Velferð - 01.06.1991, Page 21

Velferð - 01.06.1991, Page 21
1. ÞING LANDSSAMTAKA HJARTASJÚKLINGA Þingsetning og málþing Tillögur og ályktanir þingsins. \ m ik f I «■ » I JiM \ i t'pfljMg Stjórn og varastjórn Landssamtaka hjartasjúklinga. Frá vinstri: Jón Pór Jóhannsson, Gísli J.Eyland, Jóhannes Proppé, Ingólfur Viktorsson, Haraldur Steinþórsson, Sigurður Helga- son, Sigmar Ingason, Sigurveig Halldórsdóttir, Jón Júlíusson og Rúrik Kristjánsson. Aðalfundur LHS í ár var haldinn dagana 22. og 23. mars s.l., og að þessu sinni nefndur þing LHS í sam- ræmi við breytingu á lögum félagsins, er hafist var handa um að stofna félög hjartasjúklinga víða um land, sem sameiginlega mynda síðan Lands- samtök hjartasjúklinga, eins og fé- lagsmönnum er kunnugt. Tveir þingforsetar voru kosnir, þeir Jón Þór Jóhannsson formaður Félags hjartasjúklinga á Reykjavík- ursvæðinu og Reynir Sigurþórsson formaður Félags hjartasjúklinga á Austurlandi, og var fundarstjórn þeirra með ágætum. Þá voru kosnir tveir þingritarar, þau Sigmar Ingason formaður Félags hjartasjúklinga á Suðurnesjum og Geirlaug Sigurjóns- dóttir í stjórn Félags hjartasjúklinga á Eyjafjarðarsvæðinu. Fundargerð þeirra var til fyrirmyndar, og verður jafnan hér eftir gott heimildarrit um LHS og aðildarfélögin. Þingsetning og málþing Sigurður Helgason formaður Lands- samtakanna setti þingið með ræðu, og birtist hún hér í blaðinu. Þá flutti Finnur Ingólfsson aðstoð- armaður Heilbrigðisráðherra ávarp í forföllum ráðherra, og birtist það einnig hér í blaðinu. Þórður Harðarson prófessor flutti erindi sem hann nefndi: Kransæða- sjúkdómar á undanhaldi. Laufey Steingrímsdóttir næringar- fræðigur flutti erindið: íslensk holl- usta. (Könnun á mataræði íslend- inga) Soffía S. Sigurðardóttir yfirsjúkra- þjálfari flutti erindi: Endurhæfing fyrir hjartasjúklinga. Það erindi er kynnt nánar í blaðinu. Var þeim öllum fagnað hjartan- lega af gestum málþingsins, sem voru 120, eða um helmingi fleiri en kjörnir þingfulltrúar, vegna þess að á mál- þingið var boðið stjórnarmönnum úr félögum hjartasjúklinga, varamönn- um kjörinna þingfulltrúa og ýmsum fleiri. Tillögur og ályktanir þingsins. Margar athyglisverðar tillögur voru samþykktar á þinginu, og er nánari grein gerð fyrir sumum þeirra héi í blaðinu. Þar á meðal eru: Styrktar- sjóður hjartasjúklinga. - Aðild LHS að SÍBS. - Skyndihappdrætti LHS nú í sumar. - Ályktun um að skora á heil- brigðisráðherra að láta fara fram á næstu þrem árum skoðun allra lands- manna 30 ára og eldri til mælinga á kólesteróli og blóðþrýstingi. En það var margt fleira rætt og 21

x

Velferð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.