Velferð - 01.04.2000, Qupperneq 25

Velferð - 01.04.2000, Qupperneq 25
Neistinn 5 ára Meirihluti hjartaskurðaðgerða framkvæmdar hér heima 5. maí nk. verður Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna 5 ára. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá stofnun félagsins. I byrjun voru stjórnarfundir haldnir á eldhúsborðum fyrrverandi stjórnarmeðlima, en nú eru þeir haldnir á skrifstofu Landssamtaka hjarta- sjúklinga að Suðurgötu 10 þar sem Neistinn er með aðstöðu. Þegar Neistinn var stofnaður voru öll börn send erlendis til hjarta- aðgerða, en nú er meiri- hluti þessara aðgerða framkvæmdar hér heima, sem er bæði mikill kostur fyrir aðstandendur hjart- veikra bama og mikill sparnaður fyrir hið opinbera, þó eru enn stærri og flóknari aðgerðir framkvæmdar erlendis. Eins og sést á meðfylgjandi súluriti þá hafa verið gerðar frá tfu til fimmtán hjartaaðgerðir á börnum hér á landi á undanförnum árum. A sl. tveimur árum höfum við séð nokkra aukningu í stærri og flóknari aðgerðum og sést það m.a. á meðfylgjandi súluriti að í fyrra voru gerðar fleiri aðgerðir erlendis en hér heima, er það í fyrsta skipti frá því að farið var að gera opnar hjartaaðgerðir á börnum hér heima. Aðstöðuleysi hefur hrjáð bæði foreldra langveikra barna og fagólk Barnaspítala Hringsins undanfarin ár. En horft er björtum augum til nýja Barnaspítalans sem verið er að reisa á lóð Landspítalans. Því miður hafa ekki allir verið sáttir við staðsetningu nýja Barnaspítalans og hefur stundum þörfum okkar og barnanna okkar verið ýtt til hliðar þegar umræður um staðsetningu hafa átt sér stað og er það greinilegt að þar hefur fólk átt í hlut sem ekki hafa verið með langveik börn inni á Barnaspítala Hringsins. Þann 14. mars 1997 hélt Neistinn glæsilega landssöfnun í samvinnu við Stöð 2, Bylgjuna og SPRON. Þessi söfnun varð kjölfestan að þeim styrktarsjóði sem við eigum í dag. Til að sýna þakklæti okkar hefur Neistinn haldið 14. mars hátíðlegan Valur Stefánsson Hjartaaðgeröir á börnum Sjúkrasokkar Stuðningsbelti Og margt margt fleira P.O. BOX 909 - 121 REYKJAVIK, ICELAND Borgartún 20- 105 Reykjavík - Sími: 563 4000 - Fax: 563 4090 Hjúkrunarvörur ávallt til á lager: Blóðþrýstingsmælar - ýmsar gerðir Hlustunarpípur - ýmsar gerðir Speikur Velferð 25

x

Velferð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.