Velferð - 01.04.2000, Blaðsíða 13
f
Blandaður fróðleikur
V Bandarískur læknir sagði á
læknaþingi hérlendis sumarið 1999 um
bráða kransæðastíílu að í náinni framtíð
yrði þetta eins og á Aktu-taktu
veitingastað — sjúklingurinn þyrfti ekki
lengur að leggjast inn á sjúkrahús.
Aðgerð sem áður krafðist nær hálfs
mánaðar sjúkrahúslegu styttist í
sólarhringsviðveru fyrir sjúklinginn í
framtíðinni
Flestir sjúklingar sem fara í
kransæðavíkkun á Landspítalanum í dag
fara heim daginn eftir aðgerð.
V Á sama læknaþingi sagði
bandarískur prófessor að erfðafræðin
myndi gegna lykilhlutverki í meðferð
hjartasjúkdóma í framtíðinni og kvaðst
spenntur að fylgjast með þeim
erfðarannsóknum sem fram færu
hérlendis.
Karlmönnum undir íimmtugsaldri er
mun hættara við að fá
kransæðasjúkdóma en konum á sama
aldri. Eftir tíðahvörf eykst tíðni
kransæðasjúkdóma hjá konum verulega.
Um sextugsaldur er tíðnin svipuð.
V Nú eru sett stoðnet í um 60%
sjúklinga sem fara í kransæðavíkkun á
Landspítalanum.
V Aður fyrr voru líkur á
endurþrengslum 30-50% en með
tilkomu stoðneta eru líkurnar 15-20%.
V Innanæðaómun, sem bætir verulega
inat á kransæðaþrengslum, árangri
víkkunar og fylgikvillum, er athyglisverð
nýjung hjá Landspítalanum.
Staðreyndir um berkla og
konur
Yfir 900 miljónir konur eru sinitaðar af
berklum.
• Um 2.5 miljónir kvenna veikjast
árlega af berklum.
• Berklar drepa um 1 miljón konur ár-
lega, íleiri konur deyja úr þessum sjúk-
dómi en nokkrum öðrum sjúkdómi.
• Berklar eni um 9% dánarorsaka meðal
kvenna á aldrinum 15-44 ára, styrjaldir
4%, alnæmi 3% og hjartasjúkdómar
3%.
• Fleiri konur deyja af völdum berkla en
barnsfæðinga.
(Heimild WHO )
Eru ljén í
veghium?
Frísklegur, fræðandi og hvetjandi
bæklingur fyrir þá sem
vilja öðlast betri heilsu
Útgefandi: Landssamtök hjartasjúklinga
Suðurgölu 10 • Póslhólf 830 «121 Reykjavik
Vinsælir bæklingar
Bæklingurinn Eru ljón í veginum hefur
fengið mjög vinsamlega umfjöllun og má
með sanni segja að hann sé eftirspurður.
Við sendum bæklinginn til ykkar ef þið
viljið og við eigum einnig nokkurt upplag
af bækling um kransæðasjúkdóma sein dr.
Árni Kristinsson, hjartalæknir hefur tekið
saman. Þá minnum við á að við eigum
prýðisgott myndband um hjartasjúkdóma
og afstöðu íslenskra sjúklinga til
sjúkdómsins og þeirrar þjónustu sem
sjúkrahúsin og endurhæfingarstaðir veita.
Landspítalanum
gefinn æða-
þrýstimælir
Þann 14. janúar sl. afhenti stjórn
Landssamtaka hjartasjúklinga fyrir hönd
allra aðildarfélaga LHS hjartadeild
Landspítalans æðaþrýstimæli.
Tækið er til að mæla þrýsting inni í
kransæðum og er það notað einkum þegar
þrengsli eru miðlungsmikil, mælt eftir
kransæðakvikmyndum. Með sérstökum vír
sem á er þrýstinemi, og settur er í gegnum
þrengslin, er hægt að mæla hvort þar er
þrýstifall og hversu mikið er hægt að auka
rennslið þegar æðaútvíkkandi lyf er gefið
beint í kransæðina.
Tölvubúnaðurinn sem sér um þessar
mælingar kostar um eina milljón og tvö Á myndinni er taliðfrá vinstri: Árni Kristinsson, hjartalœknir, Kristján Eyjólfsson, hjartalœknir og
hundruð þúsund. Gísli J. Eyland, formaður LHS. Lengst til hœgri er œðaþrýstimœlirinn.
Velferð 13