Velferð - 01.04.2000, Qupperneq 11
Leit að galla
Vilmundur Guðnason, læknir og erfða-
fræðingur, forstöðulæknir Hjartaverndar
segir í grein í Mbl. í maí 1999 að
rannsóknir undanfarinn áratug hafi dregið
fram í dagsljósið galla í íslenskum ættum
þar sem snemmkomin, ótímabær dauðsföll
vegna kransæðastíílu eru algeng. „Það er
því ætlun okkar í Hjartavernd að hefja
skipulega leita að þessum galla í Islend-
ingum. Þetta verður gert í samvinnu við
Alþjóða Heilbrigðisstofnunina og alþjóð-
Iegan vinnuhóp sem hefur það að markmiði
að finna þessa einstaklinga í tæka tíð til að
unnt sé að meðhöndla þá og seinka
kransæðasjúkdómum og jafnvel að koma í
veg fyrir hjartaáfall.“
Gísli J. Eyland og Kristján Eyjólfsson hjartalœknir sem hélt fróðlegt erindi um þrœðingar og blástur.
Hreyfing hressir
alltaf
Gagn rúmlegu í ýmsum sjúkdómum er
ósannað og hún getur aukið hættu á
bláæðasega, legusárum og beinþynningu.
I nokkrum rannsóknum á gildi rúmlegu
var ekki að greina að hún gerði gagn og í
sumum tilvikum var hún ljóslega til
ógagns. Auðvitað þarf stundum að beita
rúmlegu og ekki verður hjá henni komist.
Rúmlega virðist hins vegar ekkert gildi
eiga sem sértækur hluti meðferðar hjá
öllum sjúklingum með tiltekinn sjúkdóm
eða sem undirgangast tilteknar rannsóknir.
Hreyfing hressir alltaf.
(Heimild landlæknisembættið).
Netföng og
heimasíður
Heimasíða LHS er
www.sibs.is/landssamtok.html
Verið er að vinna að nýrri heimasíðu
www.hjarta.net
Tölvupóstur til LHS er hjarta@sibs.is
Heimasíða Landlæknisembættisins er
www.landlaeknir.is
Heimasíða Netdoktor er
www.netdoktor.is
Félag hjartasjúklinga á Eyjafjarðarsvæði
140 manna fundur á
Akureyri I. apríl sl.
Laugardaginn 1. apríl kl. 15.00 efndi Félag hjartasjúklinga á Eyjafjarðarsvæðinu til
fræðslufundar að Hótel KEA.
Kristján Eyjólfsson, hjartalæknir, sérgrein þræðingar og blástur á æðum, flutti afar
fróðlegt erindi um sérgrein sfna stutt með myndum, sem hann skýrði á eftirminnilegan
hátt fyrir áheyrendum sínum. Erindi hans tók um klukkutíma og vakti upp margar
spurningar hjá áheyrendum, sem fengu að gera fyrirspurnir að afstöðnu kaffihléi.
Fyrirspurnir voru milli 15 og 20 talsins og leysti hann vel og samviskusamlega úr þeim
öllum. Fræðslufundinn sóttu um 140 manns og var aðsóknin langt umfram væntingar.
I upphafi fundar bauð formaður félagsins, Gfsli ,1. Eyland, fundarmenn velkomna og
skýrði tilhögun fundarins og þakkaði síðan ræðumanni og fundarmönnum fyrir komuna í
lok fundar. Ennfremur ávarpaði Jón Þór, hjartalæknir, fundargesti með nokkrum vel
völdum orðum í lokin.
Isak J. Guðmann, ritari.
Kristján Eyjólfsson og kollegi hans á Akureyri Jón Þór Sverrisson.
ELDHÚS TÆKI STIGAR
BAÐ FATASKAPAR GÓLF
d IQbúð:^
Grensásvegur 8 • 108 Reykjavík
Sími: 581 4448
Fax: 581 4428
panorama@simnet.is
Velferð 11