Mosfellingur - 16.05.2013, Side 36

Mosfellingur - 16.05.2013, Side 36
Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Þessi ungi maður fæddist þann 28. mars 2013 og var 13 merkur og 49,5 cm. Hann var skírður Axel Örn Hjartarson. Hann á bræður sem allir búa í Mosfellsbæ. Þeir heita Egill Már, Hilmar Logi, Stefán Magni og Sölvi Geir. Foreldrarnir heita Elísabet Guðmundsdóttir og Ólafur Hjörtur Magnússon. Ingvar skorar á hestakonuna Helenu Jensdóttur að deila með okkur uppskrift í næsta blaði Verðlaunapasta með döðlum og vínberjum Í eldhúsinu Þetta pastasalat er bæði hollt og gott og með eindæmum vin- sælt í gegnum árin á mínum bæ. 400 gr. spaghetti eða pasta 1 teningur kjúklingakraftur 1 teningur grænmetiskraftur 110 gr. rjómaostur 2 dl. rjómi Pipar 2 msk. fersk steinselja 2 tsk. oregano 150 gr. beikon 120 gr. sveppir 4 hvítlauksrif 100 gr. valhnetur 300 gr. blá vínber 180 gr. döðlur Matarolía Hvítlauksbrauð * Sjóðið pastað. * Hellið 2 dl. af vatni í pott og báðum teningunum út í og sjóðið, lækkið hitann og bætið rjómaosti og rjóma út í. Kryddið með pipar, steinselju og oregano. Setjið sósuna til hliðar. * Skerið beikon í bita, sveppi og hvítlauk í sneiðar. Skerið í tvennt valhnetur og vínber og döðlur í fernt. Stein- hreinsið ef þarf. * Steikið beikon, sveppi og hvítlauk á pönnu, bætið við olíu ef þarf. * Hitið hvítlauksbrauð. * Hellið sósunni og hnet- um saman við beikon- blönduna og látið krauma í 5 mínútur. * Setjið vínber og döðlur út í sósuna og hellið yfir pastað. Berið fram með hvítlauksbrauði. Ef vill, þá verður sósan sætari við suðu með döðlunum og vínberjunum í. Verði ykkur að góðu. hjá ingvari sumar til sælu! Í gær sá ég fyrstu húsfluguna í stofuglugganum mínum, síðan veturinn sem leið breiddi yfir allt fyrir svefninn langa. Já, veturinn sem leið! Sumarið er komið og það var húsflugan sem sagði mér það, en það voru því miður henn- ar hinstu orð þar sem hún varð köttunum mínum að bráð. Ég leit út gluggann og skildi um leið hvers vegna flugan hafði hangið þar. Þvílík fegurð! Hvers vegna er ekki alltaf sumar? Ég læt mig oft dreyma um að flytja af landi brott, en þá togar þjóðar- andinn mig alltaf aftur til raun- veruleikans. Ég elska Ísland! Og ég kann betur að meta sólríkan dag á meðan hann er. Eftir því sem dag- arnir lengjast, minnkar skamm- degisþunglyndið, sem veturinn mun þó hengja á mig eins og lóð á ný, áður en ég veit af! Grípum tækifærið og gerum lífs- stílsbreytingu! Minnum okkur á það, á degi hverjum, að við erum nákvæmlega það sem við borðum. Við látum ofan í okkur allskyns ónáttúruleg aukaefni sem birt- ast síðar í líkamlegum kvillum. Mér finnst ég hafa endurheimt stórkostleg lífsgæði með því einu að breyta mataræði mínu, velja hreinni mat. Hreyfingin er auð- vitað einnig mikilvæg og stuðlar að betri svefni sem svo auðvitað stuðlar að svo mörgu jákvæðu að þetta tengist allt saman. En það má auðvitað ekki gleyma að njóta sín! Nú er því um að gera að gefa sér tíma í að hugsa hverju má breyta til hins betra og vinna markvisst að því. Ef það tekst, mun skamm- degið ekki geta bitið á orkuna og hreystina sem þú hefur skapað þér og lífið verður miklu auðveldara. Verum besta útgáfan af sjálfum okkur! svanhildur - Heyrst hefur...36 Nýlega hóf göngu sína netverslunin „Í sveit og bæ“ sem er með aðsetur í Mosfellsbæ. Verslunin selur sænska textílvöru aðallega gardínur, púðaver, rúmteppi og fallega smávöru fyrir heimili og sumarbústaði. Að baki henni standa mæðgurnar Helga Sigurðardóttir og Íris Björk Ásgeirsdóttir. „Þegar fjölskyldan reisti sér sumarbú- stað vantaði gardínur og fleira í herbergin. Við vildum ekki strimla, rimla eða screen- gluggatjöld heldur eitthvað rómantískt og fallegt. Við fundum í Svíþjóð fyrirtæki sem var að selja nákvæmlega það sem við vor- um að leita að, rómantískan skandinavísk- an sveitastíl. Gardínurnar koma bæði sem felligardínur og síðar hliðargardínur og púðaver í stíl. Litirnir eru mildir náttúrulitir og gjarnan texti eða blúndu- og pífupunt á gardínunum,“ segja þær mæðgur. Sala fer í gegnum sölusíðu netverslunar- innar www.isveitogbae.is. Reka netverslunina „Í sveit og bæ“ Heyrst Hefur... ...að eurovisionball verði haldið í Hlégarði á laugardagskvöldið. ...Olís við Langatanga sé búið að taka skakkaskiptum og sé nú opið allan sólahringinn. ...að búið sé að opna Quiznos og 66 grill á Olísstöðinni við Langatanga. ...að ragnheiður ríkharðs sé líkleg til að verða forseti Alþingis þegar ný ríkisstjórn tekur við. ...að rúnar og Bylgja hafi fagnað tvöföldu fertugsafmæli á dögunum. ...að Ása hafi skemmt sér vel á reiðmönnum vindanna í Hlégarði. ...að rizzo pizzakeðjan sé til sölu. ...að sigmundur Davíð og Bjarni Ben hafi verslað í Krónunni í Mosó og tekið bensín á N1 áður en farið var í samningaviðræður í sumarbústað. ...að stormsveitin verði með sína stærstu tónleika til þessa í Austurbæ laugardagskvöldið 25. maí. ...að verslunin svefn og heilsa sé komin með lagerinn sinn í sigur- plasthúsið. ...að liðum í N1 deild karla í hand- knattleik verði ekki fjölgað og mun því Afturelding leika í 1. deild að ári. ...að mosfellski írinn John Andrews sé búinn að leggja skóna á hilluna. ...að Þrándur handboltakappi sé genginn til liðs við Akureyri. ...að útskorni krókódíllinn sem stolið var úr áhaldahúsinu hafi fundist á miðju stofugólfi í reykjahverfi. ...að maður sem starfaði fyrir ferða- þjónustu fatlaðra í Mosfellsbæ hafi gerst sekur um kynferðislega áreitni. ...að nýja hjúkrunarheimilið fái nafnið Hamrar og verði vígt 30. maí þar sem öllum bæjarbúum verður boðið. ...að Íris Hólm og Matti Matt hafi eignast stúlku á dögunum. ...að Alexander sé að fara að keppa á smáþjóðaleikunum í sundi. ...að hinn efnilegi knattspyrnukappi Axel Óskar sé farinn til Norwich á reynslu. ...að Aníta og robbi hafi gift sig með pompi og prakt á dögunum. ...að íþróttamannvirkin að Varmá verði hér eftir N1 höllin og N1 völlurinn. ...að Andri sveitamaður sé tekinn við formennsku af Guðmundi Guðlaugs í Karlakór Kjalnesinga. ...að handboltahátíð Aftureldingar verði haldinn á þriðjudaginn. ...að Bólið sé að setja upp söngleik. ...að Gummi gítaleikari eigi afmæli í dag. ...að fótboltastrákarnir eigi heimaleik gegn Hetti á laugardaginn kl. 14 og stelpurnar eigi útilek gegn selfoss á sama tíma. mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.