Velferð - 01.06.1991, Síða 17

Velferð - 01.06.1991, Síða 17
 Anna Edda Ásgeirsdóttir næringarráðgj afi: SALTNEYSLA Tillögur um krydd sem nota má með og/eða í staðinn fyrir salt. Anna Edda Ásgeirsdóttir, nœringarráðgjafi. Manneldisráð íslands hefur gefið út manneldismarkið fyrir okkur íslend- inga samkvæmt þeim ætti saltneysla okkar ekki að fara yfir 8 grömm á dag. Matarsalt er samansett úr natríum og klóríð (NaCl). 1 gramm af salti er um 400 mg af Natríum (0.4 grömm). „8 grömm af salti er því um 3200 mg afNatríum“. Allir þurfa á natríum að halda en flestir borða of “natríum-auðuga“ fæðu. Natríum bindur vökva sem get- ur orsakað óeðlilega vökvasöfnun í líkamanum. Auk þess er álitið að mikil neysla hafi áhrif á háþrýsting. Natríum er steinefni sem finnst í allri fæðu mismunandi mikið eftir fæðutegundum. Það er meira af natr- íum í mjólk, osti, skyri, fiski og eggj- um, en minna í grænmeti, ávöxtum, fitu og kornmat. Unnar matvörur innihalda yfirleitt mun meira magn af natríum heldur en ferskar matvörur t.d. innihalda 100 g af mögru hráu lambakjöti um 78 mg af natríum, en lOOgaf hráuhangikjöti um 1560 mg. Við getum minnkað saltneyslu okkar með því að borða minna af söltum og reyktum mat. Einnig með því að borða frekar ferskt eða fryst grænmeti í staðinn fyrir niðursoðið (niðursoðið grænmeti er yfirleitt soð- ið niður með salti). Einnig má nota minna af salti við matreiðslu það má krydda fæðuna með mörgu öðru en salti. Tillögur um krydd sem nota má með og/eða í staðinn fyrir salt. Nautakjöt: lárviðarlauf, basil, hvít- laukur, laukur, steinselja, salvía, thyme(blóðberg). Kjúklingar: Engifer, laukur, paprika, pipar, salvía (sage), karrý thyme(blóðberg)), kjúklingakrydd ef það er ekki bætt með salti. Lambakjöt: Karrý, mint, laukur, pipar, rosemary, salvía(sage) Svínakjöt: Thyme, dill oregano, sítrónusafa, marjoram, pipar, tarra- gon, edik. Fiskur: Thyme(blóðberg), dill, or- egano, sítrónusafi, marjoram, pipar, tarragon, edik. Grænmeti: Kanill, karrý, dill, engi- fer, cítrónusafi, mint, muskat, lauk- ur, steinselja, edik. Einnig má krydda með: Sveppum, sinnépsdufti, vanillu, möndlum og graslauk. í merkingum matvara s.s. mjólkuraf- urðum, brauðum og mörgum öðrum unnum matvörum er næringargildi vörunnar yfirleitt merkt. Þar er oft hægt að lesa hve mikið natríum er í viðkomandi vöru. Er það þá yfirleitt merkt í 100 grömmum af tiltekinni fæðutegund eða í vissum skömmtum. Ef við t.d. lesum utan á fernu af létt- mjólk kemur í ljós að í 100 g af létt- mjólker47 mg af Natríum ogþar sem hvert mjólkurglas tekur um 200 til 250 g þá mundi Natríummagn í 1 mjólkurglasi vera um 94 til 117 mg af Natríum. Þær matvörur sem ekki eru merkt- ar með nærginargildi eru yfirleitt merktar með innihaldslýsingu. Með því að lesa hana getum við oft áttað okkur á hvort mikið af natríum sé í tiltekinni fæðutegund. Ef við lesum að viðkomandi fæðutegund innihaldi “salt, sódíum, natríum, Natríum- Chlorid og/eða Monosodium Gluta- mate(MSG) og að það er talið upp fljótlega í innihaldslýsingu þá er tölu- vert magn af salti í viðkomandi fæðu og ber því að neyta varlega ef við þurfum að varast mikla saltneyslu. 1DAGSBRON 1 Verkamannafélagið DAGSBRÚN LINDARGOTU 9 - PÓSTHÓLF 792 - 121 REYKJAVlK - SlMI 25S33 %Hltíma bf. Laugavegi 63 Sími 22208 Vitastígsmegin 17

x

Velferð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.