Velferð - 01.12.2018, Blaðsíða 23

Velferð - 01.12.2018, Blaðsíða 23
Fréttapistill Hjartaheill í Þingeyjarsýslum Starfsemi Hjartaheilla í Þingeyjarsýslum hefur í áranna rás verið í nokkuð föstum skorðum. Sá sem þetta ritar hefur verið formaður síðastliðna tvo áratugi. Allt frá stofnun hefur deildin veitt sjúkrastofnunum á svæðinu bæði í Þingeyjarsýslum og eins á Akureyri íjárhagsstuðning við kaup á tækjum, oft hefur verið um verulegar fjárhæðir að ræða, sem komið hafa að góðum notum. Þá höfum við stund- um keypt tækin, jafnvel með stuðningi móðurfélagsins og fært þessum stofnunum. Á árunum frá 2000-2008 áttum við mjög góð samskipti við Félag hjartasjúklinga á Eyjafjararðarsvæðinu sem byggðist upp á því að koma saman einn dag einu sinni á sumri og hafa gaman saman. Við komum saman oftast í samkomuhúsinu að Breiðumýri í Þingeyjarsveit. Við hófum daginn með u.þ.b. klukkustundar gönguferð og síðan borðuðum við saman, venjulega grillað lambalæri ásamt tilheyrandi meðlæti. Svo enduðum við samverustundina með smá skemmtun þar sem félagar tróðu upp eða fenginn var einhver utanaðkomandi. Því miður er þetta nú úr sögunni. Frá árinu 1996 hefur félagið staðið fyrir þjálfun fyrir félags- menn sína í Endurhæfingarstöðinni Hvammi á Húsavík tvisvar sinnum í viku. Þá hefur einnig frá 1997 verið í gangi þjálfun fyrir félagsmenn á Kópaskeri einnig tvisvar í viku. f tengslum við þjálfunina höfum við í síðasta tíma fyrir jól verið með uppákomu fyrir félaga í tengslum við aðventuna þar sem farið hefur verið í leiki, verið með upplestur og síðan er sameiginlegur jólamatur. Eins reynum við að breyta til síðasta daginn að vori að fara stutta ferð í eitthvert nágrannasveitarfélagið, skoða þar hvað markvert er að sjá, fara í góða gönguferð og borða síðan saman. Þjálfunin hjá okkur er frá október og út apríl. Sumarið nota menn sjálfir til gönguferða, útiveru og hreyfingar af ýmsu tagi. Þegar horft er til framtíðar stefnum við á að viðhalda þeirri starfsemi sem í gangi er og þá frekar að auka hana með því að reyna að fá fleiri í þjálfunina. Við vitum um marga sem gott hefðu af því að taka þátt, en spurningin er hvernig eigum við að ná til þeirra og sannfæra þá um mikilvægi þeirrar þjálfunar sem við bjóðum bæði fyrir líkama og sál. Stjórn Hjartaheilla Þingeyjarsýslum skipa nú: Formaður: Sigurður Aðalgeirsson Gjaldkeri: Bjarni Aðalgeirsson Ritari: Alda Þórarinsdóttir Meðstjórnandi: Ásmundur Halldórssson Húsavík í nóvembermánuði 2018, Sigurður Aðalgeirsson Mcelingá Húsavík, Sigurður Aðalgeirsson íforgrunni. Ásgeir Þór Árnason og Sigurður Aðalgeirsson. Velferð 23

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.