Velferð - 01.12.2018, Blaðsíða 12
c
Pétur Bjarnason
Hjartaheill í þrjátíu og fimm ár
HjartaHeill
OH þjóðin
-eitt hjarta
Þegar Hjartaheill fagnaði þrjátíu ára afmæli sínu var birt
söguágrip Hjartaheilla. Þar var rakin saga samtakanna
fram til þess tíma, en hana er einnig að finna í bókinni
Sigur lífsins - SÍBS í 75 ár 1938-2013. Þó þykir rétt að rekja
hér enn, þó í styttra máli en fyrr, söguna frá stofnun og fram
á þennan dag, en áhersla lögð á síðustu fimm ár, sem marka
að vissu leyti stefnubreytingu í starfi Hjartaheilla, sem helg-
ast af breyttum þjóðfélagsháttum, viðhorfum og öðruvísi
samsetningu félagsmanna en var á fyrstu árum samtakanna.
Hjartasjúkdómar fyrr og nú
Hjartasjúkdómar hafa fylgt mannkyni um aldir, en fóru fyrst
vaxandi 1935 til 1980, en þá fór heldur að draga úr þeim
aftur.
Hjartaþræðingar hófust fyrst á þriðja áratug síðustu aldar,
en hér á landi var farið að framkvæma þær á Landspítalan-
um á þeim sjöunda. Um svipað leyti var farið var að mynda
kransæðar. í kjölfarið var settur gangráður í sjúkling í fyrsta
sinn hér á landi, um tuttugu árum eftir að slíkar aðgerðir
hófust erlendis. Isetning bjargráðs kom á næsta áratug og
eftir 1980 varð þróunin ör, kransæðavíkkun, brennsluað-
gerðir og flóknari skurðaðgerðir fylgdu í kjölfarið.
Á tímabilinu 1971 - 1979 mátti rekja tæplega helming
dauðsfalla Islendinga til hjartasjúkdóma. Algengast var þá að
sjúklingar væru sendir til Englands í hjartaaðgerðir, en engin
aðstaða var til þeirra hér heima. Árið 1985 var gefin heim-
ild til að hefja hjartaskurðlækningar hér á landi. Menntaðir
læknar voru fyrir hendi, en þjálfa þurfti annað starfslið og
útvega tækjabúnað, enda um mjög tæknivædda starfsemi að
ræða.
Á þessum tímamótum reið það baggamuninn að nýstofnuð
samtök hjartasjúklinga öfluðu þess fjár sem þurfti og áttu oft
síðar eftir að leggja lið.
Fyrsta hjartaaðgerðin hér á landi var gerð 1986. Aðgerðir
voru orðnar 270 árið 1994. Jafnhliða varð þróun í víkkun og
fóðrum kransæða, sem dró úr þörf skurðaðgerða, svo þeim
hafði fækkað í 174 árið 1999. Þeim fjölgaði aftur og urðu
200-250 ár ári og flestar 274 árið 2008. Gangráðs- og bjarg-
ráðsaðgerðir eru yfir 300 á ári.
Anna Cronin
í London var íslensk hjúkrunarl<ona, Anna Cronin, sem kom
mörgum íslensl<um hjartasjúklingum til aðstoðar meðan
þeir dvöldu í London vegna hjartaskurðaðgerðar. Hún var
sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1982 og kom
hingað til lands af þessu tilefni. Hópur hjartasjúklinga hélt
henni veglegt samsæti 1982. Þar var kannaður vilji manna til
þess að stofna samtök hjartasjúklinga og tvö hundruð manns
skrifuðu nöfn sín á lista. Hugmyndinni var haldið vakandi og
í maí 1983 var boðað til undirbúningsfundar. Þar mættu um
100 manns og var ákveðið stofna samtök í september sama
ár.
Landssamtök verða til
Stofnfundur Landssamtaka
hjartasjúklinga (LHS), sem nú
heita Hjartaheill, var haldinn
í Domus Medica 8. október
1983. Til fundarins mættu 230
stofnfélagar. Félagsmenn gátu
allir hjartasjúklingar orðið og einnig aðrir sem áhuga höfðu á
að styðja markmið samtakanna.
Markmið LHS var frá upphafi að standa fyrir fjáröflun, til
þess að vinna að markmiðum samtakanna með fræðslu
um hjartasjúkdóma, upplýsingaöflun og miðlun, styrkja
menntun sérfræðinga og að efla samvinnu við önnur samtök
hjartasjúklinga.
12 Málgagn Hjartaheilla