Velferð - 01.06.1991, Blaðsíða 38
Nokkrar breytingar voru gerðar á lögum LHS á þinginu
í vor, mestmegnis orðalagsbreytingar. Þannig hljóða 2.
gr. og 3. gr. laganna nú:
2. gr. í Landssamtökum hjartasjúklinga eru félög, sem starfa hvert á sínu svæði.
Hjartasjúklingar og þeir sem vilja styðja markmið samtakanna geta skráð sig í
einstök félög eða beint í LHS. Stjórn landssamtakanna ákveður þá hvaða félagi
þeir tilheyra.
3. gr. Markmið samtakanna er:
a) Að sameina félagsmenn til baráttu fyrir hagsmunamálum hjartasjúklinga og
gæta réttar þeirra á öllum sviðum.
b) Að vinna að úrbótum á sviði heilbrigðisþjónustu og bættri félagslegri aðstöðu
hjartasjúklinga.
c) Að afla fjár, sem varið er til velferðarmála hjartasjúklinga og hrinda i fram-
kvæmd markmiðum samtakanna.
d) Að efla rannsóknir og fræðslu varðandi hjartasjúkdóma og auka skilning og
þekkingu á fyrirbyggjandi starfsemi, meðferð hjartasjúkdóma og gildi
endurhæfingar.
e) Að bæta aðstöðu og tækjakost á sjúkrastofnunum tii rannsókna og lækninga
hjartasjúkdóma og skapa aðstöðu til endurhæfingar og þjálfunar sem viðast á
landinu.
f) Að fylgjast með nýjungum á sviði lækninga og endurhæfingar vegna hjartasjúk-
dóma, koma upplýsingum til stjórnvalda og hvetja til úrbóta af hálfu hins
opinbera.
g) Vinna að kynningu á málefnum hjartasjúklinga meðal almennings með tilstyrk
fjölmiðla og útgáfustarfsemi.
h) Að stuðla að aukinni sérmenntun starfsfólks á sviði hjartalækninga og
endurhæfingar.
i) Að upplýsa hjartasjúklinga um félagslegan og lagalegan rétt sinn m.a.varðandi
skattamál.fjárhagsaðstoð, tryggingamál, líreyrisréttindi, læknismeðferð erlendis
o.fl.
j) Að hafa samstarf við erlend félagasamtök, sem starfa á svipuðum grundvelli og
að hliðstæðum markmiðum.
k) Að efla samvinnu við innlend félagasamtök, sem vinna að velferðarmálum.
38