Fréttablaðið - 13.02.2019, Side 28
Bæði evrópsku félögin, þessi
stóru gömlu, og amer-
ísku hafa í raun verið, eins
og þetta lítur út fyrir
okkur, að reyna að
drepa Norwegian.
Bogi Nils Bogason,
forstjóri Icelandair Group
Stjórnar-
maðurinn
08.02.2019
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 13. febrúar 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar,
endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar
viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Hafðu samband því þinn árangur er mikils virði.
Hámarkaðu árangurinn þinn
og verðmæti með því að nýta þér
fjölbreytta þekkingu og víðtæka
reynslu PwC á öllum sviðum rekstrar
Verðmæti
Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar
Hótelkeðja Icelandair hefur kært ákvörð-
un borgarráðs Reykjavíkurborgar um
samþykkt á deiliskipulagi sem felur í sér
uppbyggingu hótels í næsta nágrenni
hótels Icelandair.
Kæran er gefin út af Flugleiðahótelum
sem reka Hilton Reykjavík Nordica að Suð-
urlandsbraut 2 sem stendur á næstu lóð
við Hallarmúla 2 þar sem uppbyggingin
er áformuð. Reykjavíkurborg samdi við
HM2 ehf. um uppbyggingu fimm hæða
hótels í Hallarmúla þar sem Tölvutek
hefur rekið verslun. Áformað er að það
verði opnað snemma á næsta áratug.
Segir Icelandair að á Hallarmúla 2
hvíli sú kvöð að húsnæðið verði ekki
tekið til annarra nota en almennrar
verslunar og verslunar með bifreiðir. Þá
eru einnig færð rök fyrir því að breyting
deiliskipulagsins hafi neikvæð grennd-
aráhrif. Fjárfestarnir að baki HM2 eru
Stefán Már Stefánsson, Ellert Aðalsteins-
son og Elmar Freyr Jensen sem sömdu við
Keahótel um rekstur hótelsins. – tfh
Icelandair kærir uppbyggingu hótels
Magnea Þórey
Hjálmarsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Icelandair
Hotels.
Talsverð læti hafa verið vegna
skarpra launahækkana banka
stjóra Landsbankans sem hafa nán
ast tvöfaldast á átján mánuðum.
Þrátt fyrir launahækkanirnar er
Landsbankastjórinn launalægsti
bankastjóri landsins en koll
egi hennar hjá ríkisbankanum
Íslandsbanka er með um fjórðungi
hærri laun. Höskuldur Ólafsson í
Arion er hins vegar í nokkrum sér
flokki með réttar sex milljónir. Sá
grundvallarmunur er þó á að síð
astnefndi bankinn er í einkaeigu
og því kannski eðlilegt að þar sé
málum skipað með nokkuð öðrum
hætti en hjá ríkisbönkunum.
Birna Einarsdóttir í Íslandsbanka
vakti athygli fyrir að hafa lækkað
laun sín að eigin frumkvæði.
Popúlískt vafalaust klókt en breyt
ir því ekki að hún er þó með hærri
laun en kollegi hennar í Lands
bankanum. Því virðist hafa legið
fyrir að Landsbankastjórinn ætti
inni leiðréttingu ef hún ætti að vera
jafnoki kollega sinna. Prósentu
stökk eru góður fyrirsagnamatur,
en segja ef til vill ekki alla söguna ef
gæta á sanngirni. Auðvitað er það
svo að skarpar launahækkanir gefa
óheppileg skilaboð inn í kjaravið
ræður vetrarins. Það á sérstaklega
við hjá hinu opinbera sem þrátt
fyrir allt velti þeirri skriðu af stað
sem nú er verið að bíta úr nálinni
með. Ekki skal gert lítið úr því.
Hvernig sem því er snúið er
staðreyndin sú að á Íslandi fylgir
því mikil ábyrgð að taka að sér
stjórnunarstöður, einkum í fjár
málafyrirtækjum. Stjórnendur
hafa undanfarinn áratug fengið
áralanga fangelsisdóma í bunkum
fyrir ákvarðanir sem þeir tóku
við störf sín. Í sumum tilfellum
virðist þunn lína milli þess hvort
verið sé að refsa þeim fyrir efna
hagsglæpi, eða einfaldlega slæmar
viðskiptaákvarðanir, sem jafnvel
hafa verið teknar undir fordæma
lausri pressu. Í því samhengi er
það spurning um sjónarhorn hvort
bankastjórnendur teljist hafa of
há laun. Hið minnsta er ljóst að
afleiðingarnar geta orðið gríðar
legar ef þeim verður á í starfi.
Svo er það önnur umræða hvort
ekki sé heilbrigt að árangurstengja
laun frekar en nú er gert. Arion
banki hefur til að mynda þurft að
taka á mörgum vandræðamálum
undanfarin misseri, nægir þar að
nefna United Silicon, Primera og
WOW air og fleiri. Uppgjör hefur
enn ekki verið birt fyrir árið 2018,
en fróðlegt verður að sjá hvort
vandræðin skili sér í heimilisbók
hald stjórnenda.
Há laun?
1
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
4
F
-1
1
E
8
2
2
4
F
-1
0
A
C
2
2
4
F
-0
F
7
0
2
2
4
F
-0
E
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K