Mosfellingur - 16.05.2013, Page 8

Mosfellingur - 16.05.2013, Page 8
Eldri borgarar Heimsókn frá Sjúkratryggingum Nýju lyfjalögin Guðrún Björg Elíasdóttir hjá Sjúkratrygg- ingum Íslands kemur til okkar í félagsstarf- ið kl. 14.00 þriðjudaginn 21. maí og ætlar að kynna og tala um nýju lyfjalögin. Allir velkomnir. Þann 4. maí 2013 tóku gildi nýjar reglur varðandi lyfjakaup. Megin markmiðið með lögunum er að auka jafnræði milli einstaklinga óháð sjúkdómum og draga úr lyfjakostnaði þeirra sem þurfa að nota mikið af lyfjum. Sumarferð 2013 Minnum á að það þarf að klára að gera upp sumarferðina 2013 eigi síðar en 1. júní. Lokagjaldið má greiða til Elvu hjá Félagsstarfi aldraðra að Hlaðhömrum eða inn á reikning FaMos, í Arion banka. Reikningsnúmerið er 0315-13-301697 og kennitala 471102-2450. Þeir sem greiða í bankanum, vinsamlegast biðjið bankann um að senda staðfestingu á greiðslu á póstfangið kallilofts@simnet.is Kveðja Ferðanefndin Bingó og félagsvist Bingó verður haldið föstudaginn 17. maí kl 13:00 í félagsstarfi eldri borgara. Aðgans- eyrir er 500 kr. Kaffi og meðlæti í boði og flottir vinningar. Síðasta spilavist vetrarins verður föstudaginn 31. mai kl 13:00. Hlökkum til að sjá sem flesta. Kvennahlaup/ganga Verður farin frá Eirhömrum verður mið- vikudaginn 5. júni kl 14:00. Umsjónarmenn verða Alfa og Halla Karen. Skráning er á skrifstofu félagsstarfsins á Eirhömrum frá 28.maí kl 13-16 þar sem að bolir verða einnig afhentir. Heiðursmenn afhenta verðlaunapening og rós að loknu hlaupi/ göngu. ATH. Vegalengd verður miðuð við getu hvers þáttakanda Ættfræðihópur Langar ykkur að vera með í ættfræðihóp sem tekur til starfa næsta haust. Áhuga- samir endilega hafið samband við Elvu í félagsstarfinu milli kl. 13:00-16:00 alla virka daga eða í síma 586-8014 eða 698-0090 eða á netfangið elvab@mos.is. Námskeiðahald haust 2013 Félagsstarfið óskar eftir áhugasömu handverksfólki bæði konum og körlum sem hefði áhuga á að setja upp ýmisskonar stutt og lengri námskeið í félagsstarfinu. Mannauðurinn er mikill í Mosfellsbæ og margt fólk sem býr yfir mikilli þekkingu sem gaman væri að heyra um. Aðstaða til námskeiðahald er orðin mjög góð á Eirhömrum og viljum við reyna að skapa fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir eldri borgara. Áhugasamir aðilar endilega hafðið samband við Elvu forstöðumann félagsstarfsins á skrifstofutíma milli 13:00- 16:00 eða í síma 586-8014 eða 698-0090 eða á netfangið elvab@mos.is Skrifstofa félgsstarfsins er opin alla virka daga milli kl 13:00-16:00. Allar upplýsingar og skráningar eru hjá forstöðumanni félagsstarfsins í síma 586-8014 eða 698-0090 - Fréttir úr bæjarlífinu8 Bjóða upp á 11 daga ferð til Shetlandseyja Iceland Traveller og Culture and Craft ætla að bjóða upp á 11 daga fræðslu- og menningarferð til Shet- landseyja. Flogið er til Glasgow og þaðan til Leirvíkur. Þá eru næstu 5 dagar notaðir í að kynnast búskap- arháttum eyjaskeggja auk þess að sitja ráðstefnu um sjálfbærni, gæða- mál og sjaldgæf sauðfjárafbrigði í Norður-Atlantshafi. Ráðstefnuna sitja Norðmenn og Færeyingar auk Íslendinga. Farið er í menningarferð til að skoða menjar um víkingatíma- bilið eða jafnvel ennþá eldri tíma auk bændabýlis sem býður upp á heilbrigð og hamingjusöm dýr og allt lífrænt. Eftir ráðstefnuna er haldið aftur til Glasgow. Þá verður farið í dagsferð um Skotland og skoðuð lítil spunaverksmiðja (Mini Mill) og Alpaca búgarður. Síðustu tvær næturnar eru í Edinborg sem er einstaklega falleg borg með fullt af áhugaverðum stöðum, kaffihús- um og verslunum. Takmarkaður sætafjöldi við 30 manns. Nánari dagskrá á cultureandcraft.com. Ábendingar óskast um bæjarlistamann Menningarmálanefnd Mosfells- bæjar óskar eftir ábendingum um bæjarlistamann Mosfellsbæjar 2013. Bæjarlistamanni er jafnframt veittur menn- ingarstyrkur og verður útnefning að vanda tilkynnt í tengslum við bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima. Ábendingar skulu berast rafrænt í gegnum heimasíðu bæjarins fyrir 1. júní. Núverandi bæjarlistamaður er Páll Helgason. Á Degi umhverfisins, 25. apríl, voru frið- lýstir tveir fossar í Mosfellsbæ. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Umhverfisstofn- unar og Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í Mosfellsbæ skrifuðu undir friðlýsingu Álafoss og Tungufoss. Hinn sögufrægi Álafoss í Varmá rennur í gegnum Álafosskvos í Mosfellsbæ. Varmá er á náttúrurminjaskrá frá upptökum til ósa en áin og fossinn tengjast ríkulega atvinnu- og íþróttasögu Mosfellsbæjar. Svæðið sem er fjölsótt útivistarsvæði hefur sögu- og fræðslugildi. Ullarvinnsla hófst við Ála- foss árið 1896 og vegna starfseminnar var áin stífluð ofan við fossinn. Myndaðist þá talsvert dýpi í ylvolgri Varmánni sem notað var til sundiðkunar og dýfinga. Enn má sjá leifar af tveimur dýfingapöllum og stíflunni ofan við fossinn. Vernda fossana og minjarnar í kring Tungufoss er fallegur foss neðarlega í Köldukvísl í Mosfellsbæ á móts við Leir- vogstungu. Við Tungufoss má sjá leifar af heimarafstöð sem var reist árið 1930 af bóndanum í Leirvogstungu og bræðrum hans. Nærsvæði fossins er vinsælt til úti- vistar. Samtals er hið friðlýsta svæði um 2,8 hektarar að stærð. Markmið með friðlýsing- unni er að vernda fossana sjálfa og minjar við og í kringum þá. Unnið er að stofnun fólkvangs norðan Helgufoss í samstarfi við ríkið sem á landið norðan við ána á þessum stað. Alls 2,8 hektarar friðlýstir • Unnið að stofnun fólkvangs norðan Helgufoss Álafoss og Tungufoss frið- lýstir á Degi umhverfisins „Allt er breytingum háð; allt fram streymir endalaust, bæði tíminn og vatnið sem Steinn Steinarr orti svo eftirminnilega um. Nú ganga menn ekki lengur um grundir í fötum úr Álafossdúk, líkt og á dögum Steins,“ sagði Bjarki Bjarnason formaður umhverfisnefndar við friðlýsinguna. Hann tók sér jafnframt það bessaleyfi að sveigja skáldskap sem Steinn hafði ort og endurvann gamla vísu í tilefni dagsins: Sólskinið glampar á grundum og golan blæs svöl á oss. Vér fögnum á fornum slóðum og friðlýsum Álafoss. allt er breytingum hÁð tungufoss í köldukvísl forstjóri umhverfisstofn- unar, umhverfisráðherra og bæjarstjóri mosfellsbæjar

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.