Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.02.2019, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 13.02.2019, Qupperneq 18
Creditinfo hefur sótt fram á vanþróaðri mörkuðum sem eru í örum vexti. Það er með skrifstofur í 26 löndum, þar af eru ellefu í Afríku. Ef meðtalin eru lánakerfi sem fyrirtækið rekur fyrir seðlabanka sem meðal annars eru í Óman og Srí Lanka er starfsemin í 35 löndum. Í þeim mörkuðum eiga stór alþjóðleg fyrirtæki erfitt um vik að keppa við íslenska fyrirtækið sem lengi hefur haft höfuðstöðvar á Höfðabakka. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali Markaðarins við Reyni Grétarsson, stjórnarformann og aðaleiganda Creditinfo með um 78 prósenta hlut. Starfsmenn eru um 400 eftir 21 ár í rekstri. Veltan jókst um 15 prósent á milli ára og var um 38 milljónir evra, jafnvirði 5,2 milljarða króna árið 2018. Til samanburðar var Credit info með starfsemi í 14 lönd­ um við upphaf árs 2013, meðal ann­ ars á Grænhöfðaeyjum, í Kasakstan og Úkraínu. Fjöldi starfsmanna var þá 250. Creditinfo aðstoðar lánastofn­ anir við að stýra áhættu tengdri útlánum. Gögnum er safnað og breytt í upplýsingar sem eru not­ aðar við ákvarðanatöku. Það er mis­ jafnt hve mikil þjónusta er í boði í hverju landi. Stefnt á að EBITDA tvöfaldist á árinu Reynir segir að reksturinn hafi gengið mjög vel á árinu 2018. Hagn­ aður fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA), hafi verið um 5 milljónir evra, jafnvirði tæplega 700 milljóna króna, samkvæmt bráða­ birgðauppgjöri, og stefnt sé að því að sá hagnaður verði tíu milljónir í ár, um 1.400 milljónir króna. Reksturinn hafi hins vegar gengið illa árið 2017 og því hafi verið ráðist í mikilvæga uppstokkun á rekstr­ inum. Það ár tapaði fyrirtækið 310 milljónum króna, samkvæmt árs­ reikningi. „Við opnuðum í mörgum nýjum löndum og f járfestum mikið í nýrri þekkingu og tækni en fjár­ festingarnar skiluðu sér ekki. Við töpuðum jafnframt miklu á að fjár­ festa í fjártæknifyrirtæki í London. Við brugðumst of seint við sumum af vandamálunum en komum betra lagi á reksturinn á árinu 2017. Við biðum meðal annars með að opna í nýjum löndum á meðan við vorum að ná tökum á rekstrinum. Við opn­ uðu reyndar á Barbados í fyrra – það er ekki hægt að hætta alveg. Á sama tíma lokuðum við skrifstofunni í Rúmeníu sem við höfðum rekið í fimmtán ár. Creditinfo varð tvítugt árið 2017. Fyrirtæki þurfa að eiga slæm ár og það er nánast óumf lýjanlegt. Það gefur þeim tækifæri til að ráðast í endurnýjun, eins og við fengum inn nýjan forstjóra það ár og hann réð nýtt fólk. Árið 2006 reyndist okkur líka erfitt. Það er að mínu mati eðli­ legt að fyrirtæki glími við erfiða tíma á um tíu ára fresti og þurfi þá að ákveðnu leyti að endurnýja sig.“ Að sögn Reynis er starfsemi fyrir­ tækisins rekin með hagnaði í öllum löndunum að undanskildum tveim­ ur, þremur þar sem fjárstreymið sé neikvætt. Ekki lengur rétti maðurinn í starfið Við starfi forstjóra tók Ítalinn Stef­ ano M. Stoppani sem búið hefur í tíu löndum. „Hann þekkir bransann vel og hefur unnið hjá tveimur af keppi­ nautum okkar. Það hafa eiginlega allir í efsta lagi stjórnenda Credit­ info verið Íslendingar. Mér þótti það góð skilaboð til starfsmanna að það þyrfti ekki að vera Íslend­ ingur til að ná langt hjá fyrirtækinu. Því var vel tekið. Það var auk þess gott að fá ferskt blóð í starfsemina því f lestir stjórnendur hafa alist upp innan veggja fyrirtækisins og höfðu því ekki kynnst því hvernig hlutirnir ganga fyrir sig hjá öðrum fyrirtækjum. Það var góð ákvörðun að skipta um forstjóra. Ég var búinn að sinna Ég var ekki lengur rétti forstjórinn Reynir Grétarsson, aðaleigandi Creditinfo, vék úr starfi forstjóra eftir 20 ár og réð Ítala árið 2017. Neistinn var farinn. Við það fékk fyrirtækið tækifæri til að endurnýja sig. Í kjölfarið varð viðsnúningur á rekstrinum og stefnt er því að EBITDA tvöfaldist í ár. „Ég vil geta fengið hugmynd um morguninn og fólk hefst handa við að hrinda henni í framkvæmd á hádegi,“ segir Reynir Grétarsson, stjónarformaður Creditinfo. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Fjárfesti í tveimur fyrirtækjum í hvíldinni Reynir fjárfesti nýverið í tveimur fyrirtækjum, fjártæknifyrir- tækinu Two Birds, og stafræna markaðsfyrirtækinu Svarta- galdri. Þau eru með aðsetur í sama húsi og Creditinfo. Hann getur því auðveldlega hlaupið á milli fyrirtækjanna þriggja. „Eftir að störfum mínum lauk sem forstjóri Creditinfo sumarið 2017 fór ég að hvíla mig og hugsa málin. Ég komst að þeirri niður- stöðu að mig langaði að gera eitthvað á einstaklingsmarkaði og stofnaði fjártæknifyrirtækið Two Birds ásamt fleirum. Fyrstu vörurnar fara brátt í loftið, nú erum við einkum að horfa til fasteignamarkaðarins. Það eru sex starfsmenn og svo er vinnu úthýst til Indlands,“ segir Reynir. Hann á 75 prósenta hlut í Two Birds og það sem eftir stendur er í eigu annarra fjárfesta og starfsmanna. 75 milljónir króna hafa verið lagðar í fyrirtækið en stefnt er að því að fjárfestingin verði yfir 100 milljónir. „Við erum á lokametrunum,“ segir Reynir. Reynir á einnig meirihlutann í Svartagaldri. „Það var hópur fólks sem vann hjá fyrirtæki í stafrænni markaðssetningu og vildi hefja eigin rekstur en skorti fjármagn. Ég sagði: Já, ég er til í að fjármagna fyrirtækið ef ég má eiga meirihlutann. Stofn- kostnaður var lítill og fyrirtækið skilaði hagnaði eftir þrjá mánuði. Það góða og slæma við þann rekstur er hve mikil verðmæti eru fólgin í starfsmönnunum sjálfum. Þeir byrja einfaldlega að bjóða sína þekkingu. Svarti- galdur minnir á tannlækna- stofu þar sem verðmætin eru fólgin í starfsmönnunum. Þegar umsvifin aukast þarf að fjölga starfsmönnum. Á sama tíma þarf Two Birds að fjárfesta ríkulega áður en tekjur fara að berast en þá er líka kom- inn skalanleiki og erfiðara fyrir keppinauta að taka viðskiptin af þér. Ef einhver vill gera það sama þarf að ráðast í sömu fjárfest- ingu, og þegar það er samkeppni á markaðnum er ekki víst að hún náist til baka. Two Birds minnir á Creditinfo á Íslandi sem hefur haft svipaðan starfsmannafjölda í tíu ár þótt tekjurnar aukist yfir- leitt um 5-10 prósent á ári. Við stofnendurnir þrír áttum tvær milljónir þegar Creditinfo var stofnað – það er gaman að taka þátt í þessum sprotafyrirtækjum og hafa meira á milli handanna.“ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is 1 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN 1 3 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 4 F -2 5 A 8 2 2 4 F -2 4 6 C 2 2 4 F -2 3 3 0 2 2 4 F -2 1 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.