Velferð - 01.12.2018, Blaðsíða 22
Stuðningsnet sjúklingafélaganna
Hjartaheill er aðili að Stuðningsnetinu sem byggir á
faglegum ferlum við jafningjastuðning
við sjúklinga og aðstandendur þeirra
H
studningsnet.is
Jafningjastuðningur
• Hefur þú þörf fyrir að tala við aðra sem hafa verið
í sömu aðstæðum?
• Veltir þú fyrir þér hvernig aðrir hafa tekist á við
að greinast með sjúkdóm?
• Ertu hugsi yfir því hvaða áhrif sjúkdómurinn muni
hafa á daglegt líf þitt eða fjölskyldu þinnar?
studningsnet.is
Sfuðningsnerið or samstarfsverkefni margra slærstu
sjukltngafelaga lanðsins og byggir á f,g,eg„ mkfer|um #jj
fafnmgjasfuðning við sjúklinga og aíslanioníuf þeirra f
Faglegt og gæðastýrt ferli við jafningjastuðning
Skjólstæðingur leitar til Stuðningsnetsins gegnum www.studningsnet.is
Fagmenntaðir umsjónaraðilar velja skjólstæðingi stuðningsfulltrúa við hæfi að
undangengnu viðtali og mati.
Stuðningurinn getur farið fram í síma, tölvupósti eða augliti til auglitis, samkvæmt
samkomulagi skjólstæðings og stuðningsfulltrúa.
Umsjónaraðilar afla endurgjafar um hvernig til tókst hjá bæði skjólstæðingi og
stuðningsfulltrúa og grípa til viðeigandi ráðstafana ef frávik koma upp.
Aðildarfélög Stuðningsnetsins óska eftir sjálfboðaliðum sem vilja gerast stuðningsfulltrúar.
Ef þú vilt gerast stuðningsaðili þá getur þú haft samband við hjartaheill@hjartaheill.is eða
skráð þig á www.studningsnet.is.
Verðandi stuðningsfulltrúi fer gegnum ítarlegt viðtal til að ganga úr skugga um hvort
viðkomandi hefur unnið úr eigin málum og er í stakk búinn að aðstoða aðra.
Stuðningsfulltrúar sitja 2x4 klukkustunda námskeið í jafningjastuðningi sem byggir
á þrautreyndri fyrirmynd frá Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem greinst hefur með
krabbamein og aðstandendur þeirra.
Stuðningsfulltrúar hljóta viðeigandi símenntun með reglulegu millibili.
Stuðningsnet sjúklingafélaganna | studningsnet.is