Mosfellingur - 16.05.2013, Qupperneq 24
Sólin skein hátt á lofti og Esjan skart-aði sínu fegursta er ég heimsótti Sig-urð Helga á heimili hans í Akurholti.
Tíkin Perla fylgdi húsbónda sínum hvert
fótmál og fylgdist með framvindu mála.
Árið 2003 byrjaði Sigurður Helgi að
syngja í kór en lét ekki staðar numið
þar heldur tók hann sig til og stofnaði
ferskan rokk-karlakór sem fékk nafnið
Stormsveitin. Þeir félagar hafa átt mikl-
um vinsældum að fagna og nú blása þeir
til stórtónleika í Austurbæ.
„Ég bjó fyrstu ár ævi minnar í Reykja-
vík en árið 1975 flutti fjölskyldan í Mos-
fellssveit. Foreldrar mínir keyptu fokhelt
einbýlishús í Arnartanganum og luku við
byggingu þess. Það var frábært að búa
svona uppi í sveit, samfélagið var lítið á
þessum tíma og allir þekktu alla. Það var
mikið af krökkum í götunni og alltaf eitt-
hvað í gangi.
Við vorum með hesta þar sem Leirutang-
inn er núna og gátum fylgst með þeim út
um eldhúsgluggann. Ég man líka eftir því
að foreldrar mínir voru ekki par hrifnir af
því að rollurnar voru að koma inn í garðinn
á nóttunni og éta blómin,“ segir Sigurður og
brosir að minningunni.
Sigurður Helgi fæddist í Reykjavík 3. jan-
úar 1971. Foreldrar hans eru þau Hjördís
Sigurðardóttir verslunarmaður og Hans Þór
Jensson dúklagningameistari og saxafón-
leikari. Sigurður er yngstur þriggja bræðra
en bræður hans eru Hilmar dúklagninga-
meistari og Jens tónlistarmaður.
Gott að búa í sveit
„Ég byrjaði í sex ára bekk hjá Sigríði
Johnsen en Klara Klængsdóttir kenndi mér
í öðrum bekk. Vorið 1980 datt foreldrum
mínum það í hug að gerast bændur og við
fjölskyldan fluttum að Álftárósi á Mýrum.
Við vorum með 25 beljur, 300 rollur
ásamt hænum og hestum. Við vorum líka
með æðavarp þannig að maður
kynntist ýmsum hlutum. Þetta
var yndislegur tími og gott að
kynnast sveitinni, ég hef alltaf
verið mikill sveitamaður í mér.
Ég gekk í Varmalandsskóla í Borgarfirði
sem var á þessum tíma heimavistarskóli.”
Lærði að vinna í Víðidalnum
„Haustið 1982 fluttum við aftur í Mos-
fellsbæ og þá í Byggðarholtið. Ég fór aftur í
Varmárskóla og svo í Gagnfræðaskólann og
útskrifast þaðan vorið 1987. Það var gaman
að vera unglingur í Mosfellsbæ, vinahópur-
inn var stór og enn í dag höldum við hóp-
inn og köllum okkur Blágrasafélagið.
Ég var í sveit á Syðra – Kolugili í Víðidal
tvö sumur og þar lærði ég að vinna. Þar
var mjög gaman þó það hafi verið erfitt á
köflum, sökum mikillar vinnu.”
Stofnaði hljómsveit
„Ég spilaði á básúnu í Skólahljómsveit
Mosfellsbæjar í nokkra vetur og fékk þar
góðan tónlistargrunn en ég sé alltaf eftir því
að hafa ekki lært meira í tónlist á mínum
uppvaxtarárum. Ég og félagar
mínir fjárfestum í hljóðfærum
og stofnuðum hljómsveit. Ég
tók að mér að vera trommari
og við æfðum og æfðum en árangurinn
var kannski ekki alltaf í samræmi við það,”
segir Siggi og hlær. „Við spiluðum eitthvað
á skólaböllum og í félagsmiðstöðvum.”
Söng lög með U2
„Ég vann tvö sumur í byggingarvinnu en
haustið 1987 byrjaði ég í Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti. Þetta var flottur skóli og
mikið um að vera. Ég tók þátt í uppsetn-
ingu árshátíðarinnar það ár í Háskólabíói
og söng þar lög með U2. Ég hætti í FB og
byrjaði að læra dúklagnir og veggfóðrun
haustið 1988. Ég hafði verið að vinna tölu-
vert við þetta hjá pabba og líkaði vel.”
Mitt mesta gæfuspor
„Með Leikélagi Mosfellssveitar tók ég
þátt í nokkrum uppsetningum á leikritum
og það var frábær tími. Það var þar sem
ég uppgötvaði að ég gæti sungið. Það var
mikið af ungum krökkum í Leikfélaginu á
þessum tíma og þar hitti ég konuna mína.
Við vorum búin að þekkjast í tvö ár þegar
við byrjuðum saman árið 1990. Það er mitt
mesta gæfuspor í lífinu, við Alda erum
mjög samheldin og eiginlega sköpuð fyrir
hvort annað.”
Yndislegt útsýni yfir Leirvoginn
„Frumburðurinn okkar hann Arnór
fæddist árið 1991. Við bjuggum fyrstu tvö
árin hjá tengdaforeldrum mínum, Herdísi
Þorgeirsdóttur og Frímanni K. Sigmunds-
syni en fluttum svo í okkar eigið húsnæði.
Dóttir okkar, Brynja Dís fæddist síðan árið
1993 og sú yngsta Eva Dís fæddist árið
2001. Tengdabörnin okkar eru tvö, þau
Heiðar Freyr og Ingibjörg Birna. Síðastliðin
ellefu ár höfum við búið í Akurholtinu og
hér líður okkur einstaklega vel með fallegt
útsýni yfir Leirvoginn og Snæfellsjökul út
um eldhúsgluggann.”
Hóf innflutning á múr- og flotefnum
„Maður hafði takmarkaðan tíma með
fjölskyldunni fyrstu búskaparárin en mað-
ur hefur lært með tímanum að nýta hverja
stund vel. Aðaláhugamál fjölskyldunnar
eru ferðalög.
Ég hef nú starfað við dúklagnir og flotun
gólfa í 25 ár, ég kláraði sveinsprófið árið
1997 og meistaraskólann árið 2000. Við
pabbi hófum innflutning á flot- og múrefn-
um frá Weber Ltd. í Bretlandi. Ég kann vel
við að vera í eigin rekstri og þetta hefur verið
lærdómsríkur tími. Alda hefur unnið ýmis
störf en fyrir nokkrum árum byrjaði hún að
hanna sína eigin fatalínu undir nafninu AS
design og starfar við það í dag.”
Stofnaði rokk-karlakór
„Árið 2003 byrjaði ég að syngja með
Karlakór Kjalnesinga. Ég sé ekki eftir því
enda frábær félagsskapur. Ég hef mikla
ástríðu fyrir söng og þegar ég var búinn að
syngja með kórnum í nokkur ár þá langaði
mig til þess að taka þetta aðeins lengra.
Ég fór að læra hjá Heru Björk Þórhalls-
dóttur og hún reyndist mér mjög vel. Einn
daginn fékk ég þá hugmynd að að taka upp
fjórraddað íslenskt karlakórslag og flytja það
í rokkútsetningu. Ég fékk Arnór son minn og
Jenna bróður til að vinna tónlistina fyrir upp-
tökur og hóaði svo saman nokkrum félögum
mínum sem allir höfðu sungið í karlakór.
Upp úr þessu varð Stormsveitin til.”
Viðtökurnar vægast sagt frábærar
„Stormveitin er skipuð fimm manna
hljómsveit og 20 manna karlakór. Ég vissi
ekkert hvað ég var að fara út í þegar þetta
fór af stað en þetta er eitt af því skemmti-
legasta sem ég hef gert. Páll Helgason hefur
útsett mikið fyrir okkur og verið listrænn
ráðgjafi sem hefur skipt sköpum.
Stormsveitin hefur komið fram við hin
ýmsu tækifæri s.l. eitt og hálft ár og viðtök-
urnar hafa verið vægast sagt frábærar. Nú
stefnum við á stórtónleika í Austurbæ 25.
maí og við lofum magnaðri rokkveislu,” segir
Sigurður Helgi að lokum er við kveðjumst.
- Mosfellingurinn Sigurður Helgi Hansson24 Myndir: Ruth Örnólfs, Ólína Kristín Margeirsdóttir og úr einkasafni
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Við vorum búin að þekkjast
í tvö ár þegar við byrjuðum
saman árið 1990. Það er mitt
mesta gæfuspor í lífinu, við Alda
erum mjög samheldin og eigin-
lega sköpuð fyrir hvort annað.
Fjölskyldan í Akurholtinu: Sigurður, Eva Dís, Alda, Brynja Dís, Heiðar Freyr, Ingibjörg Birna og Arnór.
Lofar magnaðri rokkveislu
Sigurður Helgi Hansson dúklagninga- og veggfóðrarameistari er stofnandi
Stormsveitarinnar sem heldur stórtónleika í Austurbæ þann 25. maí.
Hver er þín helsta fyrirmynd?
Konan mín.
Fallegasti staður í Mosfellsbæ?
Útsýnið af pallinum hjá mér á fallegu
sumarkvöldi.
Uppáhaldssöngvari? Elvis Presley.
Hvaða litur lýsir þér best? Rauður.
Uppáhaldsgræjan á heimilinu?
Cadillacinn.
Hverju safnar þú?
Góðu fólki í kringum mig.
Eitt atriði um þig sem fólk veit ekki
um? Ég er vitlaus í saltað hrossakjöt.
Besti sjónvarpsþátturinn? Top Gear.
HIN HLIÐIN