Velferð - 01.04.2000, Page 5

Velferð - 01.04.2000, Page 5
Stoðdeild SÍBS Þá vil ég geta þess að í næsta mánuði fá allir okkar félagar SIBS blaðið í nýjum búningi, þar verður sérstaklega fjallað um svokallaðar stoðdeildir til styrktar byggingu nýrrar sundlaugar og æfingaaðstöðu að Reykjalundi. Eg vil hvetja félaga okkar til að lesa þessa grein vandlega og hugleiða með hvaða hætti verði hægt að taka þátt í þeirri starfssemi. Ég get ekki lokið þessari skýrslu án þess að þakka því sómafólki, sem alltaf er tilbúið að koma og aðstoða á skrifstofu þegar mikið er um að vera. Þá vil ég þakka meðstjórn- armönnum mínum fyrir ánægju- legt samstarf, en á árinu höfum við haldið 10 stjórnarfundi. Að lokum þakkaði Vilhjálmur gott samstarf við Gísla J Eyland, sem hann sagði að væri óþreytandi að leggja málefnum hjartasjúklinga lið. Fundarstjóri var Guðmundur Magnússon (lengst til vinstri) Baldvin Halldórsson las upp og Jón Mýrdal skýrði lagabreytingar. Arni Elvar hinn kunni píanóleikari skemmti gestum milli dagskráratriða. Hinn glœsilegi fáni félagsins í baksýn. Við afhendingu teppsins voru: Guðný Sigurðardóttir gjaldkeri Neistans, Valur Stefánsson formaður Neistans, Vigdís Stefánsdóttir, Jóna Valgerður Höskuldsdóttir og Margrét Björnsdóttir. Fallegt hjartateppi Nokkrar konur fengu þá hugmynd að gera veglegt hjartateppi og gefa það Neistanum, foreldrafélagi hjartveikra barna. Teppið er nú komið á vegg hjá Landssamtökum hjartasjúklinga, Suðurgötu 10, og vekur ánægju þeirra sem þangað koma. Teppið er samvinnuverkefni margra kvenna sem hver fyrir sig sendi eina blokk og var þemað hjarta. Vigdís Stefánsdóttir átti hugmyndina að þessu og safnaði saman blokkunum og setti teppið saman. Nokkrar konur voru mest við að stinga teppið. Margrét Björnsdóttir sein átti rauðu hjartastungurnar, Berglind Þorsteinsdóttir, Jóna Valgerður Höskuldsdóttir og Vigdís Stefánsdóttir. Verðlaun fyrir gátur I síðasta tölublaði var heitið verðlaunum fyrir réttar ráðningar á myndagátu og lykilkrossgátu. Verðlaun fyrir myndagátu hlaut Arni Valur Viggósson, Lindarsíðu 2, 603 Akureyri og fyrir lykilgátu Bryndís Dyrving, Gíslaholti, 851 Hellu. Þau fá senda bókina Tímaskyn eftir Sigurð Pálsson, útgefandi Forlagið. Rétt ráðning inyndagátunnar var: Straumur nýrra bóka er í bókabúðir. Hver verður söluhœst í ár? Slást Steingrímur og Ólafur um efsta. sœtið, eða verða þar aðrir ofar? Hlíðarendi var lausn lykilgátunnar. Velferð 5

x

Velferð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.