Velferð - 01.06.1991, Qupperneq 33

Velferð - 01.06.1991, Qupperneq 33
æðasjúkdóma að sögn Árna Kristinssonar. Hjartaskurðdeild hér á landi Davíð Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Ríkisspítalanna, hefur sagt mér, að fyrir tveimur árum hafi hann gert lauslega áætlun sem sýndi að það væri rúmlega 20% arðsamara að fjár- festa hér í hjartaskurðdeild en senda vaxandi fjölda sjúklinga utan ár hvert. Sérfræðingur við Landspítal- ann hefur tjáð mér, að stofnkostnað- ur við hjartaskurðdeild hér heima gæti jafnvel orðið innan við helming þeirrar fjárhæðar, sem nú er varið til að kosta íslendinga til utanferða vegna hjartalækninga á einu ári. Þó ekki sé hægt að fullyrða nákvæmlega um þennan fjárhagslega sparnað, ber öllum kunnugum saman um það, að hann yrði töluverður ef ekki mikill, að ekki sé nú talað um ómetanlegt hagræði fyrir sjúklingana sjálfa að þurfa ekki að fara til annarra landa, oft mjög veikir, og koma heim aftur ógrónir sára sinna. En af hverju er svona tiltölulega ódýrt að koma hér upp hjartaskurðdeild. Hér koma nokkrar ástæður, sem ég hef borið undir lækni við Landspítalann og framkvæmdastjóra Ríkisspítalanna. 1. Þrír íslenskir hjartaskurðlæknar í fullri þjálfun væru tiltækir eins og nú standa sakir, ef ráðist væri í að koma upp skurðdeild innan spít- alans. 2. Nokkrir aðilar, svo sem Minning- argjafasjóður Landspítalans, Seðlabanki íslands og Ásbjörn Ólafsson, stórkaupmaður, sem nú er látinn, hafa gefið mikla fjár- muni til kaupa á dýrustu tækjun- um við hjartaskurðdeild hér, svo sem hjartavél og lungnavél, þó einhverju þyrfti eflaust að bæta við þá upphæð. 3. Heimild er á fjárlögum þessa árs til fjölgunar starfsfólks á gjör- gæsludeild Landspítalans, vegna hjartaskurðaraðstöðu hér heima, þegar hún er fyrir hendi. 4. Síðast en ekki síst er þess að geta, að húsnæði fyrir legupláss hjarta- sjúklinga þarf ekki að byggja, sem auðvitað er alltaf það dýrasta við að koma upp nýjum sjúkra- deildum, Framkvæmdastjóri Rík- isspítalanna hefur staðfest að þessir sjúklingar yrðu vistaðir á brjósthols- og skurðlækninga- deild Landspítalans, eftir að þeir kæmu úr gjörgæslu og þar til þeir brautskrást. Minni háttar lagfær- ingu þyrfti þó að gera á skurð- stofuaðstöðu spítalans, sagði framkvæmdastjórinn. Hvað er þá að vanbúnaði? Hvers vegna er ekki komið upp hjarta- skurðdeild hér heima? Það sem kosta þyrfti til í fjármunum er tiltölulega lítið. Bæta þyrfti sjálfsagt við tækja- kaupaféð hér, einnig að kosta starfs- þjálfun íslensks hjúkrunarfólks á hjartaskurðdeildum erlendis, og greiða ferðakostnað, laun og dvalar- kostnað erlends hjartaskurðlæknis einhvern tíma hér heima á meðan hann væri að leiðbeina íslenskum læknum og starfsfólki í upphafi þess- arar ábyrgðarmiklu starfsemi hér. Kaupa þarf nýtt hjartaþræðingartæki Nýtt tæki af þessari gerð kostar rúm- ar 20 milljónir króna og leggja hjarta- sjúklingar, sem nú eru að stofna til samtaka, mesta áherslu á það af öllu. Hér er nú aðeins til ein hjartamynd- sjá, „gamalt og slitið tæki“ til þessara lífsnauðsynlegu nota „og hefur það bilað alloft undanfarið“ að sögn lækna, sem við það vinna. Jafnframt lengist biðtími sjúklinga, sem þurfa að komast í þessa rannsókn. Nú bíða á annað hundrað manns og getur bið- in orðið allt að fjórum mánuðum. Það er of langur tími, hver dagur er örlagaríkur þegar þannig stendur á. Sumir falla frá á þessum biðtíma, sem unnt hefði verið að bjarga, ef þeir hefðu komist strax í þetta hjartaskoð- unartæki og síðan í skurðaðgerð. Aðrir komast yfir þau mörk á biðtím- anum að sjúkdómur þeirra sé skurð- tækur, og þó þeir lifi eitthvað lengur við þær aðstæður, er það ekkert líf á við líf þeirra, sem komast í tæka tíð í aðgerð, sem heppnast vel. Það verða mjög margir nýir menn eftir hjarta- uppskurð. Athyglisvert er, að margir kransæðasjúklingar eru á besta starfsaldri ogeinn, sem kemst of seint í aðgerð, sem hefði getað bjargað lífi hans, er einum og margt. Fjársöfnun til kaupa á hjartamyndsjá er þegar hafin á vegum hjartasjúklinga. Kretar spara ekkert til hjartaskurðlækninga í breska læknablaðinu, sem er eitt- hvert virtasta læknablað í heimi, var nýlega grein um fjárhagslega hag- ræðingu og sparnað í rekstri breska heilbrigðiskerfisins. Þar er bent á, og tekið sérstaklega fram, að hjarta- skurðlækningar þar í landi, sem standa á háu stigi, séu undanþegnar með öllu þessum sparnaði í kerfinu. Heilbrigðisyfirvöldin bresku telja að á því sviði lækninga megi síst spara og fremur verja auknu fjármagni til þeirra en hitt, með tilliti til þess, hve margir verði hjarta- og æðasjúkdóm- um að bráð á góðum aldri, og einnig með hliðsjón af því, hve hjartaskurð- lækningar nútímans eru árangursrík- ar, ef tekið er ráð í tíma. PS:Þessi grein er skrifuð í tilefni af fyrirhug- aðri stofnun félags hjartasjúklinga og þeirri umræðu, sem orðið hefir í fjöl- miðlum um brýna þörf á bættri að- stöðu til rannsókna og lækninga á þessu sviði hér á landi. Pessi grein birtist í Morgunblaðinu PÓSTHÓLF1428 • 121 REYKJAVÍK Halldór Halldórsson hjartaþegi hefur fært Velferð rausnalegan styrk frá einum vina sinna. 33

x

Velferð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.