Mosfellingur - 16.05.2013, Síða 14

Mosfellingur - 16.05.2013, Síða 14
 - Bæjarblað í 10 ár14 VIÐ ÞÖKKUM ÖLLUM NÖGLUM Á ÍSLANDI VEL UNNIN STÖRF Í VETUR. SJÁUMST AFTUR 1. NÓVEMBER. Á DEKKJAHÓTELI N1 BÝÐST ÞÉR AÐ GEYMA DEKKIN GEGN VÆGUGJALDI ÞÚ FÆRÐ MIKIÐ ÚRVAL AF DEKKJUM OG FLJÓTA OG ÖRUGGA ÞJÓNUSTU HJÁ N1 Meira í leiðinniWWW.DEKK.IS N1 LANGATANGI 1A OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA KL. 8-18 OG LAUGARDAGA KL. 9-13 SÍMI 440 1378 Það verður í nógu að snúast í Bæjarleik- húsinu í sumar, eins og síðustu sumur. Hin vinsælu námskeið Leikfélags Mosfells- sveitar, Leikgleði, snúa aftur og hafa aldrei verið fjölbreyttari. Námskeið eru í boði fyrir krakka á aldrinum 6-8 ára, 9-12 ára og 13- 16 ára. Á námskeiðunum vinna nemendur með sjálfstraust, framkomu og framsögn, sigrast á feimni og kynnast hinum ýmsu þáttum sem snúa að leikhússtarfi. Í ár verð- ur m.a. sett upp leikrit, unnið með spuna, söng, dans og sirkuslistir. Í lok hvers nám- skeiðs verður sett upp metnaðarfull sýning með afrakstri námskeiðsins. Tryggið ykkur pláss sem fyrst, því oft hafa færri komist að en hafa viljað. Upplýsingar má finna á www.leikgledi2013.tk og skrán- ing fer fram á leikgledi@gmail.com. Ljósakórinn eyddi skemmtilegum dögum í Færeyjum dagana 22.-26. apríl. Ferðin heppnaðist frábærlega vel og móttökurnar voru mjög góðar, eins og Færeyingar segja sjálfir: „Føroyingar eru kendir fyri okkara gestablídni.” Í ferðinni voru 15 stúlkur, ein mamma, tvær ömmur og Berglind Björg- úlfsdóttir kórstjóri. Þetta var fríður og föngulegur kvennahópur. KFUK og skátarnir í Þórshöfn skutu skjólshúsi yfir kórinn. Kórinn ferðaðist með leigubílum frá áætlunarbílastöðinni í Þórshöfn á gististaðinn. Það þurfti að kalla út næstum allan leigubílaflota Þórshafnar þegar Ljósakórinn var á ferð. Gist var í dásamlega fallegu stóru, gömlu, rauðu húsi efst í bænum, sem skátarnir og KFUK eiga saman. Spiluðu fótbolta með Klaksvík Kórinn heimsótti Klaksvík sem er 5000 manna bær á Norðureyjunum. Gestrisnin var alltaf sú sama. Í Klaksvík gisti kórinn í „Skálanum” sem Dansfélagið á. Það var farið í sund, sundlaugin í Klaksvík er ein- staklega glæsileg. Allir voru boðnir og búnir og laugin opnuð sérstaklega fyrir kórinn. Ljósakórinn fékk að spila fótbolta með 4. flokki stúlkna í Klaksvík, því margar í kórn- um æfa fótbolta. Kórstúlkur voru fljótar að kynnast krökkunum í Klaksvík og formaður Dansfélagsins kenndi kórnum færeysk lög og dansa ásamt unglingunum á staðnum. Lopapeysurnar vöktu athygli Kórinn söng í guðþjónustu í Christians- kirkjunni í Klaksvík sem er ein af veglegri kirkjum Færeyja. Eftir guðþjónustuna var öllum boðið upp á heita máltíð í safnaðar- heimilinu auk þess sem Ósaskóli í Klaksvík var líka heimsóttur. Færeyingarnir voru á leið í fjögurra daga frí, fánadeginum var fagnað fimmtudaginn 25. apríl og Dýri Biðidagur (bænadagur) var föstudaginn 26. apríl. Íslensku lopapeys- urnar vöktu athygli og prjónakonur skiptust á færeyskum og íslenskum prjónauppskrift- um. Það var gott veður og mikil stemmning í Þórshöfn. Syngja í hátíðarmessu á sunnudaginn Kórinn kvaddi Færeyjar með trega. Þetta var yndisleg ferð og móttökurnar stórkost- legar. Kórinn og fararstjórar vilja þakka Elsbu Danjálsdóttur hjá Færeysku sendi- skrifstofunni, Jógvan Hansen, Hreiðari Erni hjá Lágafellssókn og séra Hanus á Gørðum prestinum í Klaksvík fyrir að greiða götu kórsins í Færeyjum. Einnig þakkar kórinn öllum sem styrktu ferðina. Þess má geta að stúlkur úr Ljósakórnum syngja í hátíð- armessu í Lágafellskirkju á hvítasunnudag þann 19. maí. Barnakór á vegum bæjar og kirkju • Lögðu land undir fót Ljósakórinn í söng­ ferð til Færeyja stelpurnar í ljósa- kórnum ásamt berglindi Leikgleði í sumar svipmyndir frá vortónleik um karlakórs kjalnesinga gísli, egill og jón magnús glímt á milli laga sungið af innlifun M yn d/ Ra gg iÓ la ...kemur ferskur beint úr Fiskbúðinni Mos. Eldaður að hætti kokksins.fiskur dagsins HáHolt 13 - s. 5666-222 1.990 kr.

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.