Mosfellingur - 16.05.2013, Page 30
- Fréttir úr bæjarlífinu30
...með fersku Lambhagasalati, mango,
cherry tómötum, gúrku, kasjú hnetum,
kjúklingalundum í sætri soya sósu,
hvítlaukssósu og rauðu pestói.
KjúKlingasalat
HáHoLt 13 - s. 5666-222
1.590 Kr.
Ævintýragarður fyrir alla fjölskylduna er nú
óðum að taka á sig mynd í Ullarnesbrekk-
um. Frá því að bæjarstjórn samþykkti að
gera garðinn, af tilefni 20 ára afmæli Mos-
fellsbæjar, hefur verið unnið við uppbygg-
ingu á stígakerfi og gróðri á svæðinu.
Búið er að leggja malbikaðan og upp-
lýstan aðalstíg sem liggur í gegnum allan
garðinn, frá íþróttasvæðinu við Varmá að
Leirvogstungu, með rósatorgi í miðjunni og
göngubrúm við hvorn enda. Auk þess hefur
verið lagður út frá aðalstígnum minni mal-
arstígur, svonefndur Ætistígur, sem liggur
meðfram hinum ýmsu ætiplöntum sem
plantað hefur verið meðfram honum, m.a.
fjölmörgum tegundum berjarunna. Þar
geta Mosfellingar lagt leið sína næsta haust
til að tína ber og njóta umhverfisins.
Skátar setja upp leiktæki
Síðastliðið sumar var sett upp fræðslu-
skilti um Ævintýragarðinn við innkomuna
að sunnanverðu frá íþróttasvæðinu við
Varmá. Fræðsluskiltið sýnir verðlaunatil-
lögu Landmótunar um skipulag Ævintýra-
garðsins og hvernig uppbygging er fyrir-
huguð í garðinum á næstu misserum.
Í vetur hefur síðan verið unnið að upp-
setningu leiktækja á svæðinu. Skátafélagið
Mosverjar hefur sett upp nokkur skátaleikt-
æki í suðurenda garðsins, nálægt íþrótta-
svæðinu við Varmá. Þar er um að ræða
ýmis klifur- og þrautatæki ásamt veglegum
hlaupaketti sem hægt er að sveifla sér í.
Einnig hefur verið sett upp klifurnet í miðj-
um garðinum, nálægt íþróttavellinum, sem
vinsælt er meðal yngri kynslóðarinnar.
„Íbúar í Mosfellsbæ eru hvattir til að nýta
sér þessi nýju leiktæki og skoða þær fram-
kvæmdir sem fram hafa farið í garðinum á
síðustu misserum. Tilvalið fyrir göngufólk
að kynna sér nýjar leiðir og sjá Mosfellsbæ
frá öðru sjónarhorni. Garðurinn mun án
efa nýtast jafn ungum sem öldnum í sum-
ar,“ segir Tómas G. Gíslason umhverfisstjóri
Mosfellsbæjar.
Uppbygging stíga og gríðurs • Skátar setja upp leiktæki
Ný leiktæki sett upp
í Ævintýragarðinum
Ævar skátaforingi við ný
leiktÆki í ullarnesbrekkum
Sjálfboðaliðar Rauða krossins
í Mosfellsbæ fóru á dögunum
í heimsókn á Akranes. Kon-
urnar vinna hörðum höndum
að því að útbúa pakka með
fötum sem sendir eru til Hvíta
Rússlands. Í Akranesferðina
fóru 10 konur úr Mosfellsbæ
með Strætó. Þar hittu þær fyrir
sjálfboðaliða við sömu iðju en
átakið „Föt sem framlag“ nær
yfir allt landið. Konurnar hitt-
ast jafnan í Rauðakrosshúsinu
Þverholti 7 á miðvikudögum
kl. 13-15 og eru allir hjartan-
lega velkomnir í hópinn.
Alltaf með eitthvað á prjónunum
Hópurinn á akranesi
mosfellskir
sjálfboðaliðar
Námsmaraþon
10. bekkinga í Lágó
10. bekkingar í Lágafellsskóla blésu til námsmaraþons á dögunum til að safna fyrir út-
skriftarferð. Krakkarnir vilja koma á framfæri þökkum til Mosfellinga sem hétu á þau.