Velferð - 01.06.1991, Blaðsíða 31
Haukur Þórðarson, formaður SÍBS:
- LHS VERÐUR
VELFAGNAÐ
INNAN RAÐA SÍBS
Á þinginu var flutt tillaga um að
Landssamtök hjartasjúklinga óskuðu
eftir aðild að SÍBS, sem var svohljóð-
andi:
1. þing Landssamtaka hjartasjúk-
linga haldið í mars 1991 samþykkir að
óska eftir því að LHS verði á næsta
þingi S.Í.B.S. viðurkennt sem deild í
Sambandi íslenskra berkla- og
brjóstholssjúklinga.
Jafnframt er lýst yfir stuðningi við
ályktun 27. þings S.Í.B.S. um að
auka þurfi rými fyrir brjóstholssjúk-
linga til endurhæfingar og langvistun-
ar. Felur þingið stjórn LHS að bjóða
fram aðstoð samtakanna við að
kanna og undirbúa framkvæmd máls-
ins.
Sigurður Helgason mælti fyrir til-
Haukur Pórðarson,
formaður SÍBS.
lögunni og sagði að samþykkt tillög-
unnar yrði merkilegt skref sem myndi
efla samtök okkar. Hann gat þess að
nokkur skoðanamunur hefði verið í
allsherjarnefnd um fyrri hluta tillög-
unnar. Sigurður lagði til að atkvæða-
greiðsla um þennan hluta tillögunnar
yrði skrifleg en samkv. nýsamþykkt-
um lögum samtakanna þarf 2/3 at-
kvæða til að tillagan hljóti samþykki.
Þingforseti lét fara fram skriflega
atkvæðagreiðslu þannig að þeir sem
samþykkja vildu tillöguna skyldu
skrifa já á atkvæðaseðil en andvígir
nei.
Atkvæði féllu þannig að 51 sagði
já, en enginn sagði nei. Síðari máls-
grein tillögunnar var síðan borin upp
og samþykkt samhljóða.
Að lokinni þessari málsmeðferð
kvaddi Haukur Þórðarson, formaður
SÍBS, sér hljóðs. Hann flutti þakkir
fyrir gott þing og sagði að LHS yrði
vel fagnað sem nýjum aðila innan
SÍBS.
DRIFRÁS SF
SÚÐARVOGI 28-30
S:686630
SJÓVÁ-ALMENNAR
31