Velferð - 01.04.2000, Blaðsíða 9

Velferð - 01.04.2000, Blaðsíða 9
200 180 160 140 =5 120 jö 100 80 60 40 20 0 Biðlistar vegna hjartasjúkdóma HAðgerðir EI Þræðingar □ Víkkanir □ Gangráðar Okt Ág 97 98 Maí 99 Sept 99 Nóv 99 Jan 00 Tímabil Þetta graf sýnir biðlistann á Landspítalanum Hringbraut með nokkurra mánaða millibili á árunum 1997-2000. Biðlistar eru lengri eftir sumarfrí og eftir jólin. Þrátt fyrir fjölgun þrœðinga og víkkana er alltaf talsvert langur biðlisti. Lengst til hœgri sést samt að biðlistar vegna víkkana og gangráða eru mjög litlir en talsvert ógnandi hvað varðar aðgerðir og þrœðingar. Erindi um hjartasjúkdóma frh. Anna Lilja var einnig minnt á að það væri fyrst og fremst Landssamtökum hjartasjúklinga að þakka hve vel væri staðið að endurhæfingarmálum hérlendis og kvaðst hún ætla að stuðla að sem bestu samstarfi á þessu sviði. Hún sagði nauðsynlegt að tengja endurhæfingar- þjónustuna við heilsugæslustöðvarnar á hverjum stað á landsbyggðinni og koma á „föstu skipulagi. Ég fer með þau skilaboð til ráðherra, að þetta samstarf verði eflt,“ sagði Anna Lilja. Fundargestir og formaður félagsins þökkuðu Önnu Lilju fyrir gott erindi og Vilhjálmur bað fyrir góðar kveðjur til Ingibjargar Pálmadóttur, heilbrigðis- ráðherra, því væri ekki að leyna að þjónustan við hjartasjúklinga væri mjög góð og sérstaklega bæri að fagna því að þjónustan við eldri borgara sé jafn góð og við aðra. ÍSLANDSBANKI Kirkjusandi, Reykjavík Blandaður fróðleilcur Læknisfræðileg mistök er þriðja veigamesta dánarorsökin í Stóra Bretlandi, næst á eftir krabbameini og hjartasjúkdómum Þetta kemur fram í blaðinu Sunday Times. Blaðið telur að um 4o þús. manns látist árlega í Bretlandi vegna læknisfræðilegra mistaka af ýmsu tagi. Landssamtök hjarta- og lungnasjúklimga í Noregi opnuðu nýlega hjarta- og lungnamiðstöð í bænum Tromsö í Norður Noregi en fyrir voru tvær slíkar miðstöðvar, í Bergen og Osló. í miðstöðinni, sem hefur til umráða 5000 fermetra gamalt og virðulegt hús, verða veittar hvers- konar upplýsingar um hjartasjúkdóma, félagsleg réttindi sjúklinga, rétt fæðuval, námskeið fyrir reykingafólk, endurhæfingarleikfimi o.s.fi'v. V I læknadálki í danska blaðinu Hjertenyt er fjallað um kaffi og áhrif þess á hjartastarfsemina. Læknirinn segir að mikil kaffidiykkja hafi áhrif á starfsemi líkamans og mörgum líði betur ef þeir hætti kaffidrykkju. Um þetta gildir hið fornkveðna að hóf skal hafa á öllum hlutum. Síðustu rannsóknir benda ekki til þess að kaffi sé meiri hjartasjúkdóma- valdur en hvað annað sem kynni að vera neytt í óhófi. Velferð 9

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.