Mosfellingur - 16.05.2013, Side 34

Mosfellingur - 16.05.2013, Side 34
a MÚRVERK - FLÍSALAGNIR - ALMENN VIÐHALDSVINNA f FAGMENNSKA Í FYRIRRÚMI Subaru XV 4WD - árg. 2012 Þægileg og háþróuð kennslubifreið Akstursmat og endurtökupróf Ökukennsla Gylfa Guðjónssonar Sími: 696 0042 Sími: 894-7200 I Finndu okkur á facebook • Sprautulökkum innréttingar, hurðir, húsgögn ofl. • Smíðum innréttingar • Tökum niður og setjum upp innréttingar ef óskað er. • Sækjum og sendum frítt á höfuðborgarsvæðinu • Föst verðtilboð GNÁ SPRAUTUN - Aðsendar greinar34 Snyrti-, nudd & fótaaðgerðastofan Líkami og sál Þverholti 11 - s. 566 6307 www.likamiogsal.is Verið hjartanlega velkomin! Þjónusta við mosfellinga hundaeftirlitið í mosfellsbæ lausaganga hunda er bönnuð handsömunargjald fyrir hund í lausagöngu er 24.500 kr. hundaeftirlitið í mosfellsbæ hundaeftirlit@mos.is Þjónustustöð s. 566 8450 Það eru kannski ekki margir sem gera sér grein fyrir því að Mosfellsbær státar af einu besta fuglaskoðunarhúsi landsins. Húsið er staðsett á frábærum stað við Langatanga við Leiruvog, neð- an við golfvöll Kjalar. Aðgengi að húsinu er gott með göngustígum sem liggja meðfram strönd- inni eða frá bílastæði við golfskálann. Húsið var tekið í notkun 29. apríl 2009 og var sérsmíðað fyrir Mosfellsbæ til þess að það nýtist sem best til fuglaskoðunar. Aðstaða fyrir fatlaða er góð í húsinu og gert ráð fyrir því að fólk í hjóla- stól geti athafnað sig sjálft í húsinu. Inni í húsinu er að finna greinargott fræðslu- skilti um þá fugla sem sem má sjá á leirunni ásamt gestabók þar sem skrá má þá fugla sem sáust þann daginn. Markmiðið með smíði fuglaskoðunarhússins var að auka aðgengi fuglaáhugamanna jafnt sem almennings að fuglaskoðun við Leiruvog, enda er Leiruvogur einstakur hvað varðar fuglalíf allt árið um kring. Leiruvogur er á náttúruminjaskrá og þar má finna fjölbreytt úrval vaðfugla enda svæðið vin- sæll áfangastaður margra fugla í fæðuleit, auk þess sem Langitangi er mikilvægur hvíldarstaður margra fuglategunda. Ýmsar áhugaverðar fugla- tegundir sjást reglulega í Leiruvogi, t.d. mar- gæs, kría, lóuþræll, rauðbrystingur og jaðrakan. Nefna má að árlega koma til landsins fuglafræð- ingar frá East Anglia háskólanum á Bretlandi til rannsókna á jaðrakan. Fuglaskoðunarhúsið við Leiruvog hefur verið haft læst til að koma í veg fyrir skemmdarverk, en lögð áhersla á að hafa aðgengi að lyklum sem allra best. Hægt er að nálgast lykla í íþróttamið- stöðinni við Lágafell á opnunartíma sundlaug- arinnar, allir skólar og leikskólar í bænum fengu afhenda lykla að húsinu og íbúar sem eru sér- staklega áhugasamir geta fengið lykil til umráða í þjónustuveri Mosfellsbæjar við Þverholt. Mosfellingar eru því hvattir til að nýta sér hús- ið og skoða það fjölbreytta dýralíf sem er að finna við Leiruvog. Tómas G. Gíslason Umhverfisstjóri Mosfellsbæjar Spennandi fuglaskoðun í Mosfellsbæ

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.