Velferð - 01.04.2000, Blaðsíða 26

Velferð - 01.04.2000, Blaðsíða 26
Samviskuviðbit Yfir 5000 alþjóðlegar vísindarann- sóknir benda mjög sterklega til þess að Omega-3 fitusýrur séu snar þáttur í góðri heilsu fólks og nauð- synlegar allt frá fósturstigi, eigi líkami og heili að ná góðum þroska. Vertu í sátt við samviskuna. Plús3 er fituskert viðbit með smjörbragði sem inniheldur hinar eftirsóttu Omega-3 fitusýrur sem fást að öðrum kosti helst úr sjávarfangi og lýsi. með því að safna blóði fyrir Blóðbankann. Hefur þessi blóðsöfnun gengið vel og verið bæði góð kynning fyrir Neistann og Blóðbankann. Líknarfélag sem Neistinn eílir ekki styrktarsjóð sinn nema með aðstoð fólksins í landinu. Núna fyrir jólin 1999 gaf Neistinn út fallegt jólamerki með fallegri mynd eftir dr. Nikulás Sigfússon f.v. yfirlækni hjá Hjartavernd, gekk þessi sala ágætlega og verður þessi útgáfa vonandi árlegur viðburður hjá Neistanum. Neistinn hefur gefið meira heldur en blóð. Þann 29. desember 1998 gaf Neistinn Barnaspítala Hringsins haus á ómsjá, en ómsjáin hafði verið notuð í tvö ár á Landspítalanum. Haus þessi er notaður sérstaklega til skoðunar á ungbörnum, fyrirburum og fósturhjörtum. Verðmæti gjafarinnar var tæpar tvær milljónir króna. Félagsmenn Neistans hafa farið í sumarferð á hverju ári. Höfum við farið m.a. að Skógum, Brautarholti í Lundar- reykjadal, Laugarvatni og Steinstaðarskóla í Skagafirði. Nú í sumar 8.-9. júlí ætlum við að halda sumarhátið Neistans að Dæli í Húnavatnssýslu. Þeir sem áhuga hafa á að gerast félags- menn í Neistanum, geta skráð sig á skrifstofu Landssamtakanna eða með tölvupósti á neistinn@neistinn.is Valur Stefánsson formaður Neistans Ingólfur kvaddur Fyrir skömmu kom stjórn LHS saman til að kveðja Ingólf Viktorsson, sem lét af störfum hjá LHS um síðustu áramót fyrir aldurs sakir. Ingólfi og konu hans, Unni Fenger, voru þökkuð mikil og góð störf þeirra fyrir Landssamtökin en Ingólfur var fyrsti formaður samtakanna. Þau hjón eru hér ásamt formanni LHS Gísla J. Eyland. BAUGUR / HITAVEITA SUÐURNESJA BREKKUSTÍG 36 • 260 NJARÐVÍK SÍMI 421 5200 • TELEFAX 421 4727 NÓATÚN 26 Velferð

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.