Fréttablaðið - 13.02.2019, Síða 16

Fréttablaðið - 13.02.2019, Síða 16
975 milljónir króna er sátta- greiðsla Gamla Byrs til Íslandsbanka. Það er skoðun stjórnar Gamla Byrs að samkomulagið sé viðunandi niðurstaða fyrir hluthafa Gamla Byrs. Úr bréfi stjórnar Gamla Byrs til hluthafa Þarna er í mínum huga lýst stjórn- sýslu sem felur í sér alvarleg brot gegn einstaklingum og fyrirtækjum sem hafa sætt rannsóknum að ósekju. Birgir Tjörvi Pétursson, héraðsdómslögmaður og einn eig- enda Lögmanna Lækjargötu Gamli Byr og Íslands­banki hafa komist að samkomulagi um að ljúka með sátt dóms­máli sem bankinn höfðaði á hendur félaginu vegna ofmats á verðmæti útlánasafns sem bankinn keypti af Byr og ríkissjóði haustið 2011. Gamli Byr, sem lauk nauða­ samningum í janúar árið 2016, mun þannig geta hafið útgreiðslur til hluthafa sinna, sem eru að stærst­ um hluta þýskir bankar og spari­ sjóðir, en slitabúið er það eina sem gekkst undir stöðugleikaskilyrði stjórnvalda sumarið 2015 og hefur ekki enn getað greitt hluthöfum sínum út þá fjármuni sem liggja inni í félaginu. Samkvæmt samkomulaginu, sem deilendur skrifuðu undir síðasta föstudag eftir nokkurra mánaða sáttaviðræður, greiðir Gamli Byr Íslandsbanka 975 milljónir króna gegn því að bankinn falli frá kröfum sínum gagnvart félaginu. Á sama tíma mun Gamli Byr inna af hendi fyrstu greiðslu til sinna kröfuhafa, þar á meðal Íslandsbanka sem á um átta prósent krafna í félaginu, samkvæmt skuldabréfum sem gefin voru út til kröfuhafa í kjölfar nauðasamnings Gamla Byrs sem samþykktur var í ársbyrjun 2016. Íslandsbanki hafði upphaf lega lagt fram kröfu á hendur Gamla Byr upp á 6,7 milljarða króna auk vaxta og einn milljarð gegn ríkinu auk vaxta en bankinn taldi að ofmat á verðmæti lánasafns Byrs hefði valdið sér fjártjóni. Bankinn borgaði samtals 6,6 milljarða króna á sínum tíma fyrir allar eignir Byrs. Gu n na r Þ ór Þ ór a r i n s s on , stjórnar formaður Gamla Byrs og eigandi ráðgjafarfyrirtækisins Askur Consulting í Lundúnum, kveðst í samtali við Markaðinn fagna því að niðurstaða hafi náðst í málinu. Stefnt að útgreiðslum í mars Í bréfi sem stjórn Gamla Byrs skrifaði hluthöfum félagsins fyrr í vikunni og Markaðurinn hefur undir höndum segist stjórnin telja að samkomulagið sé vel viðunandi fyrir hluthafana. Stjórnin hafi jafnframt áður en samkomulagið var endanlega samþykkt ráðfært sig óformlega við meirihluta hlut­ hafanna sem hafi stutt það. Í bréfinu kemur enn fremur fram að stefnt sé að því að hefja fyrstu útgreiðslur til hluthafa Gamla Byrs í næsta mánuði. Hluta greiðslnanna verði hins vegar frestað þangað til sátt náist annars vegar í deilum um vestari hluta Héðinsreitsins í Reykjavík og hins vegar um skað­ leysissjóð fyrrverandi slitastjórnar Gamla Byrs. Samkomulag Íslandsbanka, sem er alfarið í eigu ríkisins, og Gamla Byrs gerir það einnig að verkum að síðarnefnda félagið mun loks geta greitt stöðugleikaframlag til íslenska ríkisins sem verður að óbreyttu rúmlega tveir milljarðar króna. Heildareignir slitabúsins, sem eru í formi innstæðna á bankareikning­ um og í peningamarkaðssjóðum, nema um 7,8 milljörðum króna en samkvæmt stöðugleikaskilyrðum ber búinu að greiða 26 prósent af eignunum í stöðugleikaframlag. Ljóst er að ríkið mun fá – á grund­ velli sáttarinnar sem nú liggur fyrir –  um þrjá  milljarða króna í sinn hlut. Má segja að greiðslan verði þríþætt: í formi stöðugleikafram­ lags, sáttagreiðslu til Íslandsbanka og útgreiðslu til bankans sem kröfu­ hafa í slitabúinu. Lítið ágengt framan af Eins og fjallað hefur verið um í Markaðinum komust dómkvaddir matsmenn að þeirri niðurstöðu í lok síðasta árs að hátt í 1.500 lán í lánasafni Byrs, sem Íslandsbanki tók yfir og matsmönnunum var falið að verðmeta, hefðu verið ofmetin um ríf lega 2,2 milljarða króna í bókum sparisjóðsins um mitt ár 2011. Til samanburðar gerði bankinn, eins og áður sagði, kröfu á hendur Gamla Byr upp á tæplega 7 milljarða króna. Í bréfi sem stjórn Gamla Byrs sendi hluthöfum í tilefni af mats­ gerðinni sagði hún að niðurstaða matsmannanna væri skýrt merki um að krafa Íslandsbanka væri „verulega uppsprengd“. Engu að síður sagðist Gamli Byr telja að skýrsla matsmannanna væri háð ýmsum annmörkum. Hún leiðrétti ekki þá bresti sem væru á skaðabótakröfu Íslandsbanka og undirstrikaði hve mikil óvissa ríkti um kröfu bankans. Matsgerðin væri því til þess fallin að skjóta styrkari stoðum undir kröfu Gamla Byrs um að málinu yrði vísað frá dómi. Samhliða dómsmálinu, sem rekið hefur verið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur frá því í desember árið 2013, áttu Íslandsbanki og Gamli Byr reglulega í óformlegum viðræð­ um um sátt í málinu. Lítið ávannst hins vegar í sáttaviðræðunum framan af, enda bar mikið á milli, en sem dæmi hafnaði bankinn síðasta haust tillögu Gamla Byrs að sáttum, eins og greint var frá í Markaðinum. Til marks um þófið í viðræð­ unum sagðist stjórn Gamla Byrs í bréfi til hluthafa í júní í fyrra telja „óraunsætt“ eins og sakir stæðu að deilendur kæmust að samkomulagi sem báðir gætu sætt sig við. Sagðist stjórnin enn fremur hafa ástæðu til þess að ætla að Íslands­ banki væri að reyna að „þreyta“ hluthafana, sem voru orðnir lang­ þreyttir á deilunni, og neyða þá til þess að gangast undir sátt sem væri í engu samræmi við staðreyndir málsins. Austurrískir og þýskir bankar og sparisjóðir, sem eru upprunalegir lánveitendur sparisjóðsins, eiga um 60 prósent krafna í Gamla Byr, íslenskir lífeyrissjóðir um 22 pró­ sent og þá á Íslandsbanki sjálfur um 8 prósent. Greiðir Íslandsbanka nærri milljarð  Íslandsbanki og Gamli Byr hafa náð sáttum í ágreiningsmáli um virði útlánasafns sem bankinn keypti af Byr og ríkissjóði 2011. Gamli Byr greiðir bankanum 975 milljónir. Ríkið fær, beint og óbeint, yfir þrjá milljarða króna í sinn í hlut á grundvelli sáttarinnar. Í samkomulaginu er kveðið á um að Gamli Byr greiði Íslandsbanka 975 milljónir króna sem fullnaðargreiðslu á kröfu bankans og að bankinn falli í kjölfarið frá dómskröfum sínum á hendur félaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Kristinn Ingi Jónsson kristinningi@frettabladid.is Gunnar Þór Þórarinsson, stjórnarformað- ur Gamla Byrs. Seðlabanki Íslands ætti að hafa frumkvæði að því að rétta hlut þeirra sem sættu sektum af hálfu bankans eða gerðu sátt við bankann undir þvingun í tilvikum þar sem gildar viðurlagaheimildir voru ekki til staðar. Þetta er mat Birgis Tjörva Péturs­ sonar, héraðsdómslögmanns og eins eigenda Lögmanna Lækjar­ götu. „Hafi einhverjir aðilar þurft að sæta slíku eiga þeir hinir sömu án nokkurs vafa rétt á því að fá endurgreiðslu eða bætur vegna tjóns sem af því hefur hlotist,“ segir hann í samtali við Markaðinn og bætir við: „Þar að auki, í þeim tilfellum þar sem Seðlabankinn stundaði rannsóknarathafnir gagnvart ein­ staklingum og fyrirtækjum, sem gátu aldrei stefnt að neinu lögmætu markmiði, vegna þess að nauðsyn­ legur lagagrundvöllur var ekki til staðar fyrir bankann, þá getur Seðlabankinn hæglega hafa bakað sér bótaábyrgð.“ Í nýlegu áliti umboðsmanns Alþingis, sem kom til vegna kvört­ unar af hálfu Þorsteins Más Bald­ vinssonar, forstjóra Samherja, er farið hörðum orðum um stjórn­ sýslu Seðlabankans í málum sem varða gjaldeyrisreglur bankans. Er meðal annars bent á að stjórn­ endur bankans haf i ekki gert umboðsmanni grein fyrir afstöðu ríkissaksóknara um að engin nothæf refsiheimild hefði verið fyrir hendi vegna gjaldeyrisbrota. Birg ir Tjör v i seg ir að á lit umboðsmanns sé sannarlega áfellisdómur yfir stjórnsýslu Seðla­ bankans. Þar sé lýst stjórnsýslu sem feli í sér alvarleg brot gegn einstaklingum og fyrirtækjum sem hafi sætt rannsóknum að ósekju. Hann kveðst þekkja dæmi þess að Seðlabankinn haf i efnt til rannsókna á meintum brotum á gjaldeyrisreglum bankans eftir að starfsmönnum bankans hafi mátt vera orðið ljóst – meðal annars vegna mikilla breytinga á gjald­ eyris lögum sem hafi þurft að ráð­ ast í og afdráttarlausrar afstöðu ríkissaksóknara – að reglurnar hefðu ekki næga lagastoð. „Áfram hélt bankinn þó að efna til rannsókna á málefnum ein­ staklinga og fyrirtækja á tímabili þar sem hann hafði engar heimildir til þess. Það er mjög alvarlegt mál í mínum huga. Auðvitað hefði maður kosið að sjónarmið umboðsmanns hefðu komið fyrr fram. Honum er hins vegar vorkunn að einhverju leyti vegna þess sem hann bendir á, sem er jafnframt grafalvarlegt, að bank­ inn virðist hafa haldið frá honum upplýsingum,“ nefnir Birgir Tjörvi. Það veki sérstaka athygli hve hörðum orðum umboðsmaður fari um samskipti sín við Seðla­ bankann. Í þeim samskiptum hafi bankinn beitt rangfærslum og útúrsnúningum til þess að réttlæta gerðir sínar. „Mér kemur mikið á óvart hve lítið hefur verið gert með þessa þungu gagnrýni umboðsmanns. Spjótum hefur verið beint að stjórnvöldum undanfarið í málum sem telja má léttvægari, þar með talið að Seðlabankanum sjálfum, án þess að ég sé að gera lítið úr öðrum málum. Miðað við þær auknu kröfur sem mér sýnist alls staðar verið að gera til stjórnvalda þessi misseri er ég hissa á hve vel þeir sem báru ábyrgð á gjaldeyris­ eftirliti bankans hafa sloppið.“ – kij Vill að Seðlabankinn rétti hlut þeirra sem sættu sektum Birgir Tjörvi Pétursson héraðsdómslögmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN 1 3 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 4 F -2 A 9 8 2 2 4 F -2 9 5 C 2 2 4 F -2 8 2 0 2 2 4 F -2 6 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.