Mosfellingur - 16.05.2013, Qupperneq 12
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ12
kjarnafæðis grill
lambalærisneiðar
Við bjóðum upp á vikunámskeið frá mánudegi til föstudags frá kl. 9-12 eða kl. 13-16.
Stubbanámskeið verður fyrir 4-6 ára vikuna 22.-26. júlí frá kl. 9-12.
Allar nánari upplýsingar má finna inn á: www.hestamennt.is.
Skráningar fara fram í gegnum netfangið: hestamennt@hestamennt.is eða í síma: 899 6972 - Berglind.
ReiðSkóli HeStamenntaR
Reiðskóli Hestamenntar er staddur í hesthúsahverfinu við
Varmárbakka í mosfellsbæ. námskeiðin eru fyrir börn og
unglinga frá 6-14 ára og hefjast þau 10. júní og standa til 23. ágúst.
Krakkar úr 8., 9. og 10. bekk eru að
setja upp söngleik í félagsmiðstöðinni
Bólinu. Söngleikurinn heitir Kjallarinn
og var settur saman úr hugmyndavinnu
krakkanna. Sagan fjallar um krakka í
grunnskóla sem taka upp á því að fara í
andaglas í skólanum sínum. Lenda þau í
miklu klandri út frá því og þurfa að leysa
úr því í sameiningu.
Tekin eru ýmis fræg og vinsæl lög,
bæði íslensk og erlend. Þetta hefur verið
mjög skemmtilegt og tilraunarkennt
verkefni, þar sem leikur og söngur eru
ekki einu listformin, heldur blandast líka
kvikmyndagerð og hljóðlist við. Sýningar
á Kjallaranum standa yfir 1., 2. og 3. júní
og eru allir velkomnir. Nánari upplýsingar
eru í síma 566-6058.
Félagsmiðstöðin sýnir verkið Kjallarinn • Sýnt í byrjun júní
Setja upp söngleik
Ný og endurbætt þjónustustöð Olís við Langatanga hefur verið opnuð. Quiznos og 66
grill hafa opnað á stöðinni sem nú er opinn allan sólarhringinn. Miklar endurbætur hafa
verið gerðar á húsnæðinu og hægt er að setjast niður á staðnum og fá sér í gogginn.
Endurbætt Olísstöð Eitt aðaleinkenni skólastarfsins í Framhalds-skólanum í Mosfellsbæ er að kennslustund-
irnar eru að mörgu leyti nýstárlegar þar sem
nemendur læra námsefnið í gegnum verk-
efni sem þeir vinna með stuðningi kennara.
„Hugmyndafræði og kennsluhættir skólans
einkennast þannig af því að nemendur eru
virkir þátttakendur í eigin námi, öðlast
sjálfstæði og stjórna námshraða sínum með
góðum stuðningi kennara og námsráðgjafa.
Notaðar eru fjölbreyttar verkefnamiðaðar
kennsluaðferðir og námsmat sem er stöðugt
í gangi og miðast við hugmyndir um leið-
sagnarmat,“ segir Guðbjörg Aðalbergsdóttir
skólastjóri FMOS.
Upplýsingatæknin er notuð til að auka
fjölbreytni í skólastarfinu, kennslukerfi á
netinu er notað til að koma upplýsingum,
áætlunum, námsefni og fyrirmælum til
nemenda, auk þess sem verkefnaskil fara
að mestu fram á kennslukerfinu. Hvers
kyns tæki, tölvur, símar og spjaldtölvur eru
notuð á margvíslegan hátt í verkefnavinn-
unni.
Ekki sérstakur prófatími
Ein sérstaða FMOS er að ekki er sérstak-
ur prófatími því að leiðsagnarmatið fer
fram alla önnina. Tvær síðustu vikurnar er
kennslan brotin upp með verkefnadögum
þar sem nemendur vinna lokaverkefni í
lengri lotum en venjulega.
FMOS leggur áherslu á að vera í góðum
tengslum við umhverfi sitt, bæði hvað
varðar listir og menningu, íþróttir og
lýðheilsu og annað það sem einkennir
mannlíf í Mosfellsbæ. Sigrún Theodóra
Steinþórsdóttir listgreinakennari við skól-
ann er með skemmtilega nálgun á kennsl-
una. „Ég kenni áfanga eins og Hönnun úr
náttúruefnum, Hönnun og blönduð tækni
og Hönnun úr textílefnum. Þessir áfangar
bjóða upp á að nemendur spreyti sig á
ólíkri tækni og aðferðum hönnunar í efni
eins og náttúruefni, gifs, pappír, steypu,
leir, gler, vír og mismunandi textílefni.
Ég vil ýta undir félagsþroska nemenda
minna með því að leyfa þeim að kynnast
innbyrðis á sinn hátt og hef tímana mjög
frjálslega og afslappaða. Þannig myndast
skemmtilegt andrúmsloft hjá nemendum
sem virkjar sköpunarkraft þeirra og áhuga
á fagurfræði,“ segir Sigrún Theodóra.
Nemendur ánægðir með kennsluna
Í Hönnun úr náttúruefnum kenni ég
nemendum mínum m.a. að tálga úr trjá-
tegundum eins og birki, ösp og víði. Við
notumst við fallin tré hérna í Mosfellsbæ
og höfum fengið gefins efnivið frá fólki
sem þarf að losa sig við tré úr görðunum
sínum. Eins notum við önnur náttúruefni
eins og steina, laufblöð, kuðunga og skeljar
og í raun allt sem er í boði hérna í umhverfi
okkar. Við höfum farið í heimsókn í Ásgarð í
Álafosskvosinni og kynnst starfseminni þar,
því þar er einmitt tálgunin notuð mikið svo
úr verða fallegir hlutir. Í þessum áföngum
er líka farið í útieldhús með hlóðum sem
Varmárskóli hefur verið svo almennilegur
að lána okkur og tálgaðir grillpinnar sem
notaðir eru til að grilla pylsur og baka
brauð yfir opnum eldi. Þetta vekur alltaf
jafn mikla lukku,“ segir Sigrún Theódóra.
„Í áfanganum Hönnun og blönduð
tækni vinnum við m.a. með pappír, gifs,
leir, steypu, járn, flísar og fleira spennandi.
Í þessum áfanga er vinsælt að gera grímur,
hatta, skálar, figúrur og fleira og í áfangan-
um Hönnun úr textílefnum eru miðaðir við
verkefni og vinnu úr mismunandi textílefn-
um eins og óróar, þæfðar nælur og skart,
tuskudýragerð, þrykking á boli, hnýtt arm-
bönd og margt fleira í svipuðum dúr. Þessi
nálgun að námsefninu hefur reynst vel og
nemendur ánægðir með kennsluna,“ segir
Sigrún Theodóra að lokum.
Sköpunarkrafturinn virkjaður • Góð tengsl við umhverfið
Nýstárlegar kennslu-
aðferðir í FMOS