Mosfellingur - 16.05.2013, Side 30

Mosfellingur - 16.05.2013, Side 30
 - Fréttir úr bæjarlífinu30 ...með fersku Lambhagasalati, mango, cherry tómötum, gúrku, kasjú hnetum, kjúklingalundum í sætri soya sósu, hvítlaukssósu og rauðu pestói. KjúKlingasalat HáHoLt 13 - s. 5666-222 1.590 Kr. Ævintýragarður fyrir alla fjölskylduna er nú óðum að taka á sig mynd í Ullarnesbrekk- um. Frá því að bæjarstjórn samþykkti að gera garðinn, af tilefni 20 ára afmæli Mos- fellsbæjar, hefur verið unnið við uppbygg- ingu á stígakerfi og gróðri á svæðinu. Búið er að leggja malbikaðan og upp- lýstan aðalstíg sem liggur í gegnum allan garðinn, frá íþróttasvæðinu við Varmá að Leirvogstungu, með rósatorgi í miðjunni og göngubrúm við hvorn enda. Auk þess hefur verið lagður út frá aðalstígnum minni mal- arstígur, svonefndur Ætistígur, sem liggur meðfram hinum ýmsu ætiplöntum sem plantað hefur verið meðfram honum, m.a. fjölmörgum tegundum berjarunna. Þar geta Mosfellingar lagt leið sína næsta haust til að tína ber og njóta umhverfisins. Skátar setja upp leiktæki Síðastliðið sumar var sett upp fræðslu- skilti um Ævintýragarðinn við innkomuna að sunnanverðu frá íþróttasvæðinu við Varmá. Fræðsluskiltið sýnir verðlaunatil- lögu Landmótunar um skipulag Ævintýra- garðsins og hvernig uppbygging er fyrir- huguð í garðinum á næstu misserum. Í vetur hefur síðan verið unnið að upp- setningu leiktækja á svæðinu. Skátafélagið Mosverjar hefur sett upp nokkur skátaleikt- æki í suðurenda garðsins, nálægt íþrótta- svæðinu við Varmá. Þar er um að ræða ýmis klifur- og þrautatæki ásamt veglegum hlaupaketti sem hægt er að sveifla sér í. Einnig hefur verið sett upp klifurnet í miðj- um garðinum, nálægt íþróttavellinum, sem vinsælt er meðal yngri kynslóðarinnar. „Íbúar í Mosfellsbæ eru hvattir til að nýta sér þessi nýju leiktæki og skoða þær fram- kvæmdir sem fram hafa farið í garðinum á síðustu misserum. Tilvalið fyrir göngufólk að kynna sér nýjar leiðir og sjá Mosfellsbæ frá öðru sjónarhorni. Garðurinn mun án efa nýtast jafn ungum sem öldnum í sum- ar,“ segir Tómas G. Gíslason umhverfisstjóri Mosfellsbæjar. Uppbygging stíga og gríðurs • Skátar setja upp leiktæki Ný leiktæki sett upp í Ævintýragarðinum Ævar skátaforingi við ný leiktÆki í ullarnesbrekkum Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Mosfellsbæ fóru á dögunum í heimsókn á Akranes. Kon- urnar vinna hörðum höndum að því að útbúa pakka með fötum sem sendir eru til Hvíta Rússlands. Í Akranesferðina fóru 10 konur úr Mosfellsbæ með Strætó. Þar hittu þær fyrir sjálfboðaliða við sömu iðju en átakið „Föt sem framlag“ nær yfir allt landið. Konurnar hitt- ast jafnan í Rauðakrosshúsinu Þverholti 7 á miðvikudögum kl. 13-15 og eru allir hjartan- lega velkomnir í hópinn. Alltaf með eitthvað á prjónunum Hópurinn á akranesi mosfellskir sjálfboðaliðar Námsmaraþon 10. bekkinga í Lágó 10. bekkingar í Lágafellsskóla blésu til námsmaraþons á dögunum til að safna fyrir út- skriftarferð. Krakkarnir vilja koma á framfæri þökkum til Mosfellinga sem hétu á þau.

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.