ganga
sölum og kaupum á á markaði. Slíkt
ferli felur í sér að tilboð er þá gefið
út til hóps fjárfesta og þeim gefinn
mjög stuttur frestur, aðeins einn
eða tveir dagar, til að skrá sig fyrir
hlutum í bankanum.
Kaupþing og vogunarsjóðurinn
Attestor Capital, sem fer núna með
7,15 prósenta hlut í Arion banka,
seldu sem kunnugt er samanlagt um
29 prósenta hlut í hlutafjár útboði
bankans í júní í fyrra. Við skráningu
Arion banka í kjölfarið á hluta-
bréfamarkað í Svíþjóð og á Íslandi
var Kaupþingi, ásamt Att estor,
Taconic Capital, Och-Ziff Capital
og Goldman Sachs, óheimilt að eiga
viðskipti með bréf sín í bankanum í
sex mánuði. Þeim söluhömlum lauk
20. desember síðastliðinn. Goldman
og vogunarsjóðirnir þrír komu fyrst
inn í hluthafahóp Arion banka
þegar þeir keyptu tæplega 30 pró-
senta hlut af Kaupþingi í bankanum
í mars árið 2017.
Selji Kaupþing tveggja prósenta
hlut eða meira í Arion banka, eins
og félagið stefnir að, þá mun vog-
unarsjóðunum og Goldman Sachs
bjóðast að koma inn í þau viðskipti
og selja á sama gengi í hlutfalli við
skráða eignarhluti þeirra í bank-
anum (pro rata). Það er á grund-
velli samkomulags sem Kaupþing
og aðrir stærstu hluthafar Arion
banka gerðu með sér um skipulegt
söluferli eftir að söluhömlum yrði
aflétt, samkvæmt heimildum Mark-
aðarins. Ólíklegt er hins vegar talið
að aðrir en Attestor muni á þessum
tímapunkti selja í samf loti með
Kaupþingi en vitað er að vogunar-
sjóðurinn lítur ekki á eignarhlut
sinn í Arion banka sem langtíma-
fjárfestingu.
Þrátt fyrir að samanlagður eign-
arhlutur Kaupþings og Taconic
Capital, sem á 9,99 prósenta hlut
í Arion banka, sé tæplega 43
prósent þá takmarkast heildar-
atkvæðisréttur þeirra í bankanum
við þriðjungshlut. Það grundvall-
ast á ákvörðun Fjármálaeftirlitsins
um að Kaupþing og Taconic séu
skilgreindir sem tengdir aðilar, en
vogunarsjóðurinn er langsamlega
stærsti hluthafi eignarhaldsfélags-
ins með nærri helmingshlut. Kaup-
þing horfir því til þess, ekki hvað
síst af þessum sökum, að selja sem
fyrr segir að lágmarki tíu prósenta
hlut í bankanum.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvaða bankar og verðbréfafyrir-
tæki verða fengnir sem ráðgjafar
Kaupþings við söluferlið. Fastlega
er hins vegar gert ráð fyrir því að
þar verði einkum um að ræða þá
sömu og voru söluráðgjafar við
hluta f jár útboð Arion banka á
síðasta ári, samkvæmt heimildum
Markaðarins. Á meðal þeirra sem
hafa unnið að því síðustu vikur að
fá fjárfesta, innlenda sem erlenda,
til að koma að kaupum á stórum
hlut Kaupþings í Arion banka eru
Fossar markaðir, Kvika banki og
Íslenskir fjárfestar.
Arion banki mun birta uppgjör
sitt fyrir árið 2018 eftir lokun mark-
aða í dag, miðvikudag, en á fyrstu
níu mánuðum ársins var hagnaður
bankans rúmlega 6,1 milljarður
og dróst saman um 41 prósent frá
sama tíma fyrir ári. Þá var arðsemi
eigin fjár á tímabilinu aðeins 3,9
prósent. Hlutabréfaverð bankans
stendur núna í 79,8 krónum á hlut
og hefur hækkað um 13 prósent frá
áramótum. hordur@frettabladid.is
Undirbýr sölu á
stórum hlut í Arion
Kaupþing, stærsti hlut-
hafi Arion banka,
áformar að selja að lág-
marki tíu prósenta hlut
í bankanum á komandi
vikum. Hluturinn
verður seldur í gegn um
tilboðsfyrirkomulag.
Vogunarsjóðum mun
bjóðast að selja í sam-
floti með Kaupþingi
samkvæmt hluthafa-
samkomulagi.
32,67%
er núverandi eignarhlutur
Kaupþings í Arion banka.
Hlutabréfaverð Arion hefur hækkað um 13 prósent frá áramótum.
Finnur Árnason,
forstjóri Haga.
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN
1
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
F
-1
6
D
8
2
2
4
F
-1
5
9
C
2
2
4
F
-1
4
6
0
2
2
4
F
-1
3
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K